Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 31

Læknablaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 31
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ Einn veldur, annar geldur - veldur sá er á heldur Ég var á fádæma góðum félagsfundi í Læknafélagi Reykjavíkur, LR, í vikunni. Eftirfarandi var efni fundarins: „Drög að nýjum heilbrigðislögum og lögum um embætti landlæknis". Fulltrúum þingflokkanna var boðið að sitja fundinn og mættu fulltrúar Framsóknarflokks, Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Framsögu höfðu fulltrúar okkar sem valist hafa til að um- segja drögin og síðan var orðið laust og fjölmargir tóku til máls. Almennt heyrði ég áhyggjutón frá læknum, ekki síst frá læknum Lanspítala, þar sem þeim fannsl heldur að sér vegið og þess ekki gætt nægjanlega að þeir bæru faglega ábyrgð. Stjórn Landspítala (sem á ekki lengur að heita háskóla- sjúkrahús, loksins er öllum orðið ljóst að spítalinn er það) voru ekki vandaðar kveðjurnar á fund- inum og enginn reis upp henni til varnar. Kvað svo hart að að blöskra mátti. Undir fundarlok töluðu stjórnmálamennirnir, þökkuðu góðar ábendingar og skýrðu sín sjónarhorn. Ég hrökk við þegar formaður fjárlaganefndar alþingis sagði sitt álit á vanda Landspítala sem mikið væri búinn að vera í umfjöllun utan sjúkrahússins og menn væru enn hér að bera sig undan, þetta væri innanhúss vanda- mál. Ha? Hva? Má þá ekki tala um það utanhúss? Mega bara starfsmenn hússins ræða máiin inn- anhúss? Ekki hefur manni virst sem heildarsam- kunda lækna, Læknaráð, finni mikinn hljómgrunn við sínar skoðanir. Hvernig getur það verið innanhússmál þegar stærsti vinnustaður heilbrigðiskerfisins, sem nán- ast er með einokunarrekstur á dýrasta hluta þjón- ustunnar, er á stundum líkastur logandi vígvelli? Allir landsmenn eru með almannatryggingum þjónustaðir frá þessum langstærsta spítala lands- ins sem stendur í harðvítugum illdeilum við suma dýrustu starfsmenn sína. Þetta eru starfsmennirnir sem með pennanum stofna til mestra útgjalda í heilbrigðiskerfinu og böndum verður ekki náð um þann kostnað nema með samvinnu við lækna. Þetta snýst um peninga og völd. Læknum finnst mörgum hverjum þeir valdalitlir og að ýmsir ntilli- stjórnendur kerfisins hefti gerðir þeirra. Þeir finna sig vanmáttuga jafnvel þannig að bitni á lækn- ingum og þegar til kastanna kernur verður einatt kostnaðaraukning vegna aðgerða sem ætlaðar eru til aðhalds, en þar sem yfirsýn skortir. Maður mér náinn hefur haldið því fram í mín eyru að furðulegt sé hve heft læknastéttin er að mörgu leyti. Hvernig stendur á því að ekki kemur meir frá þessum rjóma íslenskra menntamanna í þjóðfélagsumræðunni? Þegar stórt er spurt verð- ur oft fátt um svör. Ég heyrði þó á haustdögum útskýringu hjá reyndum félaga á því hvers vegna læknar létu fara með sig eins og óþekk börn. „Sko fyrst förum við í læknadeild, þar sem bókin er kennd. Eftir deildina í hæst launuðu sendlastörf spítalans. Þar erum við einskis virt. Þegar við erurn komin uppá annað hnéð og teljum okkur eitthvað hafa lært förum við til náms erlendis. Úti er okkur aftur pakkað saman og þá fáum við auk þess tungumál til að berjast við. Nýbúar vita vel að sviptur móðurmáli hljómar maður a.m.k. 20% vitlausari en reyndin er. Takist manni að reisa sig aftur, orðinn fullfleygur og miðaldra sérfræð- ingur er maður heppinn að komast aftur heim. Þangað kornin margtiltuktaður er lítill vandi að pakka manni enn einu sinni saman.“ Mér verður ekki oft orðvant en sat þegjandi og hnípin undir þessu. Svei mér þá ef þetta minnti ekki á konu í Kvennaathvarfinu. Aftur á fund LR, þar vaknaði með mér von um að þessi kollegi hefði alrangt fyrir sér. Einn af þeim læknum sem síðastur talaði um drög að nýjum heilbrigðislögum sagðist vera nýkominn heim frá námi og sérfræðingur á Landspítala. Tindrandi augum og afar ákveðinn notaði hann tækifærið og dró saman vanda Landspítalans: „ ... hann er ekki lækningavandi, ekki hjúkrunarvandi, heldur stjórnunarvandi“. Framsóknarmaðurinn sem sat á bekknum fyrir framan mig og stuttu áður hafði fengið að heyra að með því alræðisvaldi sem ráðherra heilbrigðismála fengi með nýju lög- unum væri engu líkara en flokkurinn héldi að hann sæti þar um alla tíð, læddi þá útúrsér, að það væri kannski rétt að bæta því í lög. Læknar! Við viljum og getum valdið þeirri ábyrgð sem við köllurn yfir okkur með starfsvali. Öxlum ábyrgð! Birna Jónsdóttir birnajon@simnet. is Höfundur er röntgenlæknir og gjaldkeri í stjórn LÍ. í pistlunun Af sjónarhóli stjórnar birta stjórnarmenn LÍ sínar eigin skoöanir en ekki félagsins. Læknablaðið 2007/93 123
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.