Læknablaðið - 15.11.2007, Blaðsíða 57
Ásta Dís Óladóttir
dósent á Bifröst.
Hávar
Sigurjónsson
U M R Æ Ð
U R O G FRÉTTIR
MEISTARANÁM
Meistaranám í stjórnun
heilbrigðisþjónustu
- viðtal við Ástu Dís Óladóttur á Bifröst
Háskólinn á Bifröst mun frá og með næstu ára-
mótum bjóða upp á nýtt meistaranám í stjóm-
un heilbrigðisþjónustu. Umsjón með náminu
hefur Ásta Dís Óladóttir dósent á Bifröst og
framkvæmdastjóri InPro, og segir hún að stjóm-
endanámið hafi verið verið í undirbúningi í all-
nokkurn tíma. „Þessi hugmynd sem nú er orðin
að veruleika kviknaði fyrir alvöm fyrir tveimur
árum síðan. Hún þróaðist svo frekar þegar ég
heimsótti Falck Health Care og CityAkuten í
Stokkhólmi og hitti þar fólk sem hefur menntað
sig í stjómun heilbrigðisþjónustu," segir Ásta
Dís.
„Til þess að skilgreina nánar fyrirkomulag
og námsframboð var skipað fagráð valinna
einstaklinga sem þekkja vel til heilbrigðisþjón-
ustu bæði á Islandi og í öðrum löndum. Þau
eru Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunarforstjóri
Sóltúns, Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri
í Heilbrigðisráðuneytinu, Birgir Jakobsson, for-
stjóri Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi, Gísli
Einarsson yfirlæknir og fv. framkvæmdastjóri
kennslu, vísinda og fræða á Landspítala, María
Ólafsdóttir, heilsugæslulæknir Miðbæ og jafn-
framt yfirlæknir InPro og Sveinn Guðmundsson,
yfirlæknir Blóðbankans."
Námið er byggt upp með 12 námskeiðum,
auk lokaverkefnis. „Verkefnið getur bæði verið
rannsóknarritgerð um tiltekið efni, sem og viða-
mikil viðskiptaáætlun um stofnun fyrirtækis á
heilbrigðissviði og/eða að veita nýja heilbrigð-
isþjónustu á tilteknum markaði. Nemendur
vinna verkefnið í samráði við leiðbeinanda sinn.
Kennarar eru innlendir og erlendir sérfræðingar
á sviði heilbrigðismála og viðskipta. Með góðu
samstarfi við erlenda háskóla verður tryggt að
námið standist fullkomlega alþjóðlegan sam-
anburð."
Aðspurð um þörfina á slíku námi segir Ásta
Dís að þjónusta á sviði heilbrigðismála sé ört vax-
andi þáttur í nútíma samfélagi sem nái m.a. til
hefðbundinna lækninga og umönnunar á sjúkra-
húsum og stofnunum. „Margháttuð fyrirbyggj-
andi starfsemi er hluti af heilbrigðisþjónustu
og til þess ætluð að bæta lífsgæði landsmanna.
Fyrirséð er að einkarekin þjónustufyrirtæki á
þessu sviði munu í vaxandi mæli hasla sér völl
hér á landi, en einnig munu þau nýta þekkingu
sína og reynslu og bjóða hliðstæða þjónustu í
öðrum löndum. Heilbrigðisþjónusta verður hluti
af alþjóðlegri þjónustustarfsemi og miðað við þá
reynslu sem íslenskir aðilar hafa aflað sér á skyld-
um sviðum, s.s. á lyfja- og stoðtækjamarkaði, þá
LÆKNAblaðið 2007/93 789