Læknablaðið - 15.06.2011, Qupperneq 36
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Gleði og ánægja í leik og starfi
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
„Ég er langyngstur af sjö systkinum og ólst upp á afskaplega góðu heimili hér í Reykjavík," segir Tryggvi
Ásmundsson lungnalæknir sem var kjörinn heiðursfélagi Læknafélags Reykjavíkur á aðalfundi félagsins á
dögunum. „Mér þykir mjög vænt um þessa viðurkenningu og met hana mikils," segir Tryggvi, sem er einn
þeirra manna sem lætur greinilega betur að tala um annað en sjálfan sig. Ásamt konu sinni, Öglu Egilsdóttur,
hefur hann komið sér fyrir í rúmgóðri íbúð í nýlegu fjölbýli við Vatnsstíginn þar sem útsýnið yfir sundin
blasir við, Esjan og Akrafjallið gera málverk á veggjum nánast óþörf. Tryggvi bendir þó á mynd á veggnum
eftir kollega sinn í læknastétt, Guðmund Bjarnason barnaskurðlækni, og segir hann með betri málurum.
Foreldrar Tryggva voru Ásmundur
Guðmundsson biskup og Steinunn
Magnúsdóttir.
„Ég átti mjög góða æsku og var
nánast eins og einbirni í faðmi foreldra
og eldri systkina. Það var dekrað við
mig á allan hátt. Systur mínar sögðu
reyndar að eflaust héldu margir að
ég væri lausaleikskróinn þeirra sem
foreldrar mínir hefðu tekið að sér
uppeldið á og þegar ég var kandídat á
fæðingardeildinni þótti mér vissara að
fletta þessu upp," segir Tryggvi og hlær
við. Niðurstaðan af þeirri rannsókn var
að hann væri sonur foreldra sinna.
„Ég ólst upp á Laufásvegi 75 í húsi
sem foreldrar mínir byggðu og fór
fótgangandi í skóla alveg frá fyrsta degi
og þar til ég hleypti heimdraganum og
hélt í framhaldsnám í læknisfræði til
Bandaríkjanna. Ég byrjaði í ísaksskóla
sem var þar sem geðdeild Landspítalans
stendur núna, fór þaðan í æfingadeild
gamla kennaraskólans við Barónsstíg,
svo í Gaggó Aust, þaðan í MR og loks
í læknadeildina. Ég var í Bandaríkjunum
í rúm sjö ár og kom síðan heim
og bjó fyrst í starfsmannahúsi við
Vífilsstaðaspítala. Síðan keyptum við
hjónin hús og bjuggum í því í fáein
ár en 1977 fluttum við á Laufásveg 75
og bjuggum þar allar götur þar til við
fluttum hingað. Húsið á Laufásvegi
var selt innan fjölskyldunnar og þar
býr dóttir mín núna ásamt fjölskyldu
sinni. Ég vona að það hús verði sem
allra lengst í fjölskyldunni. Þetta er
sannkallað ættarhús og er engu líkt.
Ég útskrifaðist í febrúar 1964 og vildi
komast út sem allra fyrst og tók því
hluta af kandídatsárinu í Bandaríkjunum.
Ég var þó ekki alveg ráðinn í því
hvaða sérgrein ég ætlaði að leggja
fyrir mig. Ef einhver hefði sagt við
mig að ég yrði lungnalæknir hefði ég
hlegið að því. En ég átti eftir að taka
lyflækningarnar af kandídatsárinu og
byrjaði því á lyflækningadeild Duke-
háskólans í Norður-Karólínu. Það var
ekki auðvelt að komast þar inn en
Tómas Árni Jónasson mælti með mér
og þeir voru tilbúnir að taka við mér
fyrir hans orð. Ég hélt óskaplega upp á
Duke og þótti sérstaklega mikið til um
hvað allt var sveigjanlegt. Ég minnist
þess aldrei að hafa verið spurður
hvað mig langaði til að gera nema
þar. Hér á íslandi er maður aldrei
spurður um slíkt heldur bara sagt hvað
á að gera. En þetta æxlaðist þannig
að ég var spurður hvað mig langaði
að gera og ég sagðist hafa áhuga á
lungnalækningum og þá var það bara
ákveðið. Ég var á Duke frá mars 1965
til 1968, fyrst sem kandídat og síðan
sem deildarlæknir á lungnadeild. Næsta
árið naut ég rannsóknarstyrks við
Georgs Washington-háskólann og síðan
var ég deildarlæknir við VA-sjúkrahúsið
í Washington. Þaðan fór ég aftur 1970
sem sérfræðingur á lungnadeild Duke-
háskólasjúkrahússins, en árið 1972
fluttum við hjónin heim til íslands þar
sem ég hafði fengið sérfræðingsstöðu við
Vífilsstaðaspítalann."
Mátti ekki fara einhleypur
Tryggvi brosir þegar hann rifjar upp
að áður en hann fór til sérnámsins hafi
móðir hans sagt með áherslu að hann
færi ekki einhleypur til Bandaríkjanna.
„Ég var svo hlýðinn drengur að ég
fór að ráðum móður minnar. Við Agla
kynntust þegar ég var kandídat á
Landakoti og vorum gift áður en árið
var úti. Nú eru bráðum 47 ár liðin
og þetta hefur blessast vel. Fyrstu tvö
börnin okkar fæddust í Bandaríkjunum
en yngsti sonurinn er fæddur á Islandi."
Tryggvi lýsir viðbrögðum
samstarfsmanna sinna á Duke þegar
hann tilkynnti þeim að hann ætlaði að
flytja heim til íslands og taka upp störf
á litlum lungnaspítala. „Þeir spurðu
um stærð spítalans og hvað ég fengi í
laun og það sló þögn á mannskapinn
þegar ég skýrði frá því. Þeir trúðu
mér fyrir því seinna að þeir hefðu
alvarlega verið að spá í hvort ég þyrfti
ekki á geðlækni að halda. En ég var
alsæll og hafði alltaf ætlað mér að
flytja heim og þarna bauðst tækifærið.
Ég hef aldrei séð eftir því. Fyrsta árið
hélt ég stöðunni á Duke og vinir mínir
þar voru sannfærðir um að ég myndi
koma aftur. Það hvarflaði ekki að mér.
Það var óskaplega gaman að vinna á
376 LÆKNAblaöið 2011/97