Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.2007, Qupperneq 33

Læknablaðið - 15.02.2007, Qupperneq 33
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VIÐTAL VIÐ HARALD BRIEM Mikið hagsmunamál fyrir konur í Bandaríkjunum hefur orðið nokkur umræða um réttmæti þess að hefja bólusetningu gegn papillomaveiru (HPV) sem veldur leghálskrabba- meinum í kjölfar þess að fylkisþingið í Michigan samþykkti lög í september 2006 sent kveða á um skyldubólusetningu allra 11 og 12 ára stúlkna. Búist er við að önnur ríki fylgi í kjölfarið. Vörtuveiran HPV smitast við kynmök og einmitt þess vegna hefur umræðan Ieiðst inn á ýmsar brautir til hliðar við hina stranglæknisfræðilegu. Próuð hafa verið bóluefni gegn HPV af lyfja- fyrirtækjunum Merck og GSK. Annað þeirra er Gardasil sem er þróað af lyfjafyrirtækinu Merck. Niðurstöður umfangsmikilla fjölþjóð- lega rannsókna sem m.a. rúmlega 700 íslenskar stúlkur tóku þátt í sýndu að bóluefnið veitir vörn gegn fjórum afbrigðum HPV veirunnar, en tvö þeirra valda flestum tilfellum leghálskrabbameins. Vörtuveiran HPV er algengasti kynsjúkdómur í Bandaríkjunum. Yfir sex milljónir einstaklinga smitast þar árlega af HPV og nærri tíu þúsund konur greinast á hverju ári með leghálskrabba- mein. Að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis er talið að 40-50% kvenna smitist af HPV fyrir 25 ára aldur. „Algengi smits lækkar svo eftir 30 ára aldur og eftir 45 ára aldur er algengið um 4%. Skýringin á þessu er væntanlega sú að líkaminn vinnur í flest- um tilvikum bug á sýkingunni og eldri konur því ónæmar fyrir veirunni,” segir Haraldur. Bandaríska alríkisnefndin um smitsjúkdóma hefur lagt til að hafin verði bólusetning 11-12 ára stúlkna þar sem bóluefnið er virkast ef það er gefið áður en einstaklingurinn byrjar að stunda kynlíf. Engar tillögur eru gerðar um að drengir verði bólusettir. Nefndin tekur ekki afstöðu til þess hvort bólusetning verði lögbundin þar sem slíkar ákvarðanir eru teknar af fylkisstjórnum hverri fyrir sig. Einsog áður sagði reið Michigan á vaðið í haust. „A Islandi er engin bólusetning lögbundin síðan hætt var að bólusetja gegn bólusótt á áttunda áratug síðustu aldar,” segir Haraldur Briem. „Pað hefur vissulega verið rætt að taka upp bólusetn- ingu gegn HPV þar sem vitað er að veiran getur valdið leghálskrabbameini. Aðrir smitsjúkdómar sem valda krabbameinum eru lifrarbólgur B og C og það má hiklaust segja að blað hafi verið brotið með því að hefja bólusetningu gegn lifrarbólgu B í þeim löndum þar sem hún er algeng til að koma í veg fyrir lifrarfrumukrabbamein.” Að sögn Haraldar veitir Gardasil og santbærileg bóluefni vörn gegn helstu tegundum vörtuveira sent valda leghálskrabbameinum. „Þetta er ekki fullkomin vörn en rnjög veigamikil,” segir hann. „Við höfum tekið þátt í fjölþjóðlegri rannsókn á þessu bóluefni sem lyfjafyrirtækið Merck stóð fyrir og m.a. yfir 700 íslenskar stúlkur tóku þátt. Fljótlega kom í ljós að þetta bóluefni, Gardasil, er mjög virkt gegn HPV-veirum og nú er búið að skrá það. Annað lyfjafyrirtæki, Glaxo, er einnig að koma með bóluefni með svipaða verkan. Þótt það sé líklegt að við tökum þetta upp í barnabólusetn- ingum er að mörgu að hyggja. Við getum ekki hætt að leita að krabbameini í leghálsi þar sem lyfið veitir ekki fullkomna vörn. Leit að leghálskrabba hefur reynst mjög árangursrík við að draga úr tíðni þessa krabbameins en bólusetning gæti bætt þann árangur enn frekar. Áður en slík bólusetning verð- ur gerð almenn þarf að gera ítarlega kostnaðar- rannsókn. Ég get ímyndað mér öllum 12 ára stúlk- um yrði boðin slík bólusetning áður en þær kom- ast á kynþroskaskeið, og það ætti að vernda þær að stórum hluta gegn þessu. Þetta er því gríðarlega rnikið hagsmunamál fyrir konur. Ef það er hægt að útiloka eina tegund krabbameins vegna þess að bólusetning kemur í veg fyrir smitsjúkdóminn sem veldur því og sé hann algengur, þá finnst mér alveg einboðið að taka upp bólusetningu. Þetta er hins vegar mjög kostnaðarsamt og þarf að hugsa vel hvernig staðið yrði að þessu.” Andstaða við bólusetningu I Bandaríkjunum hefur það sjónarmið verið ríkjandi að með því að taka upp bólusetningu gegn HPV sé verið að hvetja stúlkur til lauslœtis. Finnst þér það vera haldbœr rök? „Nei, engan veginn. Þetta er eins og að segja að með því að hvetja til notkunar smokksins sem vörn gegn HIV sé verið að hvetja til lauslætis. Það eru til hópar fólks víða um heim og hérlendis líka sem eru almennt á móti bólusetningum. Þetta fólk Hávar Sigurjónsson Læknablaðið 2007/93 125
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.