Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2008, Page 55

Læknablaðið - 15.09.2008, Page 55
U M R Æ Ð U R 0 G Á H F R É T T I R U G A M Á L Gísli Ólafsson. afrekum en segir þó að hann nái að halda ungu strákunum við efnið og auðvitað hefur hann unnið öll verðlaun í sínum eigin aldursflokki. „Það er flokkurinn réttum megin við fertugt," segir hann og bætir því við að hjólreiðar séu reyndar ein af þeim íþróttagreinum þar sem mest fjölgunin sé í eldri aldursflokkunum. Ein helsta keppni ís- lenskra hjólreiðamanna er Bláalónskeppnin sem haldin var sunnudaginn 8. júní. Þar hefur lið Gísla og félaga verið sigursælt, vann bæði árin 2005 og 2006 en í fyrra urðu þeir að láta eftir fyrsta sætið en stefndu ótrauðir á að endurheimta það í ár. „Bestu strákamir, landsliðsmennirnir, em með eitt lið og það er auðvitað erfitt að vinna þá en við höfum gaman af þessu. Nú í ár vorum við næstum búnir að vinna, en ég datt í fyrri hluta keppninnar og náði mér ekki almennilega á strik eftir það, en ef mér hefði gengið betur hefðum við væntanlega unnið liðakeppnina." Laxveiði eða íþróttahótel Talið berst að kostum og göllum einstakra íþrótta- greina og Gísli segir hjólreiðar henta sérstaklega vel fyrir þá sem eiga við stoðkerfisvandamál að stríða. „I mínum félagahópi eru nokkrir fyrrver- andi boltakallar, sem hafa farið illa í hnjám og geta til dæmis ekki hlaupið. En þeir geta hjólað alveg endalaust. Fyrir okkur sem stunda hjólreiðar er hinsvegar nauðsynlegt að styrkja stoðkerfið með lyftingum eða skokki, til að halda beinunum sterk- um. Þegar maður er kominn á minn aldur er sér- staklega mikilvægt að stunda lyftingar samhliða hjólreiðunum til að viðhalda vöðvamassanum." Gísli segir mikilvægt þegar fólk byrjar að hjóla að hjólið sé rétt uppsett. „Það er nokkuð algengt að hæðin á hnakknum sé röng og því fylgja alls konar vandamál, verkir í hnjám og mjóbaki og meiri þreyta en ella." Hann sýnir mér myndir af sérstaklega hönnuðum reiðhjólasætum sem þeir félagarnir nota. „Þetta eru sæti sem eru sérhönnuð fyrir hjólreiðamenn og eru geysiþægileg, eng- inn þrýstingur á kynfæri, blöðruhálskirtil eða rófubein. Svo skiptir líka máli að vera í réttum buxum. Með réttan útbúnað er hægt að hjóla nánast endalaust og satt að segja er algengast að hjólreiðamenn fái ennis- og kinnholubólgur vegna mikilla loftskipta við öndunina og menn eru svo lengi að í einu." Að meðaltali segist Gísli hjóla í 10-12 klukku- stundir á viku, stundum meira ef keppni er framundan. Hann hjólar á þrenns konar hjólum, LÆKNAblaðið 2008/94 627

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.