Læknablaðið - 15.09.2008, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREINAR
Birna Jónsdóttir
birna@rd.is
Höfundur er röntgenlæknir og
formaður Læknafélags íslands.
Icelandic Medical
Association a
professional organisation
and a Trade Union. IMA's
collective bargaining for
90 years
Birna Jónsdóttir is a
radiologist and the
chairman of the icelandic
medical association.
Læknafélag íslands
fagfélag og stéttarfélag.
Kjarabarátta lækna í 90 ár
Læknafélag íslands hefur í 90 ár verið bæði fag-
félag og stéttarfélag. Háleit og metnaðarfull sið-
ferðileg markmið setjum við okkur með eigin siða-
reglum og læknaeiðnum og þetta eigum við sam-
eiginlegt með alþjóðasamfélagi lækna. Menntun
lækna sem annar hornsteinn félagsins hefur bæði
farveg gegnum Fræðslustofnun á Læknadögum
og á síðum Læknablaðsins. Kjarasamningsgerð
sem er meginþáttur í starfi stéttarfélagsins er skipt
milli LI og Læknafélags Reykjavíkur.
LÍ var stofnað á félagsfundi í LR14. janúar 1918.
Fyrstu þrír mánuðirnir einkenndust af kjarabar-
áttu samkvæmt því sem formaður skýrir frá í
Læknablaðinu. Þegar ekkert miðar í úrbótum á
laun skoraði stjórn félagsins á félagsmenn að segja
upp og voru undirtektir góðar. Þetta var í fyrsta
sinn í sögu íslenskrar kjarabaráttu sem hópupp-
sagnir voru ráðgerðar sem baráttutæki. Til sama
ráðs var gripið árið 1966 og voru undirtektir lækna
framúrskarandi góðar. Kjarasamningsgerð við
ríkið fyrir hönd sjúkrahúss- og heilsugæslulækna
er verkefni LÍ. Samningurinn sem við gerðum í
sumar felldu félagsmenn í atkvæðagreiðslu og eru
það nokkur tíðindi. Það þarf að vera læknum full-
ljóst að gagnaðili ætlar sér að skerða kjör lækna.
Vissulega eru grunnlaun lækna skammarlega lág
og kaupgetan hefur rýrnað í ár. Hvað af samnings-
bundnum réttindum erum við tilbúin að láta af
hendi fyrir grunnkaupshækkun? Umsamin rétt-
indi dagsins í dag hafa kostað baráttu og það er í
verkahring LI að standa vörð um samninginn.
Sigurður E. Sigurðsson læknir, fyrrverandi
formaður samninganefndar, segir í pistlinum
„Kjaramál í nútíð og framtíð" sem hann skrifaði
vorið 2006 í Læknablaðið að nýloknum samningi,
það skoðun sína að almennt þekki læknar kjara-
samninginn illa. Þar bendir hann meðal annars sér-
staklega á þýðingu svokallaðra viðbótarþátta sem
hann segir að skapi rými fyrir einstaklingsbundin
laun. Kjarasamningur er lögum samkvæmt samn-
ingur um lágmarkslaun. Það kann hins vegar að
vera tvíbent ef mikil áhersla er lögð á það að ein-
staklingar semji beint við vinnuveitanda um stór-
an hluta launa, sérstaklega þegar gagnaðili hefur
feikimikla yfirburði. Ef það er raunin að læknar
almennt þekkja samninginn illa, á sama tíma og
yfirgnæfandi meirihluti spítalarekstrar er á einni
hendi og sama gildir um rekstur heilsugæslu-
stöðva, í hvernig samningsaðstöðu eru menn?
Eykst kynbundinn launamunur eða minnkar með
einstaklingsbundnum samningum?
í dag krefst unga fólkið styttri vinnutíma en
viðgengist hefur hjá læknum. Krafa er um meira
jafnvægi milli vinnu og fjölskyldutíma og er það
vel. Unga fólkið vill læra læknisfræði, slæst um
að læra bæði hér heima og erlendis. Við líðum
ekki læknaskort á íslandi, meðan 1100 læknar eru
starfandi heima er það miklu frekar umhugsunar-
efni að um 500 íslenskir læknar eru erlendis við
nám og störf. Ákveðinn atgervisflótti viðgengst og
margir okkar fremstu lækna eiga ekki möguleika
á stöðu í okkar þröngu aðstæðum. Eg hef alvöru
áhyggjur af atgervisflótta.
Hvert stefnum við í samningsgerð í dag?
Skurðlæknar gerðu sinn kjarasamning í sumar.
Munu fleiri félög lækna feta þessa braut eða ætlum
við að standa saman? Krafan er hækkun launa og
stytting vinnutíma. Afköstin þurfa að halda sér og
gleymum ekki mikilvægi rekstrar- og vinnuum-
hverfis í þessu samhengi. I sumar var gerður nýr
samningur milli ríkisins og heimilislækna um
sjálfstæðan rekstur lækna á heilsugæslustöðvum.
Hvenær sjáum við nýtt umhverfi í spítalarekstri?
Við þurfum nýjan spítala í nýju húsi, búnað og
tæki sem svara kröfum tímans. Ef frumvarp til
laga um sjúkraskrá verður samþykkt í haust skap-
ast grundvöllur til nýsköpunar ef fjármagn verður
sett í nauðsynlega uppbyggingu.
Kjaramál verða þungamiðja í umfjöllun að-
alfundar 26. september næstkomandi. Víllausir
horfðu íslenskir læknar fram á við í janúar 1918,
frostaveturinn mikla, ekki var þjóðfélagsástandið
bjart þá: Utanaðkomandi vá, bæði löng heims-
styrjöld og spænska veikin. Læknar væntu sér
mikils af LI og stóðu saman, hvers væntum við í
dag?
Heimild
ísberg JÓ. Líf og lækningar, íslensk heilbrigðissaga. Reykjavík
2005.
LÆKNAblaðið 2008/94 579