Læknablaðið - 15.03.2007, Blaðsíða 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÁTRÖSKUN
„Flestir skjólstæðinga okkar eru ungar konur
á aldrinum 17-18 ára til 40 ára, börn og unglingar
fara í meðferð á Bugl en við erum í ákveðnu sam-
starfi við átröskunarteymi sem þar er starfandi. I
tengslum við göngudeildina rekum við dagdeild
fyrir átröskunarsjúklinga þar sem við getum tekið
á móti sex sjúklingum 5 daga vikunnar. Þar bjóðum
við hópmeðferðir af ýmsu tagi og máltíðir; morg-
unmat, hádegismat og kaffitíma. Ef við þurfum
að leggja sjúkling inn vegna lífshættulegs ástands
leggjum við hann inn á almennar bráðageðdeildir
þar sem lítil önnur meðferð fer fram en að end-
urnæra sjúklinga. Eftirspurn eftir þessari meðferð
er mikil og við sjáum margar mjög veikar ungar
konur sem eru búnar að þjást af átröskun í mörg ár
og eru illa á sig komnar bæði andlega og líkamlega.
Sumar hafa flosnað uppúr vinnu eða námi, fram-
haldsskóla eða háskóla því það fylgir þessu kvíði
og þunglyndi, einangrun og vanlíðan. Getan til að
stunda nám dvínar og það er í þessu slæma ástandi
sem þær koma til okkar.”
Guðlaug segir átröskun af þessu tagi vera skil-
greinda sem geðsjúkdóm þar sem um sé að ræða
hugsanabrengl sem valdi sjúklegri hegðun og
vanlíðan.
„Einstaklingurinn verður heltekinn af ótta við
að borða og verða feitur. Hann er í stöðugri megr-
un og leitar allra ráða til að reyna að létta sig. Hann
getur neitað sér um að borða og svelt sig vísvítandi
án tillits til þess hvaða afleiðingar það getur vald-
ið, en anorexia getur verið banvænn sjúkdómur.
Einstaklingur með bulimíu er oft í kjörþyngd en
er líka í stöðugri megrun sem leiðir til átkasta og
framkallar síðan uppköst í kjölfarið. Oft er talað
um brenglaða líkamsímynd hjá fólki með átrask-
anir. Viðkomandi finnst hann vera stór og feitur
jafnvel þó hann sé grindhoraður. Þráhyggjan að
léttast er stöðug og yfirþyrmandi og ekkert annað
kemst að en að losa sig við mat. Kannski verið í
þrotlausri líkamsrækt og misnotuð alls kyns lyf,
hægðalyf, brennslutöflur, bjúgtöflur, eða örvandi
fíkniefni eins og amfetamín og kókaín. Veikasti
hópurinn, þeir sem þjást bæði af átröskunum og
vímuefnafíkn, eru þeir sem erfiðast er að vinna
með því ef þeir eru í neyslu og fara í afeitrun bloss-
ar átröskunin upp og þá eru allar líkur á að þeir
falli aftur í neysluna."
Beina fræðslunni að fullorðnum
Er átröskun vaxandi vandamál?
„Það eru margar erlendar rannsóknir sem
benda til þess að þetta fari vaxandi þó rannsóknir
hafi sýnt að verstu tilfelli lystarstols og bulimíu
standi í stað. Það sem færist í vöxt eru eins konar
ódæmigerðar átraskanir þar sem unglingar og ungt
fólk beita afbrigðilegum aðferðum til að stjórna
þyngd sinni. Það getur verið mjög hættulegt og
leitt til alvarlegra átraskana þó stundum virðist
þetta einnig vera tímabundið ástand og fólk nær
að hætta þessu án sérstakrar meðferðar.”
Hvað er það sem hefur mest áhrifá ungar stúlk-
ur íþessu sambandi að þínu mati?
„Rannsóknir benda til að félagslegur þrýstingur
á að vera grannur sé mesti áhrifavaldurinn. Það er
sterk krafa á ungar stúlkur í dag að vera grannar.
Það eru ekki endilega fjölmiðlarnir sem er við að
sakast hér. Heldur ekki síður nærumhverfið, for-
eldra og fjölskylda, íþróttaþjálfarar, vinahópur
og bekkjarsystkini. Börn og unglingar geta verið
viðkvæm og breytingar í vinahóp eða umhverfi
geta valdið óöryggi og þau orðið upptekin af því
að ná sérstöku útliti til að fá viðurkenningu. Það
er mjög vandmeðfarið hvernig skilaboðum er
komið til barna og unglinga um hvað sé heilbrigt
og eðlilegt varðandi mataræði og hreyfingu. Það
er eins og sumir séu viðkvæmari en aðrir fyrir at-
hugasemdum um útlit sitt. Það virðist að minnsta
kosti greinilegt að mjög lítið þarf til að koma rang-
hugmyndum um útlit af stað hjá sumum en það er
líka jafnerfitt að snúa blaðinu við.“
Þarfmeiri frœðslu til telpna og ungra stúlkna?
„Eg tel að fræðslu og áróðri varðandi átraskanir
eigi fyrst og fremst að beina að fullorðna fólkinu
og þeim sem hafa náð þroska. Forvarnir sem snúa
að börnum eiga almennt að felast í því að ýta undir
styrkleika þeirra, bæta sjálfsmynd og félagsfærni,
ekki sjúkdómatali. Það er oftar en ekki að rótin
að átröskun hjá ungum konum liggur í viðhorfum
fullorðna fólksins sem jafnvel er sjálft of upptekið
af eigin þyngd og lífsstíl. Þar held ég að við getum
öll litið í eigin barm.“
m
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
SKURÐLÆKNAR
Óskað er eftir almennum skurðlækni/skurðlæknum til sumarafleys-
inga á handlækningadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Um
er að ræða tímabilið 1/6 - 15/9 2007, í 6 vikur eða skemur eftir
óskum umsækjanda. Umsækjendur skulu hafa fullgild réttindi í
skurðlækningum. Starfinu fylgir vaktskylda á handlækningadeild.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Skurðlæknafélags íslands.
Frekari upplýsingar veitir Shree Datye, forstöðulæknir deildarinnar í
síma 463 0100 eða shree@fsa.is
Læknablaðið 2007/93 217