Læknablaðið - 15.03.2011, Page 29
FRÆÐIGREINAR
SJÚKRATILFELLI / YFIRLIT
hræðslu. Sem dæmi nefndi hún að allir í fjölskyldu
hennar væru skyndilega orðnir svo gamlir og
henni hefði krossbrugðið þegar hún sá sjálfa sig
í spegli þar sem hún væri búin að eldast og bæta
mikilli þyngd á sig. Hún sagðist hafa tárast þegar
hún frétti að amma sín væri ekki lengur á lífi, hún
hafi víst látist fyrir nokkrum árum. Einnig væri
skrýtið að hún þekkti ekki börn systur sinnar
sem fæddust á síðustu 10 árum. Aðspurð um
hver væri forsætisráðherra nefndi hún Davíð
Oddsson. Hún sagði árið 1997 vera sér stöðugt í
huga. Henni fannst að framundan væri að fara á
síldarævintýri á Siglufirði með vinkonu sinni um
verslunarmannahelgina til að sjá hljómsveitina
Sóldögg. Aðspurð um uppáhalds hljómsveitir
nefndi hún Nirvana, the Prodigy, Sálina hans Jóns
míns og SS Sól. Hún segist að ráði geðlæknis síns
hafa verið að fara í gegnum fjölskyldumyndir frá
síðustu 12 árum með móður sinni í þeirri von að
það hjálpi sér að rifja upp. Á sama tíma segist
hún hrædd við að fá fréttir af fleiri áföllum sem
hafi orðið á síðustu 12 árum líkt og andlát ömmu
hennar.
Aðspurð um aðdraganda minnisleysisins
sagðist hún, tæpum tveim vikum eftir að hún
fór niður að höfn, muna eftir að fara af deildinni
út í sjoppu á Vesturgötu og kaupa sér appelsín.
Eftir það hefði hún farið niður á bryggju hjá
hvalaskoðuninni, sest niður og hugsað um að fara
í sjóinn til að enda líf sitt. Eftir það væru hlutirnir
í móðu nema hún myndi að komið var með hana
hingað inn á geðdeild, í húsnæði þar sem hún
kannaðist ekki við sig. Hún hefði ekki heldur
þekkt starfsfólkið, þrátt fyrir að hafa verið sagt að
hún hefði verið þar fyrr um daginn og innlögð í
margar vikur. Hiln segist ekki taka eftir sérstökum
breytingum á minni eða öðrum þáttum eftir þessa
atburðarás en segist þreytt, kvíðin og ráðvillt.
Eftirfarandi próf voru lögð fyrir konuna, en öll
eru þau hluti af því taugasálfræðimati sem stuðst
er við á geðsviði Landspítala: Áttunarspumingar.
Tafarlaust og seinkað yrt minni var metið með
sögum (rökrænt minni, WMS-III) og orðalista
(RAVLT). Tafarlaust og seinkað óyrt minni var metið
með flókinni Rey-mynd og kennslaminni fyrir
andlit (Andlit I og II, WMS-II). Sjónræn úrvinnsla
var metin með endurgerð á flókinni Rey-mynd,
klukkuprófi (teikning og lestur á klukkum) og
línuprófi (gaumstol). Athygli, einbeiting og stýring
(executive function) var metin með talnakóðun
(Digit Sytnbol) og talnaröðum (Digit Span) úr
WAIS-III, slóðarprófi A og B, orðaflæði H, F, S, dýr
(Verbal Fluency) og mati á hjakktilhneigingu.
Tafla I. Niðurstöður taupasálfræðileas mats út frá prósenturöð.
Svið hugrænnar færni Próf Stig/hámarksstig Prósenturöð (viðmlö—•)
Áttun Áttunarspurningar 0/113* -
Sögur (WMS-III) Saga A Tafarlaust 18/25 7022
Seinkað 14/25 5522
Kennsl 15/15 9522
Saga B Tafarlaust (1) 11 /25 4022
Tafarlaust (2) 20/25 7522
Seinkað 17/25 6022
Yrt minni
Kennsl 15/15 9522
Orðalisti (RAVLT) Tafarlaust 57/75 7023
Seinkað 13/15 7023
Kennsl 15/15 9523
Kennslaminni (andlit) Tafarlaust 38/48 5022
Seinkað 39/48 6022
Óyrt minni Rey-mynd (flókin) Tafarlaust 26/36 7524
Seinkað 27/36 8024
Skammtímaminni Talnaraðir (WAIS-RNI) Áfram 5/9 525
Merkingarminni
Dyr 19/-*** 302B
Slóðarpróf B Tími í sekúndum 90 1527
Villur 0 -
Talnaraðir (WAIS-R Nl) 5/9 4025
Stvrinq
Orðaflæði23 H 1 1 / -*** 2526
F 10/-*** 1826
S 8 /-*** 826
Hjakkpróf3 Rétt*** -
Rey-mynd (flókin) Endurgerð 36/36 7524
Tími í sekúndum 240 8024
Slóðarpróf A Tími í sekúndum 22 8027
Villur 0 -
Klukkupróf23
Sjónrænt/hreyfihraði 11:10 Rétt ** -
Línupróf23 Rétt ** -
Talnakóðun (WAIS-III) Fjöldi réttra tákna 63*** 2028
* Því fleiri stig þeim mun verri áttun.
*• Aðeins gefið rétt eða rangt á þessu prófi. *** Á ekki við, persónubundið hvað hver og einn getur mörg atriði. **** Þar sem ekki eru til íslensk viðmið er notast við erlend viðmið fyrir öll prófin að undanskildu Orðaflæðisprófi. Viðmið og upplýsingar
fyrir hvert próf eru birt í heimildaskrá samkvæmt tilvísunarnúmerum í töflunni.
Taugasálfræðileg frammistaða
Niðurstöður taugasálfræðimats sýndu ekki vit-
ræna skerðingu. Skor eru sýnd í töflu I. Hún
var fulláttuð á stað og stund. Frammistaða á
taugasálfræðilegum prófum telst innan eðlilegra
marka. Átti það jafnt við um yrt sem óyrt minni.
Hafa ber í huga að ofangreind minnispróf meta
eingöngu getu til að læra nýja hluti en ekki getu
til að rifja upp fyrri minningar. Sjónræn úrvinnsla
sem og athygli og einbeiting voru innan eðlilegra
LÆKNAblaðið 2011/97 161