Fréttatíminn - 12.09.2014, Blaðsíða 26
É g hef tekið tvær mikilvægar ákvarðanir á síðustu árum. Önnur var sú að drífa mig í að
eignast fleiri börn. Það var ákvörðun
og ég er afskaplega ánægð með hana.
Síðan er það ákvörðunin að fara aftur
í nám,“ segir Katrín Júlíusdóttir, vara-
formaður Samfylkingarinnar, sem
sest er aftur á skólabekk í MBA-námi
við Háskólann í Reykjavík. „Það er svo
auðvelt að láta lífið fljóta áfram í ein-
hverju fari sem hættir svo kannski á
endanum að veita þér ánægju, stækka
þig eða breikka þig. Þessar ákvarð-
anir eru þær bestu sem ég hef tekið,“
segir hún.
Katrín er með skrifstofu í húsa-
kynnum Alþingis við Austurstræti.
Það stendur einfaldlega „Samfylk-
ingin“ á bjöllunni fyrir aðra hæð og
Katrín svarar skjótt. Ég hef nokkrum
sinnum tekið fréttaviðtöl við hana í
gegnum árin og það fyrsta sem ég
hugsa þegar hún tekur á móti mér í
þetta skiptið er hversu gríðarlega hún
geislar og virðist líða einstaklega vel.
Skýringuna fæ ég skömmu seinna.
Við förum inn á skrifstofuna hennar
þar sem hún setur fæturna, íklædda
háhæluðum leðurstígvélum, upp á
borð og spyr: „Er þér ekki sama?“ Ég
sagði að mér fyndist ekkert sjálfsagð-
ara.
Með netta „mid life crisis“
Katrín hefur setið á þingi síðan árið
2003 og var iðnaðarráðherra í tíð
síðustu ríkisstjórnar. Hún gekk í
það heilaga árið 2011 með Bjarna
Bjarnasyni rithöfundi og eignaðist
með honum tvíburana Pétur Loga og
Kristófer Áka ári síðar. Þegar hún
sneri aftur úr fæðingarorlofi settist
hún í stól fjármála- og efnahagsráð-
herra, embætti sem hún gegndi þar
til núverandi ríkisstjórn tók við. Katr-
ín hefur því afrekað ýmislegt þrátt
fyrir að vera aðeins 39 ára gömul en
hún er nú þingmaður í stjórnarand-
stöðu með tvo litla drengi og vílar
ekki fyrir sér að fara í krefjandi nám
meðfram því.
„Mér finnst gaman í skóla. Ég er
námfús og finnst gaman að læra nýja
hluti. Þegar ég var stelpa ætlaði ég
mér alltaf að vera langskólagengin.“
Katrín nam mannfræði við Há-
skóla Íslands 1995-1997, tók einn
kúrs tveimur árum síðan en sama ár
eignaðist hún frumburðinn Júlíus.
„Ég datt síðan bara út úr námi, fór að
vinna og festist þar. Ég fór af þeim
farvegi sem ég ætlaði mér að vera á.
Ég er að verða fertug í nóvember og
held að ég þjáist af nettri „mid life
crisis,“ segir hún og hlær.
„Ég er búin að vera að taka margt
í gegn hjá mér. Í byrjun þessa árs tók
ég ákvörðun um að gefa sjálfri mér
það í fertugs afmælisgjöf að koma
mér í dúndur form, koma mér á þann
stað sem ég vil vera á og er auðvelt
að viðhalda. Ég var orðin ofboðs-
lega þung, með verki í baki og verki
í hné. Ég tók mig algjörlega í gegn,
hef verið dugleg að hreyfa mig, fer í
ræktina og borða gríðarlega vel. Ég
er búin að taka af mér 10 kíló síðan í
janúar og hef farið niður um 10 pró-
sentustig í fituprósentu. Ég er ekki
í neinum öfgum og vil bara viðhalda
þessum lífsstíl. Samhliða þessu huga
ég einnig betur að sálarlífinu og nota
hvert tækifæri til að tengja mig betur.
