Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.2007, Qupperneq 41

Læknablaðið - 15.03.2007, Qupperneq 41
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÁTRÖSKUN við. Það má líkja þessu við snúningsdyr þar sem sjúklingar fá varla tækifæri til að stíga inn, legutím- inn er orðinn svo stuttur að fólk nær vart áttum inni á deildum áður en það er útskrifað og svo á eitthvað annað að taka við en það gengur misvel að finna þau úrræði. Að mínu mati eru bráðapláss- in orðin of fá í dag og endurhæfingarúrræðin ekki næg. Stór þáttur í því hvað þessar breytingar hafa gerst hralt og ómarkvisst er að fjárhagslegar en ekki faglegar forsendur hafa ráðið of miklu við „hagræðingu“ og niðurskurð. En það er spurning hvað mikið sparast þegar upp er staðið og mikið verið gagnrýnt að kerfið í dag sé að ýta undir lang- vinn veikindi fólks.“ Mannauóurinn er mikilvægastur Guðlaug bendir reyndar á að vissulega sé verið að vinna að því að bæta þjónustuna við þá sem eru veikir utan spítalans. „Göngudeild geðdeildar hefur verið efld gríðarlega á síðustu árum og að- gengi verið bætt, þar eru komur á bráðaþjónustu geðdeildar iðulega 20-30 á sólarhring. Það hafa einnig verið að spretta upp heimaþjónustuteymi, bæði á vegum heilsugæslunnar í Reykjavík og Hugarafls. Nýlegt úrræði er einnig vettvangs- teymi sem er tengt endurhæfingarmiðstöðinni á Kleppsspítala en það veitir verst stöddu skjólstæð- ingum okkar þjónustu á heimavelli. Þetta útheimt- ir mikinn tíma og kostnað og á eftir að þróa frekar. Heilsugæslan er einnig að efla forvarnarstarf og er að ráða til sín sálfræðinga til að bæta frumþjónustu við fólk með geðraskanir." Guðlaug segir breytingar á undanförnum árum ekki birtast hvað síst í auknu vinnuálagi á geðlækna á geðdeildunum og göngudeildum. „Fyrir 15-20 árum voru geðdeildir mjög vel mannaðar af aðstoðarlæknum og gott framboð var af deildarlæknum sem ráku deildirnar meira og minna undir handleiðslu sérfræðinga. Þeir voru með mikla viðveru á deildunum en sérfræðing- arnir höfðu meiri tíma til að sinna handleiðslu, fræðistörfum og kennslu. Staðan í dag er gerbreytt hvað þetta varðar, deildarlæknum hefur fækkað og eru að auki mikið burtu vegna breyttra hvíld- artímaákvæða í kringum vaktir. Sérfræðingarnir vinna alla pappírs- og grunnvinnu á deildum og samtímis hefur álagið á móttökudeildirnar aukist og er orðið miklu meira en áður. Sem dæmi má nefna að frá því ég flutti heim frá Svíþjóð 1996 voru innlagnir á mánuði á mína deild oft 18-20 einstaklingar, en eru nú iðulega um 40 á mánuði. Ástæðan er fyrst og fremst sú að plássum hefur fækkað og róteringin þarf að vera miklu hraðari en áður. Okkur ber skylda til að veita bráðaþjónustu og erum í sífelldri pressu að losa pláss fyrir nýja sjúklinga. Þetta getur valdið ótímabærum útskrift- um og aukinni tíðni endurinnlagna skjólstæðinga. Daglegt álag er miklu meira en áður var en þó er rétt að taka fram að þetta er ekki bara vandi okkar hér á geðdeild Landspítala, heldur er þetta meira og minna vandi alls spítalans. Oft snýst dagurinn um alls kyns „akút-reddingar” og það er veikara fólk í göngudeildarmeðferð, fólk sem áður hefði verið lagt inn.” Ein af skýringum þess að framlag deildarlækna er minna en áður er eflaust sú að fyrir ekki alls löngu var tekin upp vinnutilskipun EES um 11 stunda hvíldartíma lækna milli vakta. „Þetta varð til þess að ef læknir tekur næturvakt þá á hann frí bæði virkan dag á undan og eftir vaktinni. Þegar fáir deildarlæknar þurfa að taka margar vaktir og allir þurfa sín frí þá gefur augaleið að viðvera á dagvinnutíma er stundum ansi lítil. Af þessum ástæðum lendir meginþungi dagvinnu á sérfræð- ingunum sem eru hér á þessum tíma. Við höfum reyndar haft nokkrar áhyggjur af því að mikið vaktaálag á deildalæknum bitni á starfsnámi þeirra því lækningar eru svo miklu meira en bara bráðalækningar. Það sem skiptir einnig máli í þessu sambandi og varðandi geðlækningar almennt er að þetta er ekki hátæknigrein í læknisfræði. Framfarir eiga sér ekki stað með sífellt flóknari tækjum og nýjum bún- aði. Það er því oft erfitt að fá aukin fjárframlög í reksturinn. Geðlækningar byggja fyrst og fremst á mannauðnum, menntun og reynslu sem fagmenn- irnir hafa aflað sér. Kostnaður vegna nýrra lyfja skiptir vissulega máli, en stærstu útgjöldin eru vegna annarra meðferðarþátta sem eru gríðarlega mikilvægir og snúa að viðtalsmeðferð, iðjuþjálfun, starfsþjálfun, búsetuþjálfun og fleira. Það er því lykilatriði ef vel á að takast til að geta boðið í gott starfsfólk, hlúa að því og gera starfsumhverfið sem mest aðlaðandi. Á þetta hefur skort veru- lega að mínu mati, og þar vegur láglaunastefna Landspítala þyngst, sálfræðingar fá hvergi lægri laun, iðjuþjálfar og félagsráðgjafar sömuleiðis og hjúkrunarfræðingar eiga alltaf í sinni kjarabaráttu. Þetta hefur valdið reglubundnum krísum vegna skorts á fagfólk, sem hverfur til annarra starfa eða sækir ekki um lausar stöður. Mér hefur fundist skorta verulega á skilning á því að háskólasjúkra- hús sem á að vera leiðandi í meðferð og þjónustu þarf að geta verið samkeppnisfært um besta fólk- ið.“ Aukin aðsókn er ekki aukin tíðni Aðspurð um hvort áhugi ungra lækna á geðlækn- ingum sem sérgrein sé alltaf jafn og nægt framboð á sérfræðingum þá dregur hún aðeins við sig svarið. Læknablaðið 2007/93 213
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.