Læknablaðið - 15.03.2011, Síða 27
FRÆÐIGREINAR
SJÚKRATILFELLI / YFIRLIT
Aftur til fortíðar
Sjúkratilfelli og yfirlit um afturvirkt minnisleysi
Magnús
Jóhannsson1
sálfræðingur
Þórunn Anna
Karlsdóttir1
deildarlæknir
Engilbert
Sigurðsson1'2
geðlæknir
Lykilorð: minnisleysi, afturvirkt,
taugasálfræðimat.
Ágrip
Afturvirkt minnisleysi þar sem mörg ár hverfa
skyndilega úr minni er þekkt en sjaldgæft
birtingarform minnisröskunar hjá yngra og eldra
fólki. Hjá einstaklingum þar sem heilinn verður
fyrir þekktum líffræðilegum skaða, svo sem vegna
höfuðáverka, er tímabilið sem gleymist yfirleitt
ekki talið í árum, heldur oftast í klukkustundum,
stundum dögum eða vikum. í þessari grein er
reifuð þekking á afturvirkum minnistruflunum og
rakin reynsla 31 árs gamallar konu af óvanalegu
löngu afturvirku minnisleysi. Hún hvarf 12 ár til
baka í tilveru sinni eftir skyndilegt minnisleysi
í kjölfar vonbrigða og áfalls. Hún var í djúpri
geðlægð á sama tíma. Rakin er saga hennar og
niðurstaða taugasálfræðiprófa, og þekking á
afturvirkum minnistruflunum tengd við tilfellið
Inngangur
Afturvirkt minnisleysi (retrograde anmesia) felur í
sér skerðingu á langtímaminni á upplýsingar sem
voru í minni áður en upphaf minnistruflunar átti
sér stað.1 Umfang og alvarleiki minnisleysisins er
mismunandi milli einstaklinga. Þar virðast þau
svæði heilans sem koma við sögu skipta miklu.
I flestum tilfellum er minnisleysið afmarkað, líkt
og í kjölfar vægari höfuðáverka, og nær þá aðeins
nokkra daga eða viku aftur í tímann. í öðrum
tilfellum þar sem heilaskaði hefur orðið getur
minnisleysið teygt sig ár eða jafnvel áratugi aftur
í tímann.2'3 Afturvirk minnisskerðing einkennist
fyrst og fremst af erfiðleikum í meðvituðu minni
(explicit memory) fremur en ómeðvituðu minni
(implicit memory). Með meðvituðu minni er átt
við þætti eins og persónulegar minningar og
staðreyndir um veröldina.4'5 Minnisleysinu fylgir
yfirleitt einnig framvirkt minnisleysi (anterograde
amnesia) þar sem geta til að tileinka sér nýjar
upplýsingar beint í kjölfar minnistruflunarinnar er
skert. Sú er þó ekki alltaf raunin og lýst hefur verið
afmörkuðum tilfellum með alvarlegt afturvirkt
minnisleysi en eðlilegt, eða nær eðlilegt framvirkt
minni. Minnisleysið hjá þessum hópi virðist frekar
eiga sér sálrænar en vefrænar orsakir.6
Sjúkratilfelli
Lýst er konu sem var 31 árs, einhleyp og barnlaus.
Hún varð fyrir endurteknu einelti í skóla, líkam-
legu og andlegu. Eineltið hafði mikil áhrif á
líðan hennar og sjálfsmynd æ síðan. Konan
leitaði fyrst á geðdeild 2003 vegna svefnleysis og
langvarandi verkja. Hún hafði þá ítrekað leitað
til heimilislæknis og á slysa- og bráðamóttöku
vegna ýmissa verkjakvartana. Fyrsta innlögn
hennar á geðdeild var árið 2004 og síðan fylgdu
margar og langar innlagnir vegna geðlægða,
sjálfsvígshugsana, sjálfskaða, félagskvíða og
óöryggis. Hún hafði einnig margar greiningar
vegna líkamlegra kvilla og verkja, en á þeim
hafa ekki alltaf fundist líffræðilegar skýringar.
Hún hafði jafnframt gengið í gegnum vægar
örlyndislotur með ofvirkni, minni svefnþörf og
vellíðan. Þær lotur höfðu aldrei leitt til innlagnar.
í hennar augum höfðu verkir og þunglyndi
með lamandi kvíða reynt mest á hana. Reynt
hafði verið að bæta líðan hennar í innlögnum
með ýmsum þunglyndis- og sveiflustillandi
lyfjum, auk geðrofslyfja, kvíðalyfja, svefnlyfja
og verkjalyfja. Hún hafði einnig verið í viðtölum
og farið í raflækningar (electroconvulsive therapy).
Þessar meðferðir höfðu skilað mismiklum árangri,
oft fremur skammvinnum. Félagslegar aðstæður
á hverjum tíma höfðu stjórnast talsvert af líð-
an hennar. Ofþyngdarvandi var vaxandi. Mat
starfsfólks var að um greindan og hæfileikaríkan
einstakling væri að ræða sem væri skapmikill og
afar viðkvæmur fyrir höfnun í samskiptum og að
það litaði mjög samskipti hennar við starfsfólk og
ættingja í innlögnum.
Konan var lögð inn sem oftar síðsumars vegna
þunglyndis og sjálfsvígshugsana. Lyfjabreytingar
og viðtöl skiluðu ekki greinanlegum árangri
þegar tveir mánuðir voru liðnir frá innlögn. Fyrir
innlögn bjó hún heima hjá foreldrum sínum en
var í talsverðum samskiptum við kunningja og
vini á Facebook. Kærasti batt endi á samband
þeirra í gegnum tölvu um mánuði eftir innlögn,
um þremur vikum áður en minnisröskunin varð.
Konan var þá búin að vera stöðugt langt niðri,
fann fyrir miklu vonleysi og var með viðvarandi
sjálfsvígshugsanir. Hennar haldreipi á þeim tíma
var að hún gæti fengið að fara í raflækningar til
LÆKNAblaðið 2011/97 159