Læknablaðið - 15.03.2011, Qupperneq 56
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
ÖLDUNGADEILD
Hughrif í ferð öldungadeildar um Austurland 2009
Hörður
Þorleifsson
Ferð þessi var farin 13.-17. júlí. Hjörleifur Gutt-
ormsson var leiðsögumaður, Leifur Jónsson farar-
stjóri og Sveinn Sigurbjarnarson bílstjóri Tanni
Travel.
A Fljótsdalshéraði var þoka fyrsta daginn.
Þrengir að oss poka grá
svo þekkjast hvorki fjöll né hólar.
Vona að hún víkifrá
og vermi aftur geislar sólar.
Borgarfjörður eystra er byggð í skjóli fjalla
og Borgin álfa vakir trygg yfir þessum stað.
Dyrastafir tröllauknir draga að sér alia
sem dýrkafagra veröld og Kjarval setti á blað.
Frá Borgarfirði eystri var farið til
Loðmundarfjarðar á rútunni Gvendólínu nr. 2.
Yfirfjallaklöngur og ofar skýjum löngum
ók hún Gvendólína sem sögð er númer tvö.
Svenni var við stýrið og stýrði fram lijá dröngum,
styrkum höndum lagð'ana allar beygjur sjö.
Bræðravatni Emilía
ekki sinnti hót
Loðmundarfjörðinn við litum nú augum,
Ijúft var að kanna þann fjarlæga heim.
Horfið var flöktið á fínustu taugum
ogfriðinn þar gripum við höndum tveim.
Síðan fórum við í Emilíu, öðrum bíl Tanna
Travel til Mjóafjarðar. Bræðravatn/vötn eru á
Mjóafjarðarheiði.
Umsjón síðu
Páll Ásmundsson
Stjórn
Öldungadeildar
Sigurður E. Þorvaldsson
formaður
Jón Hilmar Alfreðsson
ritari
Tryggvi Ásmundsson
gjaldkeri
Guðmundur Oddsson
Óli Björn Hannesson
Öldungaráð
Hörður Þorleifsson
Höskuldur Baldursson
Kristín Guttormsson
Leifur Jónsson
Páll Ásmundsson
Vigfús Magnússon
Vefsíða Öldungadeildar
finnst meðal annarra
vefsíðna sérfélaga á
síðu LÍ.
Skopmynd
Sigmundur Magnússon blóðmeinafræðingur.
Teikning: Sigurður V. Sigurjónsson
en Mjóafjörðinn, fagra, hlýja,
flutti hún okkur mót.
Öldungur á bæ þar býr
búinn geði þekku.
Vinsæll er og viðmótshlýr
Vilhjálmur á Brekku.
Leiðsögn skýr og Ijós í senn,
Ijúft aðfylgja henni.
Hafi þökk þeir heiðursmenn,
Hjörleifur og Svenni.
Enginn læknir
býr svo heiina fyrir, cöa fer í feröalag, aö
hann ckki hafi eitthvað af ncðantöldum tó-
bakstegundum úr
Tóbaksverzlun R. P. Lovi,
scm hlotiö hafa allra lof.
CIGARETTUR. VINDLAR.
REYKTÓBAK. MUNNTÓBAK.
NEFTÓÐAK.
Pantanir utan af landi afgreiddar meö
fyrstu ferö.
Þá var öldin önnur!
Þetta var fyrsta auglýsingin sem birtist á kápu
Læknablaðsins í maí 1915. Hún „prýddi" kápu
blaðsins til ársloka 1918.
188 LÆKNAblaðið 2011/97