Læknablaðið - 15.03.2011, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREIN
Alexander Kr.
Smárason
alexanders@fsa.is
Höfundur er fæðingalæknir
á kvennadeild Sjúkrahússins
á Akureyri og dósent við
heilbrigðisvísindastofnun
Háskólans á Akureyri.
Protect maternity
services in lceland
Obstetrician at the
Department of Obstetrics,
Akureyri Hospital and senior
lecturer at the Institution of
Health Science Research,
University of Akureyri
Stöndum vörð um
b arneignaþ j ónustu
Á síðustu Læknadögum var haldið málþingið:
„Hvernig verður þjónustan við fæðandi
konur á íslandi í framtíðinni"? Fjallað var
um breytingar á fæðingaþjónustu á síðustu
áratugum og framtíðina í ljósi þróunar og
krafna um sparnað í heilbrigðiskerfinu. Ný
skýrsla Ljósmæðrafélagsins1 var kynnt, en í
henni er yfirlit yfir grunnþætti bameigna-
þjónustunnar; meðgönguvemd, fæðingahjálp og
sængurlegu í heilbrigðisumdæmum landsins, og
spáð í framtíðina. Gildi meðgönguverndar fyrir
allar konur er óumdeilanlegt og heimaþjónusta
ljósmæðra í sængurlegu hefur reynst vel. Skýrslan
er mikilvægt innlegg fyrir ákvarðanatöku um
úrbætur í framtíð.
í nýjustu skýrslu frá Fæðingaskráningunni2
kemur fram að árið 2009 fæddust 5015 börn. Flest-
ar fæðingar þar á undan voru 1960 en þá fæddust
4979 börn. Á þessum 50 ámm hefur frjósemi
fallið úr 4,2 í 2,1 böm á konu. Burðarmálsdauði
sem er nú aðeins 1/8 af því sem hann var, eða
þrjú dáin börn af 1000 fæddum (2006-2010, >28
vikur), hefur aldrei verið lægri og ber vitni um
góða heilbrigðisþjónustu. Á ámnum 1972 til 2009
fækkaði fæðingastöðum úr 25 í átta en fæðingum
á Landspítala fjölgaði úr 1476 í 3500. Fyrir utan
suðvesturhornið og Akureyri (446) stóðu eftir
útverðirnir á ísafirði (54), í Neskaupsstað (82) og
Vestmannaeyjum (40) með opnar skurðstofur og
síðan voru ljósmæðrafæðingar á Sauðárkróki (15)
og Höfn (4). Heimafæðingar sem höfðu nær lagst
af um 1990, voru 86, álíka margar og fyrir 40 ámm.
Merkur áfangi náðist árið 2007 þegar landlækn-
ir gaf út leiðbeiningar um val á fæðingarstað.3 Þar
em skilgreind þjónustustig og hvað eigi að vera til
staðar miðað við áhættuþætti bamshafandi konu.
í samræmi við leiðbeiningarnar er allnokkrum
konum nú ráðlagt að fæða á Akureyri eða í
Reykjavík þar sem eru barna- og fæðingalæknar.
Ákvarðanir um lækkað þjónustustig vegna
spamaðar, eins og lokun skurðstofu á Selfossi
og í Keflavík á síðasta ári, verða að vera faglegar
og út frá landfræðilegum aðstæðum eins og
vetrarveðrum á Hellisheiðinni. Ef þjónusta verður
einnig skert á útvarðarstöðunum mun það
valda miklu óöryggi þungaðra kvenna á stórum
landsvæðum og enn fleiri en áður yrðu að fara
að heiman frá fjölskyldum sínum þegar líður að
fæðingu. Slíkt mundi eflaust leiða til enn meiri
röskunar á búsetu í landinu. Það er því mjög
mikilvægt að halda áfram fæðingum á þessum
stöðum en til þess þarf fjármagn og fagfólk.
Þarna sinna ljósmæður ásamt skurðlæknum
fæðingahjálp en búast má við að með aukinni
sérhæfingu verði enn erfiðara að fá þá til að sinna
fæðingahjálp. Æskilegast væri að fæðingalæknum
fjölgaði svo að þeir væru tiltækir á öllum
fæðingastöðum.
í leiðbeiningum landlæknis er lögð áhersla á
upplýst val tilvonandi móður. Til þess verður hún
að þekkja þjónustustigið en ekki síður þarf hún
upplýsingar um útkomu fæðinga á viðkomandi
stað, til dæmis hverjar líkurnar eru á að frumbyrja
sem er að eignast sitt fyrsta bam og er í sjálfkrafa
sótt fæði eðlilega. Fagrýni á fæðingum eins og sjá
má í skýrslu fæðingaskráningarinnar ætti að vera
hjálpleg við þessa ákvarðanatöku. Virk fagrýni er
einnig nauðsyn með fjölgandi heimafæðingum.
Lögð er áhersla á að fæðingastaður eigi greiðan
aðgang að öðrum fæðingastað á viðeigandi hærra
þjónustustigi og til þess þarf sjúkraflutninga.
Þegar vegalengdir eru miklar verður oft að nota
flugvélar í stað sjúkrabifreiða sem annars eru alltaf
fyrsti kostur. Vegna faglegra og landfræðilegra
aðstæðna er sjúkraflug rekið frá Akureyri. Árlega
eru um 25 flug með þungaðar konur, oftast vegna
þess að talið er að yfirvofandi sé fyrirburafæðing
og 12-15 vegna veikra nýbura (1/5 frá Grænlandi).
Hvort tveggja kallar á flókna ákvarðanatöku og
skipulagningu. Við sem stöndum að sjúkraflugi
frá Akureyri erum stolt af leiðbeiningum sem
sérfræðingar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
og Landspítala sömdu og birtu árið 20064 og
teljum að þær hafi stuðlað að markvissari sjúkra-
flutningum. Til þess að flutningstími sé sem
stystur er lífsnauðsynlegt að flugvöllurinn í
Reykjavík verði áfram sem næst sjúkrahúsi allra
landsmanna.
Heimildir
1. Bameignarþjónusta á íslandi 2010 - uppbygging og ftam-
tíðarsýn á breytingatímum. Ljósmæðrafélag íslands 2010.
2. Skýrsla frá fæðingaskráningunni fyrir árið 2009. Ritstj:
Bjamadóttir RI, Garðarsdóttir G, Smárason AK, Pálsson G.
Kvennasvið og bamasvið, Landspítala 2010.
3. Leiðbeiningar um val á fæðingarstað. Landlæknisembættið
2007.
4. Verklagsleiðbeiningar um flutning þungaðra kvenna og
nýbura / ungra bama með sjúkraflugi. www.sjukraflug.is.
LÆKNAblaðið 2011/97 139