Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.09.2008, Qupperneq 42

Læknablaðið - 15.09.2008, Qupperneq 42
FRÆÐIGREINAR TILFELLI MÁNAÐARINS Svar við tilfelli mánaðarins Einkenni konunnar eru óvenjuleg blanda geð- lægðar og 3. persónu heyrnarofskynjana eins og sést geta við síðkominn geðklofa. Konan hafði þó ekki haldvillur (delusions) eða hugsanatruflanir eins og algengt er í þeim sjúkdómi (1). Heymar- og aðrar ofskynjar eru einnig ekki óþekktar í geðhvarfasýki (2). Skoðun leiddi hins vegar í ljós málstol, líflegri sinaviðbrögð í vinstri útlimum og skerta hreyfingu hægra megin í andliti, sem ekki eru dæmigerð einkenni geðklofa en gefa í staðinn vísbendingu um vefræna orsök. Því var fengin seg- ulómun af höfði (mynd 1) sem sýndi 5x4x5 cm stórt æxli í vinstra ennisblaði (frontal lobe) heilans. Ákveðið var að fjarlægja æxlið með skurðaðgerð þar sem hluti vinstra ennisblaðs var numinn á brott. Vefjagreining sýndi að um krabbamein var að ræða, nánar tiltekið glioblastoma multiforme. Eftir aðgerð var beitt geislameðferð en konan lést átta mánuðum síðar úr sjúkdómnum. Til eru margs konar illkynja heilaæxli en flest þeirra gefa svipuð einkenni klínískt, sem oftast stafa af þrýstingsáhrifum æxlisins og ífarandi vexti í nálægan heilavef. Algengustu illkynja æxlin sem upprunnin eru í heilavef eru stjarnfrumna- æxli (astrocytoma) sem skiptast í 4 gráður (I-IV) eftir útliti frumna (3). Glioblastoma multiformae (gráða IV), eins og í þessu tilfelli, er þeirra algeng- ast og illvígast. Illkynja heilameinvörp eru þó mun algengari en æxli upprunnin í heilavef, oftast frá lungna- eða brjóstakrabbameini (3). Æxlið og bjúg- ur í aðlægum heilavef hækkar innankúpuþrýst- ing, sem veldur höfuðverk, ógleði, uppköstum og skertri meðvitund, en höfuðverkur er fyrsta einkenni heilaæxlis í um 35 % tilfella (3). ífarandi vöxtur æxlis getur valdið flogum og brottfalls- einkennum, en flog koma fram hjá um þriðjungi sjúklinga með heilaæxli (3). Brottfallseinkenni ráðast af staðsetningu æxlis, æxli ofan tjalds (supratentoral) gefa oft hreyfi- og skyntruflanir, sjónsviðsskerðingu og málstol en æxli í afturkúpugróf (fossa cranii posterior) valda heila- taugalömun og truflun á starfsemi litla heila (3-4). Æxli í ennis- og gagn- augablaði (temporal lobe) eru hins vegar oft „þögul", þ.e. æxli í þeim geta orðið stór áður en staðbundin einkenni koma fram (5). Vel er þekkt að heilaæxli geti valdið geðrænum einkennum. Tengslunum var fyrst lýst á 17. öld af Giovanni B. Morgagni, sem krufði unga stúlku sem látist hafði eftir nokkurra mán- Mynd 1. Segulómun afhöfði sem sýniræxlií í vinstra ennisblaði. í kringum æxlið er áber- andi bjúgmyndun og hiiðrun á miðlínu. aða óráð og ofbeldiskennda hegðun og fundust nokkrir hnútar í heilanum (6). Á miðöldum var ein kenning um orsök geðsjúkdóma að steinn væri í heilanum („stone of madness"), sem „læknar" þess tíma reyndu jafnvel að fjarlægja (7). Heilaæxlum sem eingöngu gefa geðræn ein- kenni hefur áður verið lýst og stundum orðið töf á réttri greiningu og meðferð (5). Algengi heila- æxla hefur verið rannsakað á meðal geðsjúkra, en í rannsókn þar sem sneiðmynd af höfði var gerð á vistmönnum geðsjúkrahúss fundust þrjú æxli í 123 sjúklingum, en allir þrír sjúklingarnir reyndust hafa óeðlilega taugaskoðun (8). Því er sjaldgæft að heilaæxli valdi eingöngu geðrænum einkennum og flestir hafa auk geðrænna einkenna einhver af klassískum einkennum, svo sem höfuðverk eða flog. Geðræn einkenni eru algengust hjá sjúkling- um með æxli í ennisblaði. Algengust eru rugl- ástand og vitræn hrömun en þar á eftir hegð- unar- og lyndistruflanir (mood disturbances). Ofskynjanir eru sjaldgæfari (8). Áberandi með síðarnefndu einkennin eru stöðug versnun með tímanum. Þetta tilfelli sýnir að heilaæxli geta valdið geðrænum einkennum. Erfitt getur verið að greina þessi æxli og rétt greining og meðferð taf- ist. í þessu tilviki var sjúklingurinn lagður inn á geðdeild en nákvæm taugaskoðun þar leiddi til réttrar greiningar. Þakkir Tómas Guðbjartsson, Hulda Brá Magnadóttir, Engilbert Sigurðsson, Halldór Benediktsson og röntgendeild Landspítala. Heimildaskrá 1. Howard R, Rabins PV, Seeman MV, Jeste DV and the Intemational Late-Onset Schizophrenia Group. Late-Onset Schizophrenia and Very-Late-Onset Schizophrenia-Like Psychosis: An Intemational Consensus. Am J Psychiatry 2000; 157:2 :172-178. 2. Baethge C, Baldessarini RJ, Freudenthal K, Streeruwitz A, Bauer M, Bschor T. Hallucinations in bipolar disorder: characteristics and comparison to unipolar depression and schizophrenia. Bipolar Disord 2005: 7:136-145. 3. Buckner JC, Brown PD, O'Neill BP, Meyer FB, Wetmore CJ, Uhm JH. Central Nervous System Tumors. Mayo Clin Proc. 2007; 82(10): 1271-1286. 4. Behin A, Hoang-Xuan K, Carpentier AF, Delattre JY. Primary brain tumors in adults. Lancet 2003; 361:323-31. 5. Maurice-Williams RS, Dunwoody G. Late diagnosis of frontal meningiomas presenting with psychiatric symptoms. BMJ. 1988; 296:1785-1786 6. Jarquin-Valdivia AA. Psychiatric Symptoms and Brain Tumors. A brief Historical Overview. Arch Neurol 2004: 61:1800-1804. 7. Babiloni F, Babiloni C, Carducci F, Cincotti F, Rossini PM. ,The stone of madness' and the search for the cortical sources of brain diseases with non-invasive EEG techniques. Clin Neurophysiol 2003; 11:1775-1780. 8. Ron MA. Psychiatric Manifestations of Frontal Lobe Tumours. Br J Psychiatry 1989; 155:735-738. 614 LÆKNAblaðið 2008/94
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.