Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2007, Page 5

Læknablaðið - 15.03.2007, Page 5
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS II M R Æ fi A 0 G F R É T T I R 209 Af sjónarhóli stjórnar. Félagsgjöld LÍ Sigurbjörn Sveinsson 211 Byltingarkenndar breytingar í faginu - viðtal við Guðlaugu Þorsteinsdóttur geðlækni Hávar Sigurjónsson 218 Hreinlæti umfram allt, segir breski landlæknirinn Hávar Sigurjónsson 220 Um Læknadaga 2007. Rætt við Örnu Guðmundsdóttur formann Fræðslustofnunar LÍ Hávar Sigurjónsson 223 Um fjöll og firnindi í fimmtíu ár. Áhugamál Leifs Jónssonar Hávar Sigurjónsson 231 Endurlífgunarráð íslands og evrópska endurlífgunarráðið Helga Magnúsdóttir, Hildigunnur Svavarsdóttir 235 Doktorsvörn í Uppsölum. María Gunnbjörnsdóttir F A S T I R P I S T L A R 239 íðorð 196. Comorbidity Jóhann Heiðar Jóhannsson 241 Vísindaþing SKÍ og SGLÍ 246 Einingaverð og taxtar 249 Sérlyfjatextar 265 Ráðstefnur og fundir 263 Læknisleikur - Hugleiðing höfundar Guðmundur Andri Thorsson Ásmundur Sveinsson, myndhöggvari, lét eftir sig tvö af eftirtektarverðari húsum borg- arinnar, Ásmundarsal við Freyjugötu og Ásmundarsafn við Sigtún. Þau eru enn helg- uð myndlist, listunnendum til gleði og iista- mönnum til andagiftar. Eygló Harðardóttir (f. 1964) hefur tekist bæði á við hið merkilega kúluhús og nú nýverið sýndi hún í Listasafni ASÍ. Áður en safnið eignaðist Ásmundarsal, 1996, stóð til að Reykjavíkurborg innréttaði þar leikskóla sem ekki varð úr og áður hýsti það Arkítektafélagið. Ásmundur reisti það 1933 en fluttist þaðan 1942 þegar hann hóf að byggja í Laugardalnum. Eygló ígrundaði ekki einungis sögu hússins þegar hún sýndi þar nú í febrúar heldur einnig hönnun þess, en það varteiknað af Sigurði Guðmundssyni. Hún lýsir þeirri togstreitu sem hún skynjaði í byggingunni, sérstaklega á milli gryfjunnar og salarins. „Líkt og þetta væru samvaxnir tvíburar sem stefna í sitt hvora áttina." Þessi tilfinning fyrir rýmunum varð leiðarstef hennar í sýningunni Leiðsla sem einkennd- ist af tvenndum sem att var saman með einum eða öðrum hætti. Ólík verk tengdust innbyrðis eins og væru þau líffæri í sama líkama. í dagbjörtum sal á annarri hæð sýndi hún myndband úr fornum neðanjarðarborg- um Tyrklands, annað myndband sýndi eldri konu að leik með ungum dreng, teikningar og vatnslitamyndir gáfu til kynna endurtekn- ingu og speglun og á gólfinu var verkið sem myndin á forsíðu Læknablaðsins sýnir (án titils 2007). Verkið er flókið í samsetningu og lýsandi fyrir vinnuaðferð Eyglóar sem glímir við viðkvæm efni í leit að útfærslu. Ljós- myndin sem speglast í andstæðum litum, rauðum og grænum, er af höfði manns og það má ímynda sér að önnur sé tekin í dags- birtu en hin með innrauðri næturlýsingu. í hvirflinum má greina valbrá og útlínur hennar eru skornar út f tvígang í plastspjöld sem tyllt er á handrið fyrir ofan verkið. Ofan í sjáifar Ijósmyndirnar hefur Eygló skorið og fjarlægt lög sem einungis afhjúpa samskonar myndir, undir niðri er ekkert að finna nema samskon- ar yfirborð. Myndirnar hvila á svampbútum og lögum af þunnum, hálfgegnsæjum pappír. Með því að horfa á verkið og lesa eingöngu út úr hefðbundnu myndmáli verður uppsker- an takmörkuð, því efni og umhverfi skipta ekki síður máli. Markús Andrésson Læknablaðið 2007/93 177

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.