Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.09.2008, Qupperneq 24

Læknablaðið - 15.09.2008, Qupperneq 24
■ FRÆÐIGREINAR RANNSÓKNIR sambærilegt við önnur lönd en þetta hlutfall hefur í erlendum rannsóknum verið frá 56% í 80% (17, 19, 27). Áhöldum var beitt hjá 25% kvenna sem fæddu um leggöng. Skýring þessa gæti falist í því að reynt er að forðast langdregið annað stig fæð- ingar hjá konum með ör á legi og þannig minnka líkur á legbresti. Tíðni legbrests hérlendis meðal kvenna sem reyna fæðingu eftir fyrri keisaraskurð (1%) er lægri en í Hollandi (1,7%) (19) en hærri en í Bandaríkjunum (0,7%) (17) og í Kanada (0,3%) (13). Taka verður tillit til þess að í síðarnefndu rannsóknunum hafði hluti kvennanna áður fætt um leggöng en sýnt hefur verið fram á það minnki líkur á legbresti við tilraun til leggangafæðingar eftir keisaraskurð um 60% (19, 33). Með því að skoða hlutfall kvenna sem reynir fæðingu um leggöng eftir fyrri keisaraskurð í erlendum rann- sóknum og bera saman við tíðni legbrests í sömu rannsóknum sést greinileg fylgni þar á milli (13, 17, 19). Legbrestur er sjaldgæfur en alvarlegur fylgikvilli sem getur verið lífshættulegur fyrir móður og barn. Hætta er á fósturköfnun, legnámi, skaða á þvagfærum, þörf á blóðgjöf og andláti móður og/eða barns (35). Ef legbrestur verður skiptir máli að inngrip í fæðingu sé gert án tafar til að forðast alvarlega fylgikvilla móður og barns (15). Legbrestur er algengari hjá konum sem reyna fæðingu eftir fyrri keisaraskurð en meðal kvenna sem fara í fyrirfram ákveðinn endurtekinn keisara- skurð (35). Ekki hefur verið sýnt fram á að hægt sé að sjá fyrir hvaða konur eru líklegri en aðrar til að fá legbrest (36). Rannsóknir á legbresti hafa sýnt að framköllun fæðingar með lyfjum og/eða notkun lyfja til að auka samdrátt legs í fæðingu geti aukið líkur á legbresti (15,33, 35). I rannsókn þessari var fæðing aðeins framkölluð hjá 9% kvennanna sam- anborið við að heildartíðni framkallaðra fæðinga á Landspítala háskólasjúkrahúsi var 14,8% árið 2005 (37). Aðrir þættir sem í erlendum rannsóknum hafa sýnt aukna hættu á legbresti eru hár aldur móður, fleiri en einn fyrri keisaraskurður, hiti eftir fyrri keisaraskurðaðgerð og stuttur tími milli fæð- inga (38,39). Burðarmálsdauði í rannsókninni var 5,4 %o en á árunum 2001 til 2005, sem er það tímabil sem rannsóknin tók yfir, var burðarmálsdauði á Islandi 5,2%o. Sú viðmiðun að ráðleggja konum að fæða um leggöng eftir einn fyrri keisaraskurð virðist því ekki leiða til aukins burðarmálsdauða hér á landi. Vegna fárra tilfella í rannsóknirtni var ekki hægt að skoða hvort munur væri á burðarmáls- dauða eftir því hvort kona gerði tilraun til fæð- ingar um leggöng eða ekki. Niðurstöður erlendra rannsókna um þetta eru misvísandi (17,40). Rannsóknir hafa sýnt fram á fjölda áhrifaþátta þess hvort ein kona sé líklegri en önnur til að takast tilraun til leggangafæðingar. I kjölfarið hafa verið búin til flæðirit með þessum áhrifaþáttum sem eiga að nýtast til að segja til um líkur hverrar konu. Mörg þeirra hafa verið ófullnægjandi en önnur hafa lofað góðu (41-43). Meðal áhrifaþátta eru hækkandi aldur og aukin þyngd móður sem minnka líkur á því að tilraun til fæðingar um leggöng beri árangur (38, 41, 44). Sömu sögu er að segja um framköllun fæðingar, fyrri sögu um misræmi fósturs og grindar, óeðlilegt fósturrit og ef kona hefur gengist undir fleiri en einn keisara- skurð (13, 19, 41). Einnig hefur verið sýnt fram á áhrif hækkandi fæðingarþyngdar (44) og var það staðfest í okkar rannsókn. Til viðbótar sýndum við fram á að konur sem fæddu sitt fyrsta barn með valkeisaraskurði vegna óhagstæðrar legu fósturs voru marktækt líklegri í næstu fæðingu til að takast fæðing um leggöng heldur en konur sem höfðu farið í valkeisaraskurð vegna annarrar ábendingar. Þetta er í samræmi við erlendar nið- urstöður (45). Ekki tókst að sýna fram á marktæk tengsl annarra þátta í rannsókninni við árang- ursríka tilraun til leggangafæðingar, þar á meðal hvort fæðing væri framkölluð eða ekki. Niðurlag Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að fæðing um leggöng sé raunhæfur valkostur fyrir konur sem fætt hafa eitt barn með keisaraskurði. Mikilvægt er þó að á þeim stað sem fæðing fer fram séu möguleikar fyrir hendi til að gera keis- araskurð án tafar. Heimildir 1. U.S. Department of Health and Human Services. Office of Disease Prevention and Health Promotion. Healthy People 2010, objective 16-9, page 16-30. Washington DC: U.S. Govemment Printing Office; 2000. Available from: http://www.healthypeople.gov/Document/pdf/Volume2/ 16MICH.pdf. 2. Myers SA, Gleicher N. A successful program to lower cesarean-section rates. N Engl J Med 1988; 319:1511-6. 3. Porreco RP, Thorp JA. The cesarean birth epidemic: trends, causes, and solutions. Am J Obstet & Gynecol 1996; 175: 369- 74. 4. Chamberlain G, Steer P. ABC of labour care: operative delivery. BMJ 1999; 318:1260-4. 5. Morrison JJ, Rennie JM, Milton PJ. Neonatal respiratory morbidity and mode of delivery at term: influence of timing of elective caesarean section. Br J Obstet Gynecol 1995; 102: 101-6. 6. Dónaldsson SF, DagbjartssonA, Bergsteinsson H, Harðardóttir H, Haraldsson Á, Þórkelsson Þ. Öndunarörðugleikar hjá nýburum sem fæðast með valkeisaraskurði. Læknablaðið 2007; 93: 675-9. 7. Taylor LK, Simpson JM, Roberts CL, Olive EC, Henderson- Smart DJ. Risk of complications in a second pregnancy following caesarean section in the first pregnancy: a population-based study. Med J Aust 2005; 183: 515-9. 8. Black C, Kaye JA, Jick H. Cesarean delivery in the United 596 LÆKNAblaðið 2008/94
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.