Læknablaðið - 15.03.2011, Qupperneq 22
FRÆÐIGREINAR
Y F I R L I T
sjaldgæfir fylgikvillar og því undantekning ef
taka þarf blóðræktun hjá börnum með bráða
berkjungabólgu.43
Meðferð
Meðferð við bráðri berkjungabólgu er fyrst og
fremst stuðningsmeðferð vegna þeirra einkenna
sembarnið hefur og lyf gagnast lítið,2-3-5'8 sjá mynd
3. Mikilvægt er að gefa auka súrefni ef súrefnis-
mettun í blóði barnsins er skert.3,8-44 Börn með
bráða berkjungabólgu eiga oft í erfiðleikum með
að nærast og því er mikilvægt að meta vökva-
ástand barnanna og gera viðeigandi ráðstafanir ef
með þarf.6-8
Berkjuvíkkandi lyf, svo sem beta-agonistar
og racemískt adrenalín, geta í sumum tilfellum
slegið tímabundið á einkenni sjúklinga með bráða
berkjungabólgu,5'45-46 en meðferð með þeim hefur
ekki áhrif á innlagnarlengd eða súrefnisnotkun.5-
45 í leiðbeiningum er mælt með því að gefa einn
prufuskammt af berkjuvíkkandi lyfi og meta
árangur af því, en ef ekki sést klínískur bati er
ekki ástæða til frekari meðferðar með berkjuvíkk-
andi lyfjum.3-5-6 I einstaka tilfellum geta klínísk
einkenni versnað eftir gjöf á berkjuvíkkandi
lyfi vegna aukins hjartsláttarhraða, minnkaðrar
vöðvaspennu í berkjuvöðvum og aukins mis-
ræmis í öndun og blóðflæði til lungnanna.45
Margar rannsóknir hafa verið gerðar á meðferð
með sterum við bráðri berkjungabólgu. I þessum
rannsóknum hefur ekki verið sýnt fram á að sterar
gagnist sem meðferð við bráðri berkjungabólgu
og ekki skiptir þá máli hvort sterarnir eru gefnir
með innúða, um munn, í æð eða vöðva.5- ^0-40'47
Eins fram hefur komið eru helstu bólgufrumurnar
daufkymingar, en sterar hafa mun meiri áhrif á
eitilfrumur, auk þess að draga úr fjölda rauðkym-
inga, og því gagnlegir í meðferð við astma.48
Meðferð með andkólínvirkum lyfjum hefur
ekki borið árangur fram yfir lyfleysu.3,7'49
Gjöf leukotriene blokka (montelukast) hefur
ekki borið árangur fram yfir lyfleysu sem
meðferð við bráðri berkjungabólgu af völdum RS-
veirunnar.7-50
Nokkrar rannsóknir hafa verið gerðar á með-
ferð með ríbavirín samanborið við lyfleysu.
Árangur af ríbavirín-meðferð hefur ekki komið
fram í þessum rannsóknum á óyggjandi hátt, en
þó hafa rannsóknirnar bent til þess að ríbavirín-
meðferð gæti stytt tíma í öndunarvél og stytt
innlagnir. Þetta þarfnast frekari rannsókna.3'5'51
Sýklalyfjanotkun er algeng við bráðri berkj-
ungabólgu, en þar sem bráð berkjungabólga stafar
í flestum tilfellum af veirusýkingu hafa sýklalyf
sjaldnast áhrif á gang sjúkdómsins.3'6,7'52
Nýlega hafa verið gerðar rannsóknir á gagn-
semi ofþrýstins saltvatns til innöndtmar við bráðri
berkjungabólgu. Hugsanlegt er að saltvatnið dragi
úr myndun slímtappa og bjúg í lungnapípunum
og minnki þannig teppuna sem einkennir bráða
berkjungabólgu. Niðurstöður þessara rannsókna
hafa bent til þess að meðferð með 3% saltvatni
með úða geti bætt klínískt ástand sjúklinga með
bráða berkjungabólgu og stytt legutíma. Þetta
þarfnast þó frekari rannsókna.53'54
Fyrirbyggjandi aðgerðir
Palívúzumab er einklóna mótefni gegn RS-veir-
unni sem eingöngu er notað í fyrirbyggjandi
skyni. Það er árangursríkt til þess að fyrirbyggja
RS-veirusmit og er víða gefið þeim sjúklingum
sem eru í áhættu á að veikjast alvarlega af RS-
veirunni. Mótefninu er sprautað í vöðva og þarf
að gefa það mánaðarlega yfir vetrartímann þegar
sýkingartíðni veirunnar er hæst.3'5'55
Fylgikvillar
Meirihluti barna sem fær væga bráða berkjunga-
bólgu jafnar sig án fylgikvilla. Fylgikvillar
sjást frekast hjá börnum sem fá alvarlega bráða
berkjungabólgu og leggjast inn á sjúkrahús.
Algengustu fylgikvillamir eru tengdir öndunar-
færum, þar á eftir eru sýkingar, hjarta- og
æðavandamál, auk blóðsaltatruflana.33,56
Börn sem fá bráða berkjungabólgu eiga oft
erfitt með að nærast og drekka vökva og því er
hætt við að þau þorni upp. Vökvaþörf er einnig
aukin vegna hita og hraðrar öndunarA8
Eyrnabólga er algengasti fylgikvilli bráðrar
berkjungabólgu af völdum RS-veirunnar. Eyrna-
bólgan getur orsakast af veiru eða bakteríu og ekki
er unnt að greina þar á milli af sjúkdómsmynd-
inni.5'37
Alvarlegar bakteríusýkingar í kjölfar bráðrar
berkjungabólgu eru fátíðar. Tíðni bakteríudreyra
sé hiti yfir 39°C er 0,2% hjá sjúklingum með bráða
berkjungabólgu43 og hjá sjúklingum sem leggjast
inn á sjúkrahús vegna RS-veirusýkingar finnast
bakteríur í blóði, þvagi eða heila- og mænuvökva
hjá alls 1,6% sjúklinga.3-57
Langtímaáhrif bráðrar berkjungabólgu
Þekkt er að veirusýkingar í öndunarfærum geta
valdið berkjuauðreitni tímabundið. Rannsóknir
hafa sýnt að berkjuauðreitni er aukin í nokkur ár
eftir alvarlega bráða berkjungabólgu af völdum
RS-veirunnar13-39'58 en það hefur hins vegar ekki
komið í Ijós í kjölfar vægrar bráðrar berkjunga-
154 LÆKNAblaðið 2010/96