Læknablaðið - 15.03.2007, Side 37
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
Um félagsgjöldin
Því var lofað hér fyrir nokkrum blöðum,
þegar vöngum var velt yfir fulltrúalýðræðinu í
Læknafélags íslands, að næst yrðu félagsgjöldin til
umræðu. Félagsgjöldin hafa ekki síður verið milli
tanna lækna en aðstaða einstakra lækna til að hafa
áhrif á opinbera afstöðu LI og ákvarðanir, sem
teknar eru af stjórn þess og aðalfundi. „I hvað fara
félagsgjöldin?“ „Er nauðsynlegt að hafa þau svona
há?“ „Eru félagsgjöld annarra stéttarfélaga ekki
miklu lægri en okkar?“ Þetta eru sígildar spurn-
ingar og sjálfsagðar og eðlilegt að þeim sé svarað á
fullnægjandi hátt.
Eg minnist þessara spurninga frá aðalfundum
félagsins á níunda áratug síðustu aldar. Á þeim
tíma athugaði ég árgjöld LÍ í nokkur ár og bar
saman við árslaun heilsugæslulækna, en því starfi
gegndi ég þá eins og nú. Þá voru árgjöldin um
2,5% af föstum árslaunum en föst árslaun voru
mun minni hluti heildartekna heilsugæslulækna,
en nú gerist. Lætur nærri, að árgjaldið hafi þá verið
um eða innan við 1% af heildarlaunum læknanna.
Sé litið til tekna lækna nú á tímum skv. opinberum
skýrslum má gera ráð fyrir að árgjald til LÍ sé á
bilinu 0,5-0,7% fyrir þorra þeirra.
Hvað er svo fengið með þessu árgjaldi? Er
framganga stjórnar og starfsmanna LÍ viðunandi
fyrir þennan kostnað eða er ef til vill hægt að fá
meiru áorkað fyrir lægri upphæð. Þessari spurn-
ingu var svarað játandi haustið 1997 og farið í mjög
alvarlega og erfiða naflaskoðun á starfsemi LÍ.
Leiddi hún meðal annars til uppsagna og þegar frá
leið lækkunar árgjalda, sem enn sér stað. Árgjöld
hafa til að mynda lækkað að raungildi frá þeim
tíma og verið óbreytt nú í nokkur ár þrátt fyrir
nokkra verðbólgu. I annan stað er það mat okkar
Gunnars Ármannssonar framkvæmdastjóra, að
tími okkar fari að langmestu leyti í hagsmunagæslu
fyrir lækna og að önnur fagleg, menningarleg eða
enn önnur „gæluverkefni" eins og sumir kjósa að
orða það, séu hverfandi á verkefnalista okkar.
Hér gefur að líta köku sem sýnir skiptingu
árgjalds hvers læknis þannig að rekja má eftir
krónum, hvert tíund hans rennur. Þetta er birt án
ábyrgðar endurskoðanda félagsins enda unnið
af undirrituðum. Ekki skal lagður neinn dómur
á réttmæti þessarar skiptingar en hún fylgir fjár-
hagsáætlun félagsins eins og hún er ákveðin af
aðalfundi. Vonandi getur þetta kökurit orðið til-
efni til upplýstrar umræðu og skoðanaskipta um
fjármál félagsins.
Svæðafélög
6050 kr.
Annað 2400 kr.
Erlend samskipti 3100 kr.
Læknablaðið
4100 kr.
Fræðsla og menningarmál 2500 kr.
Húsnæði 3000 kr.
Afskriftir 2700 kr.
Skipting félagsgjalds til LÍ, alls 60.500 kr.
Sigurbjörn
Sveinsson
form@lis.is
Höfundur er formaður
stjórnar LÍ.
í pistlunun Af sjónarhóli
stjórnar birta stjórnarmenn LÍ
sínar eigin skoðanir en ekki
félagsins.
Læknablaðið 2007/93 209