Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.2008, Side 50

Læknablaðið - 15.09.2008, Side 50
■ UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR L í 9 0 Á R A Lækningaminjasafn á Seltjarnarnesi Varðveisla og miðlun „Hlutverk Lækningaminjasafns íslands er að vera miðstöð lækn- ingaminja og heilbrigðissögu á íslandi og með því hefur safninu verið fengið mun víðfeðmara hlutverk en áður var, meðan það var í rauninni eingöngu safn um sögu lækna á íslandi og komst tæplega á legg sem slíkt. Breytingin sem verður á hlutverki safnsins gerist með því að menntamálaráðuneytið og Þjóðminjasafnið gerast stofnaðilar að safninu ásamt Læknafélagi íslands, Læknafélagi Reykjavíkur og Seltjarnarnesbæ sem gegnir lykilhlutverki í rekstri og staðsetningu safnsins," segir Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir sem ráðin var í byrjun þessa árs safnstjóri Lækningaminjasafns Islands. Aðspurð um safnaeignina segir Anna Þorbjörg að hún sé svo nýkomin til starfa að hún hafi ekki enn haft tækifæri til að skoða munina sem eru í eigu safnsins. „Þetta hefur allt verið í læstri geymslu á vegum Þjóðminjasafnsins en meginuppistaðan að safnaeigninni er safn Jóns Steffensen sem hann gaf Læknafélagi íslands á sínum tíma. Mitt fyrsta verk verður því að kynna mér safnaeignina og öðlast yfirsýn yfir hana." Gera má ráð fyrir að á næstu mánuðum komist skriður á framkvæmdir við byggingu Lækninga- minjasafns í túnfæti Nesstofu á Seltjamarnesi en nú em tíu ár síðan efnt var til samkeppni um teikn- ingu að nýju safnahúsi og verður í meginatriðum byggt eftir upprunalegu verðlaunatillögunni. Höf- undar hennar eru Yrki arkitektastofa ehf. og hefur að sögn Önnu Þorbjargar verið aukið verulega við geymslurými safnsins í kjallara en útlit hússins og skipulag jarðhæðar verða hin sömu. Anna Þorbjörg segir að safninu sé ætlað að bera ábyrgð á vörslu lækningaminja í landinu og það feli í sér samstarf og samvinnu við fjölmarga aðila. „Þar má nefna félög og starfsgreinar innan heilbrigðisgeirans, söfn um allt land sem geyma minjar er snerta þessa sögu og það er rétt að taka skýrt fram að Lækningaminjasafninu er ekki ætlað að varðveita hér á Seltjarnarnesi alla hluti er tengjast heilbrigðissögu þjóðarinnar. Margt af þeim gripum er vel varðveitt í söfnum nú þegar víða um landið. Lækningaminjasafnið ber hins- vegar ábyrgð á því að þessir munir séu varðveittir og sögunni haldið til haga. Það má segja að þetta Hávar sé ilin opinbera safnastefna því fleiri sérsöfn, Siauriónsson eins og til dæmis Hönnunarsafnið í Garðabæ og Flugminjasafnið á Akureyri, gegna sams konar ábyrgðar- og varðveisluhlutverki án þess að allir munir séu dregnir á einn stað. Lykilhugtakið er samvinna á milli safna og allra þeirra sem koma að varðveislunni." „Ég sé fyrir mér að safninu hér á Seltjarnarnesi verði skipt á milli Nesstofu og Lækningaminja- safnsins í nýja húsinu. í Nesstofu verði áherslan á sögu lækninga og hin nánu tengsl á milli sögu lækninga í landinu og íbúaþróunar. Það má ekki gleyma því að Nesstofa var í þjóðbraut þegar farið var á milli Bessastaðastofu, Nesstofu, Kvosarinnar og Viðeyjarstofu á bátum fremur en ökutækjum. Breytingarnar sem verða á samgöngum, bú- setuþróun, heilbrigði og stjómarfari haldast þétt í hendur við lækningasöguna og stundum er erfitt að segja hver hefur leitt hvem. I nýju bygging- unni verði hreyfanlegri sýningar og meira tekið á afmörkuðum sögulegum þáttum. Nefna má sögu bólusetninga, þróun hjálpartækja, meðferð aldr- aðra og ýmislegt annað þar sem rakin er sagan frá upphafi eins og við þekkjum hana og fram til dagsins í dag. Hvað segir þetta um okkar samfélag og þróun þess? Hvernig var til dæmis búið að geð- sjúkum fyrir 200 árum og hvernig er það í dag? Vissulega getur maður séð fyrir sér að með slíkum sýningum megi vekja máls á umræðu um ákveðin mál en þar verður samt að stíga mjög varlega til jarðar því höfuðskylda safns er að gæta hlutleysis þótt afhjúpa megi sögulegar staðreyndir. Söfn eiga ekki að reka áróður heldur eru þau fræðistofnanir þar sem almenningur á að geta treyst á hlutlægni og hlutleysi." í nýja safnahúsinu er einnig gert ráð fyrir fund- arsal þar sem ýmsir möguleikar bjóðast. „Það er hægt að hugsa sér að halda málþing um ýmis mál- efni, bjóða upp á menningarviðburði í tengslum við sýningar safnsins og jafnvel setja upp smærri sýningar til hliðar við aðalsýningu þegar það hentar." Anna Þorbjörg segir að vissulega kalli aukin starfsemi á aukið fjármagn en til hvers að reka lif- andi safn ef þar er ekkert líf? „Nútímasafn kallar á samstarf margra aðila og lifandi lækningaminjasafn hlýtur að höfða til margra aðila sem starfa á vettvangi heilbrigðis- og lækninga. Læknafélag íslands og Þjóðminjasafnið eru augljósir samstarfsaðilar en einnig má nefna 622 LÆKNAblaðið 2008/94

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.