Fréttatíminn - 12.09.2014, Page 62
Þar sem atvinnumennirnir hjóla er þér óhætt...
SPECIALIZED BICYCLES & COMPONENTS
KRÍA HJÓL GRANDAÐGARÐUR 7 101 REYKJAVÍK s.5349164
H austið er gott til að stunda tiltölulega rólegar fjalla-hjólreiðar í bæjarhlaðinu.
Flestar keppnir sumarsins búnar
og engin að setja pressu á þátt-
töku í þeim. Eldfjöll koma líka í veg
fyrir að menn séu mikið að þvæl-
ast á hálendinu og svo er líka sam-
félagslega ásættanlegt að kaupa
splunkuný grófmynstruð dekk und-
ir hjólið þegar fer að hausta. Þau er
hægt er að brúka alveg þangað til
það verður samfélagslega ásættan-
legt að setja nagladekkin undir við
fyrsta frost. Það þarf sem sé ekkert
að fara lengst upp á fjöll til þess að
nýta nýju dekkin. Þótt það sé auð-
vitað gaman – í það minnsta á leið-
inni niður. Í Reykjavík og á svæðinu
í kringum höfuðborgina er nefni-
lega að finna margar skemmtilegar
leiðir og stíga til að hjóla á. Heið-
mörkin er alltaf vinsæl, svæðið í
kring um Rauðavatn líka. Helgafell-
ið og Lækjarbotnarnir hafa komið
sterkt inn í sumar og það er hægt
að hjóla við Hvaleyrarvatn í Hafn-
arfirði. Jaðarinn svokallaði, svæðið
milli Bláfjallaafleggjarans og Heið-
merkur, er svo ein skemmtilegasta
og fjölbreyttasta leiðin sem hægt
er að finna hérna í bæjarhlaðinu.
Þó gleymist oft að í hjarta Reykja-
víkur höfum við bæði krefjandi og
skemmtilegt svæði með nokkrum
mismunandi leiðum. Öskjuhlíðina
sjálfa.
Fögur er hlíðin
Öskjuhlíðin er frábær fjallahjóla-
vin þar sem undanfarin ár hefur
myndast sú hefð að keppa um sjálf-
an Íslandsmeistaratitilinn. Það eru
því nokkrar leiðir sem hafa verið
„skornar“ í hlíðina þar sem fjallahjó-
lagarpar geta valið á milli. Hring-
irnir eru yfirleitt um 5 kílómetrar
samkvæmt keppnisstöðlum í grein-
inni. Nokkrar mismunandi „brautir“
er um að velja þótt þær reynist oft
erfitt að finna við fyrstu sýn. Þær
skarast líka þó oft, enda ekki um
það marga ferkílómetra að velja.
Auk þess sem hægt er að auka enn
á fjölbreytnina með því einfaldlega
að hjóla brautirnar öfugt.
Það er einfalt að mæta og hjóla
eftir stígunum í hlíðinni til að byrja
með. Færa sig svo rólega upp á
skaftið eða skaptið eftir því hvernig
stemningin er. Það eru nokkur hjól-
...eða svona næstum því – ef farið er varlega. Það þarf heldur
ekkert að leita langt yfir skammt til að finna skemmtilegar
fjallahjólabrautir í og við höfuðborgina þar sem þeir allra bestu
bæði hanna og keppa.
Á Strava.com
er að finna
brautina sem
notuð var í Ís-
landsmótinu í
fjallahjólreiðum
í Öskjuhlíðinni
ásamt fleiri
skemmtilegum
leiðum.
62 frítíminn Helgin 12.-14. september 2014