Læknablaðið - 15.03.2011, Síða 12
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
Nygengi
7 -i
1970-74 1975-79 1980-84 1985-89 1990-94 1995-99 2000-04 2005-09
Tímabil
Mynd 1. Aldursstaðlað
nýgengi eistnakrabbameins
á hverja 100.000 karla
á íslandi áfimm ára
tímabilum frá 1970 til 2009.
Upplýsingar um tímabilið
1970-1999 erufengnar úr
heimild nr. 9, en tímabil
pessarar rannsóknar er
merkt með svörtum lit.
með skurðaðgerð og eru það oftast meinvörp í
aftanskinueitlum.
Lífshorfur sjúklinga með eistnakrabbamein
hafa batnað verulega síðustu áratugi.9 Er það helst
að þakka fjöllyfjameðferð með cisplatínum en hér
á landi var byrjað að nota slíka meðferð tiltölulega
snemma eftir uppgötvun þeirra, eða í lok áttunda
áratugarins.9-10 Samkvæmt erlendum rannsóknum
má nú gera ráð fyrir lækningu næstum allra
sem greinast með staðbundið eistnakrabbamein
og hjá rúmlega 90% sjúklinga með útbreitt
eistnakrabbamein.11
Gerðar hafa verið nokkrar klínískar rannsóknir
á eistnakrabbameini hér á landi. í Læknablaðinu
hafa birst rannsóknir á SFK12 og E-SFK13 tilfellum
sem greindust á tímabilinu frá 1970 til 1990. Einnig
hefur birst ítarleg úttekt erlendis á vefjagerð
þessara æxla10 og lífshorfum karla sem greindust
1970-2002.9 Engin þessara rannsókna hefur náð
til tilfella sem greinst hafa eftir 2002, en margt
bendir til þess að vitund og þekking almennings
hafi aukist vegna meiri umræðu um sjúkdóminn.
Spurningin er síðan hvort þetta hafi leitt til þess
að karlar greinist fyrr með eistnakrabbamein og
hvort lífshorfur þeirra hafi vænkast enn frekar.
Markmið þessarar rannsóknar var því að
rannsaka karla sem greindust hér á landi á tíma-
Fjöidi
sjúklinga
Mynd 2. Aldursdreifing sjúklinga með eistnakrabbmein á íslandi 2000-2009.
Sáðfrumukrabbamein og ekki-sáðfrumukrabbamein eru sýnd hvort um sig og saman.
bilinu 2000-2009 með sérstakri áherslu á nýgengi,
stigun og lífshorfur og bera saman við niðurstöður
eldri rannsókna.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin er afturskyggn og nær til allra
íslenskra karla sem greindust með eistna-
krabbamein á Islandi frá 1. janúar 2000 til
31. desember 2009. Flokkunarkerfi Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar fyrir illkynja æxli í
eistum var haft til hliðsjónar við vefjafræðilega
flokkun æxlanna (ICD-10, C62). Alls greindust 102
æxli í eistum á þessu tímabili og voru 97 þeirra
upprunnin í kímfrumum eistans en fimm voru
eitilkrabbamein (lymphoma) og voru þau tilfelli
útilokuð frá rannsókninni. Blönduð æxli af SFK og
E-SFK voru flokkuð sem E-SFK.
Sjúklingar voru fundnir með leit í tveimur
aðskildum skrám, í gagnagrunni Rannsóknarstofu
Landspítala í meinafræði og í Krabbameinsskrá
Krabbameinsfélags íslands.2 Reiknað var út
aldursstaðlað nýgengi á rannsóknartímabilinu,
en upplýsingar um mannfjölda fengust frá
Hagstofu íslands. Klínískar upplýsingar fengust
úr sjúkraskrám, meinafræðisvörum og rafrænu
sögukerfi Landspítala. Einnig fengust upplýsingar
úr sjúkraskrám sjúkrahúsanna á Akureyri, Akra-
nesi og Heilbrigðisstofnun Suðumesja.
Skráðar voru tæplega 40 breytur í tölvuforritið
Excel, meðal annars með hvaða hætti sjúklingar
greindust, helstu einkenni og hversu langur tími
leið frá því fyrstu einkenni gerðu vart við sig uns
greining var gerð. Einnig voru skráðar mælingar
á æxlisvísum, vefjagerð æxlis, stærð, staðsetning,
meinvörp og vöxtur í æðar. Upplýsingum var
safnað saman og þær skoðaðar með aðstoð
tölvuforritsins Excel. Sjúklingar voru síðan stigaðir
samkvæmt kerfi Boden- Gibb14 en það hefur verið
notað lengst af hér á landi og auðveldar því
samanburð við eldri rannsóknir. Sjúklingar voru
einnig stigaðir með TNM-stigunarkerfinu (TNM:
tumor, nodes, metastases: æxli, eitlar, meinvörp)
en þær upplýsingar eru ekki gefnar upp.
Rannsóknartímabilinu var skipt í tvö fimm
ára tímabil og þau borin saman. Einnig vora
niðurstöður bornar saman við eldri rannsóknir á
eistnakrabbameini á íslandi sem áður hafa birst
í Læknablaðinu og taka til tilfella sem greindust á
árunum 1970 til 1999.9-10
Ómskoðun af eistanu var framkvæmd
hjá öllum sjúklingum nema einum. Fyrir og
eftir aðgerð var einnig gerð lungnamynd og
tölvusneiðmyndir af kviðar- og brjóstholi. Einnig
voru mældir æxlisvísar (AFP og fl-hCG), í flestum
tilvikum fyrir og eftir aðgerð. I þessari rannsókn
144 LÆKNAblaðið 2011/97