Læknablaðið - 15.06.2011, Side 10
RANNSÓKN
Tafla I. Árangur PKU-meðferðar fyrir og eftir að kembileit hófst. Athugaður er
aldur við upphaf meðferðar ásamt því hvort einstaklingar séu heilbrigðir eða
ekki.
Fjöldi greindra einstaklinga Fjöldi heilbrigðra Aldur við upphaf meðferðar
Fyrir kembileit (1947-1972) 8 2 Þrír fengu enga meðferð Spönn: 6-58 mánuðir Miðgildi 28 mánuðir
Eftirað kembileit hófst (1972-2007) 19 19 Spönn: 6-30 dagar Miðgildi 20 dagar
frá fæðingaskrá og Hagstofu íslands við útreikninga á nýgengi.
Reiknuð voru meðaltöl og miðgildi og borin saman í tímaröð.
Athugaðar voru gerðir stökkbreytinga í PAH-geninu. Blóðsýni
PKU-einstaklinga sem fæddir voru 2006 og seinna voru send
til Kennedy Institute í Kaupmannahöfn og stökkbreytingar í
PAH-geni greindar með keðjumögnun (PCR) og 13 pörum af
þreifurum (primers) fyrir ríbósakjarnasýru (RNA) splæsingu.1
Stökkbreytingagerðir eldri einstaklinga voru þekktar.
Athugað var hvort séríslensk stökkbreyting, Y377fsdelT, ásamt
Y414C svöruðu BH4 hleðsluprófi. Var það hluti af almennri
meðferð sjúklinga en ekki hluti rannsóknar. Við hleðslupróf er
einstaklingi gefið BH4 degi eftir að hann hefur safnað Phe í líkama
með eðlilegu fæði og S-Phe gildi mæld reglulega eftir inntöku.14
Beitt var lýsandi tölfræði. Tölvuforritið Excel var notað við
tölfræðilega og myndræna úrvinnslu.
Fengið var leyfi fyrir rannsókninni frá Siðanefnd Landspítalans
og Persónuvernd. Einnig lá fyrir heimild lækningaforstjóra til
rannsóknarframkvæmdar á spítalanum.
Niðurstöður
Á íslandi hafa 27 manns greinst með PKU frá 1947, 18 karlar
og 9 konur. Frá því kembileitin hófst árið 1972 til loka ársins
2008 greindust 19 með efnaskiptagallann og gefur það nýgengi
1/8400 lifandi fæddra. Ekki er vitað um falskt neikvætt tilfelli
á því tímabili. Frá 1947 til 1972 greindust níu manns með PKU,
eða 1/14000 fæddum.
Allir þeir sem greinst hafa með PKU eftir að kembileit hófst
eru heilbrigðir. Af átta manns sem greindust áður en kembileitin
hófst eru sex andlega fatlaðir. Einnig má sjá að meðferð hefst
mun fyrr eftir að kembileit hófst (tafla I).
Alvarlegasti flokkurinn, klassísk PKU, er algengastur á íslandi
(tafla II).
Allir nema einn greindir eftir 1972 eru á meðferð til að halda
Tafla II. Þeim sem greinst hafa með PKU á Islandi raðað iflokka eftirstyrk S-Phe
án meðferðar þar sem klassísk PKU er alvarlegust.
Flokkar PKU S-Phe-gildi við ótakmarkað fæði Heildarhlutur flokks á fslandi
pmol/L mq/dL
Klassísk PKU >1200 >20 23 (85,2%)
Mild PKU 600-1200 10-20 3 (11,1 %)
Mild S-Phe hækkun 200-600 3-10 1 (3,7%)
Gallar í BH4 samvægi Mismunandi 0%
Tafla III. Niðurstöður BH4-hleðsluprófs fjögurra einstakiinga með PKU.
Breyting á S-Phe er athuguð í sólarhríng eftir BH4-gjöf. Ef lækkun er >30% átta
klukkustundum eftir BH4-hleðsluskammt eða >50% eftir 24 klst., er svarið talið
jákvætt.
