Læknablaðið - 15.05.2013, Qupperneq 33
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Anna Kristín heillaðist af
járnkarli þegar hún fylgdist
með feðgunum keppa í Wis-
consin 2009.
Syndir alltaf bringusund
Höskuldur segir að hann hafi farið fremur
óhefðbundna leið að því að keppa í járn-
karli. „Ég skráði mig strax í heilan járnkarl
en mælt er með því að byggja sig upp með
því að keppa fyrst í styttri vegalengdum,
taka ólympíska þraut og hálfan járnkarl
áður en reynt er við heilan. En það var
ekki í boði hér heima á þeim tíma og ég
taldi mig líka hafa nokkuð góðan grunn
úr langhlaupunum. Það kom svo fljótlega
í ljós að ég var illa syndur og hef enn ekki
náð almennilegum tökum á skriðsundi
svo það hefur háð mér nokkuð. Ég er lengi
að klára sundið í keppninni á bringusund-
inu. Ég er ekki mjög upptekinn af því að
ljúka keppni á mettíma, finnst bara ágætt
að vera vel innan tímamarkanna sem sett
eru. Ég er reyndar ákveðinn í því að ná
betri tökum á skriðsundinu áður en ég fer
aftur í járnkarl."
Þess má reyndar geta að innan síns ald-
ursflokks eru tímar Höskuldar ágætlega
samkeppnishæfir. Virðulegir skurðlæknar
á sjötugsaldri eru eðlilega lengur að ljúka
keppni en atvinnumenn í þríþraut á þrí-
tugsaldri. Annað væri eiginlega undarlegt.
í september í fyrra slóst Höskuldur í
för með Önnu Kristínu og Jóni Hinriki
til Wales þar sem haldin er ein erfiðasta
járnkarlskeppni í heimi. „Hjólaleiðin er ein
sú erfiðasta sem hægt er að finna og við
vorum að nokkru leyti óviðbúin því hvað
hún var erfið," segir Anna Kristín. Þau
Jón Hinrik luku keppni á ágætum tíma en
hún segir að hjólatíminn hafi verið talsvert
lengri en hún gerði ráð fyrir. Höskuldur
lauk ekki keppni en hann var þá þegar
búinn að skrá sig í tvöfalda járnkarlinn í
Flórída í mars 2013 svo Wales var því ekki
markmið heldur hluti af undirbúningi.
En hvernig undirbýr maður sig fyrir einn
tvöfaldan? Æfir maður helmingi meira en
fyrir venjulegan járnkarl?
„Nei, það er ekki hægt að tvöfalda
æfingamagnið. Að fara úr 10-14 klukku-
stundum á viku í 20-30 tíma er einfald-
lega óraunhæft. Ég vinn líka það mikið
að ég hef ekki tíma fyrir meiri æfingar.
Ég hef stundum sagt að vinnan komi í
veg fyrir að ég ofþjálfi, enda hef ég verið
laus við meiðsli að mestu í gegnum þetta
allt saman. Fyrir tvöfalda járnkarlinn tók
ég hefðbundið járnkarlsprógram og bætti
sirka 30% við það. Ég renndi svolítið
blint í sjóinn með magnið en í 20 vikur
æfði ég að meðaltali 13 -15 klukkustundir
á viku. Markmiðið hjá mér var einfald-
lega að klára keppnina innan tímamarka,
36 klukkustunda, og setti mér það fyrir
að stoppa aldrei. Beware the Chair er einn
frasinn úr þessum bransa sem ég tileink-
aði mér en það þýðir að maður sest aldrei
niður. Þá getur orðið ansi erfitt að standa
upp og halda áfram. Ég er vanur að vera
lengi að úr löngu hlaupunum, fara jafnt
og rólega og stoppa helst aldrei. Það gekk
ágætlega upp. Ég var reyndar mjög feginn
að ná að klára sundið á innan við fjórum
klukkustundum, en það voru tímamörkin
fyrir þann legg, en fyrirfram hafði ég
áhyggjur að ná því ekki. Þegar sundinu
var lokið þá brosti ég bara út í bæði þó ég
ætti eftir að hjóla 360 kílómetra og hlaupa
84,4 km."
Sex daga hlaup í sigtinu
Höskuldur hafði líklega bestu mögulegu
aðstoðarmenn, sem voru Anna Kristín
dóttir hans, Barbara kona hans og Robert
LÆKNAblaöið 2013/99 257