Læknablaðið - 15.09.2008, Side 30
■ FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKNIR
Tafla I. Botnlangabólga í börnum, yfirlit yfir komudag miöaö viö lengd einkenna.
Komudagur Alls Bólga Rof Eölilegir
2006 Á 1. degi einkenna 30 27 1 3
Á 2. degi einkenna 41 35 7 6
Á 3. degi einkenna 9 6 0 3
Eftir þrjá daga 17 12 5 5
Vantar gögn um einkennalengd 3 2 1 1
Komudagur Alls Bólga Rof Eölilegir
1996 Á 1. degi einkenna 27 18 0 9
Á 2. degi einkenna 43 37 1 6
Á 3. degi einkenna 18 16 6 2
Eftir þrjá daga 11 8 6 3
Vantar gögn um einkennalengd 1 1 1 0
Tafla II. Botnlangabólga í börnum, yfirlit yfir tímalengd frá inniögn til aögerðar hjá þeim
börnum sem greindust með rofinn botnlanga.
Komudagur Rof Aögerö innan 10 klst. Aðgerö eftir 10 klst. Vantar gögn um klst. Á ekki viö, fjarlægöur kaldur.
2006 Á 1. degi einkenna 1 1 0 0 0
Á 2. degi einkenna 7 7 0 0 0
Á 3. degi einkenna 0 0 0 0 0
Eftir þrjá daga 5 4 0 0 1
Vantar gögn um einkennalengd 1 0 1 0 0
Komudagur Rof Aögerö innan 10 klst. Aðgerð eftir 10 klst. Vantar gögn um klst. Á ekki viö, fjarlægöur kaldur.
1996 Á 1. degi einkenna 0 0 0 0 0
Á 2. degi einkenna 1 1 0 0 0
Á 3. degi einkenna 6 5 0 1 0
Eftir þrjá daga 6 3 1 2 0
Vantar gögn um einkennalengd 1 0 0 1 0
innan fjögurra klst. (mynd 3). Meðalbiðtími frá
innlögn til aðgerðar árið 2006 var 6,2 klst. en 1996
var hann 5,0 klst., miðgildisbiðtími var 4 tímar í
báðum hópum og t-próf á dreifingu biðtíma sýndi
ekki tölfræðilegan mun (p=0,10). Upplýsingar um
biðtíma vantaði í fjórum tilfellum árið 2006 en í
átta tilfellum árið 1996.
Legutími sjúklinga árið 2006 var á bilinu 1-17
dagar með miðgildið 2 dagar en árið 1996 var
legutíminn á bilinu 1-25 dagar með miðgildið 3
dagar. Munur á legutíma reyndist tölfræðilega
marktækur (p<0,01).
Umræða
Aldur barnanna í okkar rannsókn var sambæri-
legur við erlendar rannsóknir (6, 9-13). Fá börn
voru þó af yngsta hópnum og yngstu bömin voru
þriggja ára og tveggja ára á rannsóknarárunum
tveimur. Botnlangabólga er sjaldgæf í börnum
undir tveggja ára aldri og hefur komið fram til-
gáta um að það geti verið vegna þess að á þessum
aldri eru þau með trektlaga botnlanga og neyta
fæðu sem er ólíkleg til að valda stíflim (6). Af og
til heyrist þó af tilfellum þar sem börn innan við
mánaðargömul og jafnvel allt niður í fyrirbura
fá botnlangabólgu (12). í kringum 5% allra barna
sem fá botnlangabólgu eru á aldrinum 2-5 ára en
nýgengið hækkar eftir það, ásamt því að greining
verður auðveldari vegna bættrar tjáningargetu
barna. Hækkun verður smám saman á nýgenginu
á aldrinum 6-12 ára en á táningsárum verða loks
langflest tilfelli botnlangabólgu (6,11,13).
í þessari rannsókn reyndist hlutfall óbólginna
botnlanga sem fjarlægðir voru vegna gruns um
botnlangabólgu nálægt 20% bæði árin 2006 og
1996. Þetta hefur verið talið viðunandi hlutfall og
í raun eðlilegt miðað við greiningargetu nútíma
læknisfræði (3-5). Þetta bendir til að á Barnaspítala
Hringsins sé greining botnlangabólgu sambærileg
við erlend viðmið. Þessar niðurstöður eru í
samræmi við rannsóknir sem gerðar hafa verið
á Norðurlöndum (13, 14). Niðurstöðurnar benda
einnig til þess að ekki sé beðið of lengi með að
senda börnin í aðgerð. Af þeim 14 sjúklingum þar
sem botnlanginn reyndist rofinn þurfti aðeins einn
sjúklingur að bíða lengur en 10 tíma eftir aðgerð.
Þetta er sambærilegt bæði árin 2006 og 1996.
Athygli vekur að ekki kom fram rof í barni yngra
en 6 ára þrátt fyrir að greining sé erfiðari eftir því
sem tjáningargeta barnanna er minni (6).
Allir botnlangar sem fjarlægðir voru úr börnum
árin 2006 og 1996 og komu inn í rannsóknina voru
sendir í meinafræðigreiningu, nema einn. Gott
samræmi reyndist milli mats skurðlæknis á bólgu
í botnlanganum í aðgerð og þess sem fram kom í
meinafræðisvari. Af þeim botnlöngum sem fjar-
lægðir voru árið 2006 reyndist mat skurðlæknis
rangt í aðeins eitt skipti. í rannsókn sem gerð var
1984 var farið yfir sýnagler úr öllum botnlöngum
sem sendir voru til rannsóknar á Rannsóknarstofu
Háskólans í meinafræði, frá öllum aldurshópum
og stöðum á landinu. I þeirri rannsókn kom í ljós
að um þriðjungur tekinna botnlanga hafi verið
eðlilegur en taka verður tillit til þess að í þeirri
rannsókn voru allir aldurshópar og því möguleiki
á fleiri óvissutilfellum frá eldri aldurshópum (8).
í rannsókn Raja Rabah frá 2006 var farið yfir vefj-
agler frá öllum teknum botnlöngum á tveggja ára
tímabili í Children's Hospital of Michigan (5). í
þeirri rannsókn var þó ekki tekinn fram greining-
armunur milli sérfræðinga eða munur milli kynja.
Þó var talið mikilvægt að senda alltaf botnlanga í
vefjagreiningu þó hann virtist óbólginn því nokkr-
um sinnum kom fram önnur ástæða kviðverkja
með meinafræðigreiningu (5).
602 LÆKNAblaðið 2007/93