Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2007, Page 50

Læknablaðið - 15.03.2007, Page 50
m GlaxoSmithKline AUGMENTIN (Amoxisillín og klavúlansýra). Ábendingar: Sýkingar af völdum sýkla, sem eru næmir fyrir lyfjablöndunni. Frábendingar: Ofnæmi fyrir beta-laktam lyfjum, t.d. penicillíni og cefalóspórínsam' böndum. Mononucleosis. Saga um gulu eða skerta lifrarstarfsemi, sem tengist gjöf á Augmentin eða skyldum lyfjum. Aukaverkanir: Við venjulega skömmtun lyfsins má búast við aukaverkunum hjá 5C'; sjúklinga. Aukaverkanir frá meltingarvegi svo sem linar hægðir, ógleði, uppköst og meltingartruflanir eru þó algengari ef hærri skammtar eru gefnir. Virðast þessar aukaverkanir algengari við gjöf þess* lyfs en við amoxicillíns eins sér. Algengar (>1%): Meltingarvegur: Linar hægðír. Húð: útbrot, kláði. Sjaldgæfar (0,1-1%): Blóð: Afturkræf hvítfrumnafæð, afturkræf blóðflagnafæð. Meltingarvegur: Ógleöi uppköst. Húð: Ofsakláði. Milliverkanir: Próbenecíð seinkar útskilnaðí amoxicillíns, en ekki útskilnaði klavúlansýru. Því er ekki mælt með samtímis gjöf próbenecíðs og Augmentin. Samtímis gjöf amoxicillífÞ og allópúrínóls getur aukið líkur á ofnæmisútbrotum I búð. Engar upplýsingar eru um samtímis gjöf Augmentin og allópúrinóls. Eins og önnur breiðvirk sýklalyf getur Augmentin dregið úr virkni getnaðac varnataflna. Varúð: Við skerta nýrnastarfsemi (kreatinínklerans < 30 ml/mín.) þarf að minnka skammta fyrir 500 mg +125 mg töflur o_g ekki á að nota 875 mg +125 mg töflur. Gæta skal varúðar hjá sjúklingun1 með skerfa lifrarstarfsemi. Vegna aspartaminnihalds mixtúrunnar skal gæta varúðar hjá sjúklingum með fenýlketonureu. lenging á prótrombín tíma hefur verið lýst í einstaka tilvikum hjá sjúklingum sen1 fá Augmentin. Þegar blóðþynningarlyf eru gefin samtimis skal viðeigandi eftirliti vera framfylgt. Augmentin skal ekki nota ef grunur leikur á einkyrningasótt (mononucleosis) þar sem útbrot sem líkjast miS' lingaútbrotum hafa verið tengd notkun amoxicillíns við þennan sjúkdóm. Langvarandi notkun getur einnig valdið fjölgun ónæmra sýkla. Notkun á meðgöngu:Rannsóknir á æxlun hjá dýrum (músum of rottum með skömmtum allt að tíföldum þeim skömmtum sem notaðir eru hjá mönnum), þar sem Augmentin var gefið í inntöku og í æð, hafa ekki leitt i Ijós fósturskaða. Takmarkaðar upplýsingar eru fyh: hendi um notkun Augmentin á meðgöngu hjá konum. Eins og á við um öll lyf, skal forðast notkun á meðgöngu nema læknir telji notkun nauðsynlega. Brjóstagjöf Augmentin má gefa konum með barn * brjósti. Að því undanskyldu að hætta getur verið á að það hvetji til ofnæmis, vegna útskilnaðar örlitils af lyfinu i móðurmjólk, eru ekkí þekkt nein skaðleg áhrif á börn á brjósti. Skammtastærðir handafuH’ orðnum: Skammtar Skammtar fara eftir aldri, líkamsþunga og nýrnastarfsemi sjúklingsins, og einnig því hve alvarleg sýkingin er. Eftirfarandí skammtar eru gefnir upp eftir innihaldi amoxicillíns/klavúlansýru nema þegar skammtar eru tilgreindir sem einstakt innihaldsefni. Skammtastærðir handa fullorðnum: Vægar og miðlungs slæmar sýkingar 500/125mg 2svar á dag eða 3svar á dag; EÐA 875/125mg 2svá á dag. Alvarlegar sýkingar (þ.á m. langvinnar eða endurteknar þvagfærasýkingar og sýkingar f neðri loftvegi) 1-2x500/125mg 3svar ádag; EÐA 875/125mg 3svar á dag Æskilegt er að gefa lyfið við uppha’ máltíðar. Skammtastærðir handa börnum: Mixtúra 80/11,4 mg/ml (1 ml mixtúra = 80 mg amoxicillín): Dagsskammtur 25/3,6 mg/kg - 45/6,4 mg/kg. Athugið: Fullbúin mixtúra hefur 7 daga geymsluþo1 ísskáp (2-8‘C). Afgreiðslutilhögun R, S fyrir stungulyf. Greiðslutilhögun 0. Pakkningar og hámarksverð 1. des 2006: Mixtúruduft 80+11,4 mg/ml: 70 ml verð 2524 kr„ 50+12,5 mg/ml: 80 ml 1721 kr. Töfldf 500+125 mg: 20 stk 2888 kr„ 875+125 mg: 12 stk 2612kr. Stungulyf 500+100 mg/hgl: 10 hgl 3628 kr„ 1000+200 mg/hgl: 5 hgl 3114 kr. Handhafi markaðsleyfis og framleiðandi GlaxoSmithKline. Dags endurskoðunar texta 020306 og 130206. Sjá nánar á www.serlyfjaskra.is

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.