Allt hangir þetta saman og mér hefur
sjaldan liðið jafn vel. Ég er líka komin
með það markmið að á hverjum
einasta degi legg ég mig fram um
að vera besta mögulega útgáfan af
sjálfri mér. Þannig held ég að maður
geti gefið meira af sér. Í svo mörg ár
hef ég keyrt skarpt áfram án þess að
huga að þessum hlutum. Allt geri ég
þetta fyrir sjálfa mig. Til að vera góð
mamma, góð í sínu starfi og vera góð
eiginkona þá þarf maður að hugsa um
sjálfa sig. Þetta er svona eins og með
súrefnisgrímurnar í flugvélunum. Ég
finn að þetta virkar, þetta virkar mjög
vel fyrir mig.“
Leikskóli tvíburanna
er æskuheimili Katrínar
Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, er sest á skólabekk og er í MBA-námi við Háskólann
í Reykjavík. Hún segist gríðarlega ánægð með þær tvær stóru ákvarðanir sem hún tók á síðustu árum,
að fara aftur í nám og eignast fleiri börn. Tvíburarnir hennar eru á þriðja aldursári og svo skemmtilega
vill til að leikskóladeildin þeirra í Álfatúni í Kópavogi var áður herbergi Katrínar á æskuheimilinu. Katrín
verður fertug síðar á þessu ári og gaf hún sér í fertugsafmælisgjöf að komast í gott form.
Pínulítið rúðustrikuð
MBA-nám er krefjandi stjórnendanám.
Námið í Háskólanum í Reykjavík er sér-
staklega skipulagt sem nám með vinnu
og tekur það tvö ár. „Ég ákvað bara að
slá til og kýla á þetta. Eftir að hafa verið í
skóla lífsins í 17 ár þá fannst mér kominn
tími til að ég þiggi ráð úr menntakerf-
inu. Þar eru fagmennirnir. Þetta MBA-
nám hentar mér afskaplega vel. Það er
bókstaflega sniðið í kringum fólk eins
og mig. Við nemendurnir erum allir í
fullri vinnu, með börn og maka sem líka
er upptekinn. Það greinilega fagfólk
sem setur þetta nám saman. Námið er
skemmtilega samansett sálfræðilega.
Það byggist upp af lotum þannig að þú
sérð alltaf fyrir endann á lotunni þó þú
sért á bólakafi,“ segir Katrín.
Hún bendir á að það sé mjög ólíkt að
vera ráðherra eða í stjórnarandstöðu
á Alþingi. „Í ráðuneytinu ert þú stöð-
ugt með verkefni sem hafa upphaf og
endi, það þarf að klára verkefni og taka
ákvarðanir. Í stjórnarandstöðu eru upp-
haf og endir á verkefnum mun óljósari.
Ég er pínulítið rúðustrikuð að því leyti
að mér finnst gott að hafa slíkt skipulag
með og í náminu fæ ég þær þarfir mínar
uppfylltar. Að fara í þetta nám hefur
kveikt nýjan eld undir mér og ég mæli
með því að allir geri það reglulega að
fara út úr sínu boxi. Þó það þýði að þú
þurfir að leggja meira á þig þá er það
bara tímabundið og þú færð svo mikið
meira út úr lífinu, verður glaðari og betri
í því sem þú ert að gera.“
Leikskólinn var áður æskuheimilið
Katrínu fannst sannarlega vera kominn
tími til að fara út úr þægindarammanum
og ögra sér á nýjan hátt. „Ég er, innan
gæsalappa, búin að vera í sama starf-
inu í 11 ár. Ég er búin að sitja á þingi
síðan 2003. Ég hef vissulega gert þar
ólíka hluti, alla mjög lærdómsríka, en
það breytir ekki því að stundum þarf að
fara út fyrir boxið þitt og opna ný hólf í
Hver er Katrín
Júlíusdóttir?
Fædd 23. nóvember
1974 í Reykjavík.
Stúdent frá Mennta-
skólanum í Kópavogi
og nam síðar mann-
fræði við Háskóla
Íslands.
Ritari Alþýðubanda-
lagsins í Kópavogi
1994-1998.
Framkvæmdastjóri
Stúdentaráðs Háskóla
Íslands 1998-1999.
Alþingismaður
Samfylkingarinnar í
Suðvesturkjördæmi
síðan 2003.
Iðnaðarráðherra
2009-2012 og fjár-
mála- og efnahags-
ráðherra 2012-2013
Gift Bjarna Bjarnasyni
rithöfundi og móðir
þriggja drengja;
Júlíusar, Péturs Loga
og Kristófers Áka.
Ég hef sett
mér það
markmið að
á hverjum
einasta degi
legg ég mig
fram um að
vera besta
mögulega
útgáfan af
sjálfri mér.
Katrín Júlíusdóttir
með tvíburunum Pétri
Loga og Kristófer
Loga á leikskólanum
Álfatúni í Kópavogi en
sjálf bjó Katrín í húsinu
þegar hún var barn.
Ljósmynd/Hari
Framhald á næstu opnu
26 viðtal Helgin 12.-14. september 2014