Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.09.2014, Síða 68

Fréttatíminn - 12.09.2014, Síða 68
68 ferðalög Helgin 12.-14. september 2014  Skíðaferðir TöluverT úrval í veTur Við verðum með veglegan sérkafla um vetrarferðir í blaðinu hjá okkur 19. september. Kaflinn verður hæfileg blanda af efni frá okkur auk kynninga á ýmsum vetrarferðum sem í boði eru þetta haustið. Við bjóðum upp á gæðaefni, ríflega 100.000 lesendur og gott snertiverð. Auglýsing í Fréttatímanum skilar árangri. Nánari upplýsingar veita Baldvin og Gígja í símum 531-3311 og 531-3312 eða með tölvupósti á baldvin@frettatiminn.is og gigja@frettatiminn.is Vetrarferðir Basel Í vor hóf easyJet að fljúga tvisvar í viku til borgarinnar Basel sem er á landamærum Sviss, Frakklands og Þýskalands. Lega borgarinnar er ekki eins góð upp á skíðaferðir að gera og til dæmis Genf en þangað flýgur easyJet einnig frá Keflavík. Þeir sem taka stefnuna frá Basel í suðaustur koma eftir rúmlega tveggja tíma akstur upp í þekkt skíðasvæði eins og Grindelwald og Andermatt. Bílaleigurnar við Basel flugvöll rukka um 30 til 40 þúsund krónur fyrir vikuleigu. Sá sem tekur skíðabúnað með sér í flugið hjá breska félaginu borgar aukalega um 12.500 krónur. Denver Borgin stendur við rætur Klettafjalla og þar eru mörg einstök útivistarsvæði og einhverjir bestu skíðastaðir í heimi. Frá flugvellinum í Denver tekur rúma tvo tíma að keyra að hinu þekkta skíðasvæði við Vail en aksturinn inn í Aspen tekur um helmingi lengri tíma. Icelandair flýgur oft í viku til Denver og þegar flogið er með félaginu til Bandaríkjanna má taka tvær töskur með sér. Það er því óþarfi að borga aukalega undir skíðin ef ein taska dugar fyrir allan annan farangur. Það er hægt að leigja millistóran bíl í Denver í viku fyrir um 25 þúsund krónur. Edmonton Það getur orðið kalt í Alberta fylki og vetraríþróttir eru í hávegum hafðar á þessum slóðum. Icelandair flýgur nokkrar ferðir í viku til Edmonton og innan borgarmarkanna má finna lítið skíðasvæði við Ski Valley. Þar er líka aðstaða fyrir þá sem vilja á skauta eða gönguskíði. Þeir sem ætla að dvelja á stórum skíðasvæðum hafa úr nægu að velja ef þeir eru til í að keyra í þrjá til sjö tíma. Ferðinni er þá oftast heitið í suður í átt til ólympíuborgarinnar Calgary. Þar í grennd eru nokkur svæði, til dæmis Lake Louise þar sem brettalandslið Kanada hefur æft og Kimberley Alpine Resort þar sem finna má lengstu upplýstu skíðaleið í N-Ameríku. Genf EasyJet flýgur frá Keflavík til Genfar á mánudögum og föstudögum í allan vetur. Lestarferðin frá flugvellinum inn á aðallestarstöðina í Genf tekur aðeins nokkrar mínútur og er ókeypis. Frá Genf er hægt að komast til fjölda svissneskra og franskra skíðasvæða á nokkrum tímum. Eins má bóka lestir og skíðapassa saman á Swisspasses.com og þar eru stundum veittir ágætis afslættir. Þeir sem vilja heldur leigja bíla mega reikna með að vikuleiga í janúar kosti á bilinu 30 til 35 þúsund krónur. München Frá Bæjaralandi er ekki ýkja langt í ljómandi skíðasvæði. Icelandair flýgur til München nokkrum sinnum í viku allt árið um kring sem hentar vel þeim sem vilja fara í stutta skíðaferð. Hægt er að komast á skíðin með almenningssamgöngum en vikuleiga á bíl kostar tæplega þrjátíu þúsund krónur og skíðagrind kostar um 1800 krónur á dag. Farþegar Icelandair borga 7.800 krónur fyrir að taka með sér skíðabúnað. Salzburg Frá miðjum desember og fram til loka febrúar munu vélar WOW air lenda á Mozart flugvellinum í Salzburg um kaffileytið á laugardögum. Það tekur um fimmtán mínútur að komast frá flugstöðinni niður á aðallestarstöð Salzburg og þaðan ganga svo lestir í allar áttir. Fjöldi skíðasvæða er í eins til þriggja tíma fjarlægð frá Salsburg. Til skíðasvæðisins í Zell Am See tekur lestarferðin til að mynda um tvo tíma og kostar um þrjú þúsund krónur. Þeir sem leigja minnstu tegund af bíl borga rúmar 30 þúsund krónur fyrir en skíðagrind kostar aukalega um 2.600 krónur á dag. Auk þessara flugleiða þá mun ferðaskrifstofan Vita vera með vikulegar ferðir til Verona í norðurhluta Ítalíu í vetur og hægt er að bóka aðeins flugsæti. Á heimasíðum margra ferðaskrifstofa er svo að finna úrval af pakkaferðum á skíðastaði út í heimi og þeir sem kaupa þess háttar þurfa sjaldnast að huga að ferðum til og frá flugvelli. Á Túristi.is geta þeir sem vilja út á eigin vegum gert verðsamanburð á bílaleigubílum og gistingu. Í vetur verður í fyrsta skipti flogið beint frá Keflavík til Edmonton í Kanada og sviss- nesku borganna Basel og Genf. Þar með fjölgar þeim möguleikum sem skíða- áhugafólk hefur á beinu flugi til borga í nágrenni við góð skíðasvæði. Þ að er töluvert úrval af skíðaferðum út í heim á vegum ferðaskrifstofanna í vetur, líkt og áður. Mest er framboðið af ferðum í austur- rísku Alpanna og eins í ítalska hlutann. Skíðaferðir til Colorado í Bandaríkjunum eru einnig á boðstólum. Þeir sem ætla á eigin vegum geta valið úr beinu flugi til nokkurra borga sem eiga það sameiginlegt að vera í nágrenni við góð skíðasvæði. Hér má sjá hvaða flugfélög fljúga til þessara flugvalla, hvað þarf að borga aukalega fyrir að taka skíðabúnaðinn með sér í flugið og hvernig hægt er að komast upp til fjalla. Kristján Sigurjónsson kristjan@turisti.is  Leiðin frá Keflavík í svissnesku Alpana hefur styst með beinu flugi easyJet til Basel og Genf. Ljósmynd/Switzerland Tourism/Christian Perret  Það tekur um korter að keyra úr miðborg Edmonton að Snow valley skíða- svæðinu. Það er tekur hins vegar mun lengri tíma að komast á stóru skíðasvæðin í Alberta fylki. Ljósmynd/Explore Edmonton Flogið í skíða- brekkurnar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.