Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.2007, Side 53

Læknablaðið - 15.03.2007, Side 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÁHUGAMÁL Hauki Árnasyni lækni og Magnúsi fóstra sínum Hallgrímssyni. Verkefniö fólst í því að setja niður mælingapósta fyrir danska landmælingamenn sem beittu þríhyrningamælingum og þurftu því gott skyggni fjalla á milli. „Okkar mælingamaður var lítill karl en eitilharður og stundum þurfti hann að liggja í tjaldi allt upp í tvær vikur áður en létti til og hægt var að mæla. Sumarið áður, rigningasumarið mikla 1955, lá sá sem lengst beið skyggnis, 72 sólarhringa á fjallstindi austan Heklu. Okkar maður hafði stundað mælingar á Grænlandsjökli og fengið viðurnefnið Hansúaq, Hans stóri, Grænlendingarnar voru spaugsamir. Með Hans sumarið 1956 var íslenskur strákur, Jökull Jakobsson, og þeim kom greinilega vel saman þrátt fyrir langdvalir í tjaldinu. Við félag- arnir þurftum bara að koma þeim á staðinn og sjá til þess að þeir yrðu ekki hungurmorða meðan þeir biðu eftir heiðskíru veðri. Við höfðum tvo Veapon jeppa til umráða og gátum farið flestra okkar ferða milli þess sem við færðum þeim Hansúaq og Jökli kost og gengum á ýmis fjöll lil að setja niður mælingapósta. Þetta sumar byggðist upp líkamlegt þrek og úthald sem ég tel mig hafa búið að allar götur síðan og aldrei hef ég stigið fæti inn í líkams- ræktarstöð.” Gengid fyrir björg Þann 5. apríl 1989 komst Leifur ásamt félaga sínum Magnúsi Hallgrímssyni lífs af úr mannraun sem teljast verður ein magnaðasta lífsreynsla sem sögur fara af á síðari tímum. Þeir höfðu þá gengið við fimmta mann í skála Jöklarannsóknarfélagsins á Grímsfjalli í Vatnajökli og hugðu á göngu yfir jökulinn norður að Svartárkoti í Bárðardal. Aðrir ferðafélagar voru Hallgrímur sonur Magnúsar, mikill fjallamaður sem síðar kleif Everest sem frægt er orðið, Helgi Ágústsson og Alfred Frederiksen. Skálinn er staðsettur á hábungu Grímsfjalls og í rauninni aðeins stuttan spöl frá brúninni þar sem Grímsfjall gnæfir þverhnípt nær 300 metra yfir Grímsvötnum. Er þetta einn dulmagnaðasti stað- ur á landinu að sögn þeirra sem þar hafa komið. Leifur ritaði lýsingu á þessari viðburðaríku ferð í Grímsfjall í Vatnajökli. Efrýnt er í myndina sjást tvœr mannverur á hengj- unni ofan á fjallinu. Þar fórtt þeir félagar Leifur og Magnús fram af 1989. Ljósm. Magnús Tumi Guömundsson. Læknablaðið 2007/93 225

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.