Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.09.2014, Page 51

Fréttatíminn - 12.09.2014, Page 51
Besta veðráttan á Íslandi Og hvernig tilfinning var að ljúka markmiðinu? „Hún var frábær,“ segir Ingjaldur og hlær. „Ég var mjög glaður og sérstaklega var gam- an að enda í Sao Tome sem er mjög skemmtilegt land og eina landið af þessum sex síðustu löndum sem ég gæti hugsað mér að koma í aftur. Fólkið þar er svo vingjarnlegt og maturinn er mjög góður. Ég fékk þarna mjög minnisstæðan hádegis- verð úti á gamalli plantekru sem hafði verið breytt í fínt veitingahús. Mér fannst gott að ljúka ferðinni þar.“ Ingjaldur á erfitt með að benda á eitthvað sérstakt sem heilli hann við ferðalög og það sé ómögulegt að nefna eitt uppáhaldsland, hver staður hafi upp á sitt að bjóða. En hann er þó ekki í neinum vafa um að New York sé sú borg sem hafi upp á hvað mest að bjóða. „Ég átti mér einu sinni þann draum að búa í New York og fékk tæki- færi til að vera þar einu sinni í fjóra mánuði. En ég komst fljótt að því að mig langaði heim aftur. Lætin trufluðu mig til lengdar. Það myndi henta mér að búa þar ef ég fengi pent- house-íbúð við Central Park, annars ekki. Það er langbest að vera á Ís- landi,“ segir Ingjaldur sem býr við Lækjargötu þar sem honum líður sérstaklega vel. „Ísland hefur svo marga kosti, það er öruggt og veðráttan er einstak- lega þægileg. Það verður aldrei það heitt að það verði erfitt að stunda vinnu og heldur aldrei það kalt að maður geti ekki klætt það af sér.“ Og hvað tekur nú við? Tóm- leikatilfinning? „Nei alls ekki. Nú fer ég bara til skemmtilegustu staðanna. New York, Kaupmannahafnar, Berlínar, Parísar, Austurríkis eða Ítalíu.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Ingjaldur segir ekki hægt að benda á eitt uppáhaldsland, allir staðir hafi sína styrkleika. Borg: New York. Dýralíf: Ljón, fílar og tígrisdýr í Kenýa, risaskjaldbökur og iguana-eðlur á Galapagos, fjallagórillur í Rúanda. Fossar: Niagrafossar á landamærum Kanada og Bandaríkjanna, Iguazufossar á landamærum Brasilíu og Argentínu og Viktoríufossar á landamærum Zimbabwe og Zambíu. Áhugaverðustu fornminjar: Egyptaland. Besti maturinn: Ítalía og Frakkland, en líka mjög góður víða í Asíu. Menning: New York, Þýskaland, Austurríki, Ítalía og Frakkland. Mesta gestrisnin: Íran. Ingjaldur Hanni- balsson prófessor í því lokaða landi, Norður- Kóreu. viðtal 51 Helgin 12.-14. september 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.