Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2008, Page 17

Læknablaðið - 15.09.2008, Page 17
Lyf skipta sköpum! Lífsgæði okkar felast einna helst í þeirri öflugu heilsuvernd sem við njótum. Að okkur hlúir vel menntað og sérhæft heilbrigðisstarfsfólk sem býr yfir þekkingu og færni til heilsueflingar, lækninga og líknar. Traustur aðgangur að góðum lyfjum á ríkan þátt í að gera okkur kleift að búa við það heilsufarslega öryggi sem við þekkjum og teljum sjálfsagt hér á Vesturlöndum. Framfarir á sviði læknavísinda hafa verið samtvinnaðar öllum þeim merku áföngum sem náðst hafa I lyfjavísindum. Víst má telja að lyf komi við sögu í flestum þeim tilvikum sem sjúklingur þarf á læknisaðstoð að halda og nær bata. Öll helstu lyf sem við þekkjum urðu til é síðustu öld og nú á 21. öldinni er þekking á sviði lífvísinda að opna nýjar dyr að betri og markvissari meðferð sjúkdóma og forvörnum gegn þeim. Það er á þessum vettvangi sem frumlyfjafyrirtækin starfa. FRUMTÖK Samtök framleiðenda frumlyfja

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.