Læknablaðið - 15.05.2013, Blaðsíða 46
Pistlar frá formönnum sérgreinafélaga og
undirdeilda Læknafélags íslands og Reykjavíkur
Gríðarlegar breytingar
á síðustu öld
María Soffía
Gottfreðsdóttir
fyrrverandi formaður
Augnlæknafélags
íslands
mariago@landspitali.is
Fyrsti íslenski læknirinn sem sérmenntaði
sig í augnlækningum var Björn Ólafsson
en hann lauk prófi frá Læknaskólanum
1888 og stundaði framhaldsnám í Kaup-
mannahöfn 1889-90. Fram að því hafði
enginn augnlæknir starfað á íslandi og
héraðslæknar kunnu lítil skil á augn-
sjúkdómum. Landakotsspítalinn tók til
starfa í október 1902. Þar var augnlæknum
veitt aðstaða fyrir augnsjúklinga sem
fylgdi þeim öldina á enda. Það var þó ekki
fyrr en árið 1969 að formleg augndeild var
loks stofnuð á Landakoti. Árið 1934 voru
sett lög um augnlækningaferðir en mark-
mið þeirra var að auðvelda fólki á lands-
byggðinni að fá þjónustu augnlækna, sem
þá hafði fjölgað nokkuð. Kennsla í augn-
sjúkdómum var þó lítil fram eftir síðustu
öld og varð fagið ekki prófgrein fyrr en
um miðjan sjötta áratuginn. Árið 1959
var stofnuð dósentsstaða við Háskóla Is-
lands í augnlækningum og 1981 var fyrsti
prófessorinn skipaður, Dr. Guðmundur
Björnsson.
Augnlæknafélag íslands var stofnað
árið 1966. Félagið er málsvari íslenskra
augnlækna, það gefur umsögn um laga-
frumvörp og önnur málefni, vinnur að
sjónverndarmálum með ábendingum og
ráðgjöf, til dæmis um slysavarnir. Félagið
stendur fyrir fræðslu fyrir augnlækna og
efnir til funda með íslenskum og erlendum
fyrirlesurum sem kynna rannsóknir sínar.
í dag eru 32 starfandi augnlæknar á ís-
landi. Þeir hafa sótt sérfræðimenntun sína
til Svíþjóðar, Noregs, Danmerkur, Eng-
lands, Skotlands, Þýskalands og Banda-
ríkjanna. Sérfræðinámið tekur að jafnaði
4-6 ár og með aukinni tækni og þekkingu
hafa orðið til ýmsar undirsérgreinar.
Hefur það verið mikill styrkur fyrir fagið
hversu fjölbreytta menntun augnlæknar
hafa hlotið og einnig hafa góð tengsl við
ýmsa erlenda háskóla verið fræðigreininni
og sjúklingum til hagsbóta. Öflug vísinda-
starfsemi hefur verið í augnlækningum
á íslandi undanfarin ár með samstarfs-
læknum í verkefnum víða um heim. Nor-
ræn samvinna er mikilvæg og norrænu
augnlæknafélögin halda sameiginlegt þing
annað hvert ár, það síðasta var hér heima
árið 2010. íslenskir augnlæknar hafa verið
ötulir við að tileinka sér nýja tækni við
greiningu og meðferð augnsjúkdóma og
eru til að mynda ýmsar flóknar skurðað-
gerðir framkvæmdar á augndeild Land-
spítalans sem einungis eru gerðar á stærri
háskólasjúkrahúsum erlendis.
Á síðustu áratugum hafa orðið gríðar-
legar framfarir í augnlækningum, eftirliti
og þjónustu augnlækna við skjólstæðinga
sína. Sem dæmi má nefna að um miðja
síðustu öld var algengi blindu á Islandi
mun hærra en í Evrópu og Norður-
Ameríku. Blinda af völdum hægfara gláku
var langalgengasta orsökin hér og mun
tíðari en í nágrannalöndum. Það var erfitt
að fylgjast náið með glákusjúklingum í
strjálbýlu landi með lélegum samgöngum
og margir fóru ekki til augnlæknis fyrr en
sjúkdómurinn var langt genginn, enda oft
einkennalaus fram á lokastig.
Á okkar tímum hefur blindutíðni vegna
gláku snarminnkað með aukinni þjónustu,
öflugum lyfjum og flóknum skurðað-
gerðum. í stórri faraldsfræðilegri rann-
sókn á augnhag íslendinga, Reykjavíkur-
augnrannsókninni sem hófst árið 1996,
reyndist aldursbundin augnbotnahrörnun
langalgengasta orsök sjóntaps, en gláka er
nú í fjórða sæti yfir blinduvaldandi augn-
sjúkdóma.
Árið 1980 hófst skimun við augnsjúk-
dómum í sykursýki á íslandi, fyrstu landa,
með ótrúlegum árangri gegn blindu. Það
er ekki síst þessu forvarnarstarfi að þakka
að blindutíðni í sykursýki er lægri á Is-
landi en í nágrannalöndunum.
Algengasta skurðaðgerðin á auga er
dreraðgerð (cataract-aðgerð). Fyrstu drer-
aðgerðina á íslandi gerði Björn Ólafsson
árið 1892 við afar frumstæðar aðstæður
í heimahúsi. Um miðja síðustu öld fór
aðgerðin þannig fram að augasteinninn
var fjarlægður í heilu lagi gegnum 10-12
mm skurð. Skurðsárið var saumað með
átta til tíu saumum og sjúklingar voru
inniliggjandi í 7-10 daga. Gerviaugasteinar
voru fyrst settir í augu um 1950 en áratugi
tók að fullkomna tæknina. Um 1960 tóku
smásjáraðgerðir að ryðja sér til rúms í
augnskurðlækningum og hafði það í för
með sér gríðarlegar framfarir sem ekki
sér fyrir endann á. í dag fer dreraðgerð
fram í gegnum 2,5-3,0 mm skurð þar sem
augasteinninn er klofinn upp með hljóð-
bylgjum og samanbrotinni linsu er komið
fyrir inni í auganu og ekki þarf sauma í
skurðsárið. Sjúklingar eru að öllu jöfnu
útskrifaðir heim einni klukkustund eftir
aðgerð. Langur biðlisti hefur verið eftir
dreraðgerðum en á síðustu árum hefur
hluti þessara aðgerða verið útvistaður hjá
tveimur einkafyrirtækjum með góðum
árangri.
Sjónlagsgallar, nærsýni, fjarsýni og
sjónskekkja, eru algengir og notar um
þriðjungur til helmingur manna gleraugu
eða snertilinsur. Tilraunir til að leiðrétta
sjónlagsgalla með skurðaðgerð hófust á
seinni hluta tuttugustu aldar og á síðustu
árum hafa leysiaðgerðir við sjónlagsgöll-
um orðið útbreiddar. Á íslandi hafa sjón-
lagsaðgerðir verið framkvæmdar í á annan
áratug og nú sinna þrjár einkareknar
augnlæknastöðvar þessum aðgerðum.
Mikil gróska er í rannsóknum á augn-
sjúkdómum. íslendingar eru langlífir og
ætla má að sjónskertum Islendingum
fari fjölgandi og þörfin fyrir augnlækna-
þjónustu fari vaxandi. Augnlækningar eru
mjög háðar tækjum og þau verða sífellt
betri en einnig dýrari. Það er mikilvægt
fyrir okkur að halda í við tæknina en með
áframhaldandi framförum í greiningu og
meðferð horfa augnlæknar og sjúklingar
þeirra björtum augum til framtíðar.
270 LÆKNAblaöið 2013/99