Arfgerð S-Phe S-Phe S-Phe S-Phe S-Phe Breyting á
0 klst. 4 klst. 8 klst. 12 klst. 24 klst. S-Phe
Y377fsdelT/ P281L 570 746 773 756 997 +75%
Y377fsdelT/ P281L 571 774 860 1027 1016 +78%
Y377fsdel/ Y414C 987 944 900 X 454 -55%
P281L/ Y414C 491 404 323 223 163 -67%
x = ekkert gildi fannst.
S-Phe gildum niðri. Enginn þeirra er andlega fatlaður eða með
þekkta fylgikvilla. Eftir að kembileit hófst hefja sjúklingar með-
ferð við yngri aldur (mynd 1).
Frá 1989 til 2002 lækkuðu S-Phe-gildi að meðaltali um fjórðung
fyrstu 42 mánuði meðferðar (mynd 2). Fyrsta mánuði var sleppt
því engin meðferð er í fyrri hluta hans.
Stökkbreytingagerð í PAH-geninu hefur verið athuguð hjá öll-
um einstaklingum greindum með PKU á íslandi. Greinst hafa
12 gerðir stökkbreytinga hér á landi og 54 samsætur. Þrjár
stökkbreytingar eru í rúmlega 2/3 samsæta, Y377fsdelT, P281L
og F299C. Er íslenska stökkbreytingin Y377fsdelT algengust þeirra
(Ttafla IV).
Tveir einstaklingar með stökkbreytinguna Y377fsdelT á annarri
PAH-samsætunni og P281L á hinni, gengust undir BH4 hleðslupróf
sem þeir svöruðu ekki (tafla III). Tveir aðrir með stökkbreytinguna
Y414C á annarri samsætunni fóru í hleðslupróf sem þeir svöruðu
(tafla III).
Umræður
Átta einstaklingar fæddir frá 1947 til 1972 greindust með PKU
á rannsóknarskeiðinu, margir löngu eftir fæðingu.1 Nýgengi á
þessu tímabili er 1/14.000 fæðingum. Líklegt er að einhverjir hafi
ekki greinst og dáið ungir í ljósi aðbúnaðar fatlaðra einstaklinga
á þessum tíma.
Nýgengi PKU eftir að kembileit hófst árið 1972 og til 2008 er
1/8400 fæðingum. Ekki eru þekkt falskt neikvæð tilfelli og ólíklegt
er að einhver séu óuppgötvuð. Samkvæmt Hardy-Weinberg-
jafnvæginu er um það bil einn af hverjum 50 Islendingum sem
ber PKU-orsakandi stökkbreytingar. Nýgengi PKU meðal hvítra
Vesturlandabúa er almennt um 1/10.000 fæðingum. Er nýgengið
hér á landi lægra en á til dæmis Irlandi eða Tyrklandi.15-16 Rann-
sóknarskýrsla Árna Þórs Árnasonar læknis árið 2004 leiddi í ljós
nýgengi PKU 1/6607 fæðingum á tímabilinu 1984-2003. Áður
höfðu Guldberg og fleiri reiknað nýgengi PKU á íslandi frá
1972-1997 sem 1/10000 fæðingum.1 Ætla má að nýgengið 1/8400
sé réttara vegna lengra rannsóknartímabils.
Efnaskiptagallinn PKU á Islandi uppfyllir öll skilyrði til
kembileitar: a) há tíðni; b) afleiðingar sjúkdómsins slæmar; c)
kembileitin örugg og ódýr; d) sjúkdómurinn meðhöndlanlegur
á viðráðanlegu verði. Eftir að kembileit hófst árið 1972 byrjar
meðferð mun fyrr en áður og hefur enginn hlotið alvarlegan skaða
á miðtaugakerfi (tafla I). Allir greindir eftir 1972 eru með eðlilega
350 LÆKNAblaöið 2011/97