Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.09.2014, Page 52

Fréttatíminn - 12.09.2014, Page 52
Svona kemst Ísland á EM Leikir Íslands í undankeppni EM Ísland - Tyrkland 3-0 10. okt.́ 14 Lettland - Ísland 13. okt 1́4 Ísland - Holland 16. okt 1́4 Tékkland - Ísland 28. mars 1́5 Kasakstan - Ísland 12. júní 1́5 Ísland - Tékkland 3. sept 1́5 Holland - Ísland 6. sept 1́5 Ísland - Kasakstan 10. okt 1́5 Ísland - Lettland 13. okt 1́5 Tyrkland - Ísland Mega ekki fá heimskuleg spjöld Lykilmenn þurfa að vera meiðslafríir nær alla leikina. Þegar ég tala um lykilmenn á ég við Gylfa Sigurðsson, Kolbein Sig- þórsson og Aron Einar Gunnarsson. Einnig er mikilvægt að ná eftir fremsta megni að halda sömu varnarlínu í flestum leikjunum. Leikmenn mega alls ekki ná sér í heimsku- leg spjöld. Sérstaklega ekki lykilmenn eins og Gylfi sem fékk gult spjald á móti Tyrkjum fyrir að mótmæla aukaspyrnu úti á miðjum velli. Við verðum að gefa okkur 110% í alla leiki hvað varðar baráttu. Ekki detta í þá gryfju að halda að við séum svo góðir að við þurfum ekki að fórna okkur í alla bolta. Sérstaklega ekki á móti andstæðingum sem við getum kallað minni spámenn. Ef þessir hlutir verða í lagi, ásamt hæfilegum skammti af lukku, tel ég að við getum horft á íslenskt A-karlalandslið í lokakeppni Evrópumóts. Haraldur Gíslason pollapönkari Ari Freyr með Robben í vasanum Tyrkland: Tyrkirnir sýndu það á þriðjudaginn að þeir eru ekki þess verðugir að Tyrkjaránið sé ranglega kennt við þá. Þeir hefðu aldrei getað rænt nokkrum manni. Alsírránið mun ég kalla það framvegis. Útileikurinn verður þó erfiður því þeir fá fáránlegan stuðning frá á sínum heimavelli. Holland: Ari Freyr verður með Robben í vasanum í báðum leikjum og vonandi verður Van Persie bara meiddur. Þá er eftirleikurinn auðveldur. Tékkland: Tékkland er ekki sama Tékkland og það var á EM 96. Þrátt fyrir það er einn maður sem má ALDREI vanmeta. Það er Luboslav Penev, þjálfari Tékka. Kazakstan: Hvernig í ósköpunum á ég að geta komið með ráðlegg- ingar varðandi Kasakkana? Eina sem ég veit er að Borat var frá Kazakstan, en hann var ekki til í alvöru. Sergei Khizhnichenko er samt maður sem þarf að varast í framlínunni. Örugglega. Lettland: Í staðinn fyrir að mynda íslenska fánann með spjöldum í stúkunni, þá myndum við andlitið á Jóni Baldvin. Þeir gefa leikinn í kjölfarið. Sólmundur Hólm skemmtikraftur Í slenska landsliðið í knattspyrnu byrjaði undankeppni EM af mikl-um krafti í vikunni. Öruggur 3-0 sigur á Tyrkjum á Laugardalsvelli á þriðjudaginn gefur liðinu og stuðn- ingsmönnum byr undir báða vængi og mikil stemning er í kringum liðið. Hvað þarf til þess að liðið tryggi sér farseðilinn til Frakklands árið 2016? Vissulega hjálpar það okkur að það er búið að fjölga þátttökuþjóðunum sem komast í lokakeppnina, en viljum við lenda í umspili líkt og liðið þurfti að gera fyrir lokakeppni HM? Lars Lag- erback og Heimir Hallgrímsson hafa talað um það að freista þess að lenda í tveimur efstu sætunum sem gefa beint sæti á EM. Við fengum spark- spekinga til þess að rýna í leiki lands- liðsins í undankeppninni. Ljósmynd/Hari Eftir fyrstu umferðina liggur ljóst fyrir að Ísland keppir við Tékkland og Holland um efstu tvö sætin. Tvö efstu sætin skila farseðli á EM í Frakklandi 2016 en þriðja sætið skilar liðinu að líkindum í umspil. Það liggur því fyrir að Ísland má ekki misstíga sig gegn minni spámönnum í riðlinum, Lettlandi, Kasakstan og Tyrk- landi. Ísland þarf helst sigur heima gegn Hollandi og Tékklandi en erfitt gæti reynst að sækja stig til þeirra á útivelli. Niðurstaða : Ísland nær öðru sæti í riðl- inum og keppir á EM í Frakklandi 2016. 52 fótbolti Helgin 12.-14. september 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.