Læknablaðið - 15.03.2011, Blaðsíða 13
F
RÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
var ákveðið að sleppa blóðmæligildum fyrir LD
því slíkar mælingar hafa ekki verið gerðar með
skipulögðum hætti hér á landi.
Við tölfræðilega útreikninga var beitt kí-
kvaðratsprófi (hlutfallsbreytur) og t-prófi við
samanburð á hópum (samfelldar breytur). Heild-
arlífshorfur (overall survival) og sjúkdóma-sértækar
lífshorfur (cancer specific survival) sjúklinga voru
reiknaðar með Kaplan-Meier aðferð og miðast
útreikningar við 1. maí 2010. Við samanburð á
lífshorfum hópa var notast við log-rank próf.
Tölfræðileg marktækni miðast við p-gildi <0,05.
Öll tilskilin leyfi lágu fyrir áður en rannsóknin
hófst, frá Persónuvernd, Vísindasiðanefnd og frá
framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala.
Niðurstöður
Alls greindust 97 karlar með kímfrumukrabba-
mein í eistum á rannsóknartímabilinu sem náði
yfir 10 ár; 48 SFK (49,5%) og 49 E-SFK (50,5%). Öll
æxlin greindust í pung nema hjá einum sjúklingi
þar sem eistað var staðsett í kviðarholi. Ekki var
marktækur munur á fjölda æxla í hægra og vinstra
eista (46,4 vs. 53,6%, p=0,39), en enginn greindist
með æxli í báðum eistum.
Aldursstaðlað nýgengi fyrir allan hópinn var
5,9 á hverja 100.000 karla á rannsóknartímabilinu,
en nýgengi E-SFK hækkaði úr 2,7 í 3,6 en nýgengi
SFK lækkaði úr 3,0 í 2,5 á fyrra og seinna fimm ára
tímabili rannsóknarinnar (p=0,09).
Á mynd 1 er sýnt hvernig nýgengi eistna-
krabbameins hefur breyst hér á landi frá 1970,
þar á meðal á síðustu 10 árunum sem þessi rann-
sókn tók til. Lægst var nýgengið 1970-1974, eða
2,4/100.000 karla á ári en hæst 1990-1994 þegar
það var 6,6/100.000 karla á ári. Síðan virðist
nýgengið hafa haldist stöðugt hér á landi.
Aldursdreifing er sýnd á mynd 2 en meðalaldur
við greiningu var 35,6 ± 12,0 og aldursbil 15-76 ár.
Sjúklingar með SFK voru að meðaltali 11,5 árum
eldri við greiningu samanborið við sjúklinga með
E-SFK (41,6 sbr. 30,1 ár; p<0,0001).
Af þekktum áhættuþáttum reyndust átta
sjúklingar (8,2%) vera með fyrri sögu um launeista
og höfðu allir nema einn gengist undir aðgerð
vegna þess. Einn sjúklingur (1,0%) var með þekkta
fjölskyldusögu en faðir hans hafði greinst með
eistnakrabbamein.
Allir sjúklingarnir 97 greindust vegna einkenna
eistnakrabbameins. Fyrirferð í eista (94,8%) og
verkir (43,3%) voru langalgengustu einkennin en
55 sjúklingar höfðu fyrirferð án verkja (56,7%). Sjö
höfðu einkenni meinvarpa, oftast kviðverki sem
raktir voru til eitilmeinvarpa í aftanskinurými.
Önnur einkenni meinvarpa voru hósti og tak-
Tafla I. Vefjafræðileg flokkun kímfrumuæxla íeistum á íslandi 2000-2009. Um tveirþriðju
ekki-sáðfrumukrabbameina voru blönduð æxli. Gefinn erupp fjöidi og % i sviga.
Vefjaflokkur Fjöldi (%)
Sáðfrumukrabbamein 48 (49,5)
Ekki-sáðfrumukrabbamein 49 (50,5)
Blönduð æxli 32 (33,0)
Fósturvísisæxli (embryonal carcinoma) 11 (11,3)
Frumkímsæxli (teratoma) 6 (6,2)
Æðabelgsæxli (choriocarcinoma) 0(0)
Blómbelgsæxli (yolk sac tumour) 0(0)
Alls 97 (100)
verkir vegna lungnameinvarpa og slappleiki.
Hjá fjórum sjúklingum greindist brjóstastækkun
(gynecomastia).
Helmingur sjúklinganna (51,1%) greindist
innan fjögurra vikna, þar af 12 innan viku frá
upphafi einkenna. Fimmtungur (20,0%) sjúklinga
hafði haft einkenni í einn til þrjá mánuði fyrir
greiningu og 17,8% í meira en hálft ár, þar af 11
lengur en eitt ár. í sjö tilfellum vantaði upplýsingar
um tímalengd einkenna.
Allir sjúklingamir gengust undir aðgerð, yfir-
Mynd 3. Heildarlífshorfur
97 karla sem greindust með
eistnakrabbamein á íslandi
2000-2009. Þann 1. maí
2010 höfðufjórir sjúklingar
látist, þar af tveir úr ekki-
sáðfrumukrabbameini en
enginn úr sáðfrumukrabba-
meini. Brotnu línurnar sýna
95% öryggismörk.
Tafla II. Boden-Gibb stigun sjúkiinga sem greindust með sáðfrumukrabbamein og ekki-
sáðfrumukrabbbamein á Islandi 2000-2009. Gefinn erupp fjöldi og % ísviga.
Stig Lýsing Sáðfrumu- krabbamein Ekki-sáðfrumu- krabbamein Alls
n (%) n (%)
I Æxli takmarkað við eista 44 (91,7) 32 (65,3) 76 (78,4)
IIA Meinvörp <5 cm í aftanskinueitlum 3 (6,2) 7(14,3) 10(10,3)
IIB Meinvörp >5 cm í aftanskinueitlum 1 (2,1) 2 (4,1) 3 (3,1)
III Eitlameinvörp ofan þindar 0(0) 1 (2,0) 1 (1,0)
IV Liffærameinvörp utan eitla 0(0) 7 (14,3) 7 (7,2)
Alls 48 (100) 49 (100) 97 (100)
LÆKNAblaðið 2011/97 145