Fréttatíminn - 19.12.2014, Page 10
Train Smarter with
the Kinetic inRide
and inRide App.
Learn more about power training at: kurtkinetic.com/inride
KRÍA HJÓL - GRANDAGARÐUR 7 - 101 REYKJAVÍK s.5349164 INFO@KRIAHJOL.IS
KINETIC ROAD MACHINE
+ inRIDE WATT METER
Smart-phone* based
costing hundreds more.
Kinetic2015_inRide_100x100.indd 2 10/22/14 1:10 PM
* Works with Apple™ iOS devices with Bluetooth Smart®
Mikill vöxtur var í kortaveltu útlend-
inga hér á landi í nóvember, eða sem
nemur um 32,5% í krónum talið frá
sama tíma í fyrra. Samkvæmt tölum
Seðlabanka Íslands nam kortavelta
erlendra ferðamanna alls 6,9 millj-
örðum króna í mánuðinum saman-
borið við 5,2 milljarða króna á sama
tíma í fyrra. Greining Íslandsbanka
bendir á að þessi mikli vöxtur rími
vel við tölur Ferðamálastofu um
brottfarir útlendinga í nóvember,
en þeim fjölgaði 31% á milli ára.
Alls nam kortavelta Íslendinga
í útlöndum 8,4 milljörðum króna í
nóvember og var kortaveltujöfnuð-
ur, þ.e.a.s kortavelta útlendinga að
frádreginni kortaveltu Íslendinga í
útlöndum, óhagstæður um tæpa 1,6
milljarða króna í mánuðinum. „Það
er þó mun hagstæðari útkoma en
áður hefur verið í nóvembermánuði,
að nóvember 2008 undanskildum,
segir Greiningin og bætir því við
að það sé ekki nýtt að kortaveltu-
jöfnuðurinn sé óhagstæður þrátt
fyrir að ferðamannajöfnuðurinn
sé hagstæður, „enda eyðir hver Ís-
lendingur mun meira í útlöndum en
hver erlendur ferðamaður gerir hér
á landi.“
Kortaveltujöfnuður hefur aldrei
verið eins hagstæður og nú. -jh
Ferðamenn aukin kortavelta sýnir hraðan vöxt Ferðaþjónustu
„Strauja“ kortin í gríð og erg
Gjaldeyrisstreymi vegna erlendra ferða-
manna hefur aldrei verið meira en á
árinu sem er að líða.
v erð á hráolíu hefur lækk-að lygilega síðustu mán-uði, en frá miðju ári hefur
olíuverðið lækkað í kringum 49%.
Þegar þetta er skrifað [á þriðjudag]
stendur verð á Brent hráolíu í 59,3
USD tunnan og hefur það ekki verið
lægra síðan á miðju ári 2009,“ segir
Greining Íslandsbanka. „Síðustu ár
virðist olíuverð hafa átt sér ákveðið
gólf í kringum 100 USD tunnan. Ef
marka má erlendar fréttir virðast
hins vegar margir sérfræðingar
þessa dagana álíta að hið nýja gólf
verði í kringum 60 USD tunnan.
Verðið gæti þó leitað enn lengra
niður, náist ekki samstaða meðal
OPEC ríkjanna um að draga úr
framboði,“ segir enn fremur.
Greiningardeildin rekur síðan
ýmsar kenningar um ástæður lækk-
unar olíuverðs á alþjóðlegum mörk-
uðum en víkur síðan að horfum á
næstunni og hvaða þýðingu lækkun
olíuverðs hefur hér á landi.
„Verð olíu á framvirkum mark-
aði hefur haldið áfram að lækka
á síðustu vikum. Framvirkt verð í
desember á næsta ári er nú um 10%
lægra en fyrir viku síðan og um 14%
lægra en fyrir tveim vikum síðan.
Það er því allt útlit fyrir að olíuverð
haldist lágt áfram, í það minnsta
hlýtur að teljast ólíklegt að það fari
aftur yfir 100 USD tunnan alveg á
næstunni.
Verðlækkanir á innfluttri hrávöru
hafa alla jafnan svipuð áhrif á hag-
kerfið og skattalækkanir þar sem
lægra verð á nauðsynjavöru eyk-
ur rými til kaupa á annarri vöru.
Áhrifin geta því orðið til aukinnar
einkaneyslu. Erfitt er að spá fyrir
um áhrifin hér heima. Markaðsverð
eldsneytis hefur lækkað töluvert á
síðustu vikum en þó ekki jafn mikið
og við sjáum erlendis. Lækkað verð-
lag til neytenda verður hins vegar
aldrei í prósentutölum jafn mikið og
verðlækkun á hráolíu. Í fyrsta lagi
er auðvitað krónutöluskattur á elds-
neyti og hins vegar þurfa olíufélögin
að standa undir ákveðnum föstum
kostnaði sem breytist ekki þó olíu-
verð lækki. Það má þó leiða líkur
að því að enn sé töluvert svigrúm
til lækkunar eldsneytis hér heima,“
segir greiningardeildin.
Deildin víkur síðan að því hvaða
áhrif lækkun olíuverðs hafi á ferða-
þjónustuna, þá atvinnugrein sem
hefur verið í mestum vexti hérlend-
is, mikilvægustu grein þjóðarbúsins
hvað gjaldeyrissköpun varðar. Hún
telur að lækkun eldsneytisverðs geti
haft þó nokkur áhrif á greinina. „Í
fyrsta lagi má búast við því að verð
á flugi lækki þar sem dragi úr sér-
stöku eldsneytisgjaldi. Í annan stað
þá getur eldsneytisverð haft áhrif á
mat félaga á arðsemi einstakra flug-
leiða. Með öðrum orðum má segja
að hugsanlega verði einhverjar flug-
leiðir héðan og hingað arðsamar
sem voru það ekki áður með tilheyr-
andi áhrifum á ferðamannafjölda...“
„Lágt olíuverð hefur væntanlega
jafnframt einhver jákvæð áhrif á af-
þreyingarfyrirtæki í ferðaþjónustu
sem nota mikið eldsneyti, svo sem
jeppa- og snjósleðaferðir, þar sem
eldsneytiskostnaður er væntanlega
stærsti kostnaðarliður þeirra ásamt
rekstrarkostnaði í formi afskrifta
vegna árlegrar notkunar tækja.“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
eldsneyti „lygileg lækkun á verði hráolíu“
Lægra olíuverð hefur áhrif á atvinnugreinar hérlendis, ekki síst jákvæð áhrif á ferðaþjónustuna,
þá grein sem aflar mests gjaldeyris fyrir þjóðarbúið.
Verðlækkun á hráolíu á erlendum mörkuðum hefur verið lygileg, að mati Greiningar Íslandsbanka. Verðið hefur lækkað um 49%
frá miðju ári.
Enn svigrúm til lækk-
unar eldsneytisverðs
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gjafakort
Borgarleikhússins
Gefðu töfrandi stundir í jólapakkann. Kortið
er í fallegum umbúðum, gildir á sýningu
að eigin vali og rennur aldrei út.
Opið til 22 í kvöld
www.icewear.is
ÞINGHOLTSSTRÆTI, REYKJAVÍK - HAFNARSTRÆTI, AKUREYRI
LOÐSKINN
STÓRLÆKKAÐ VERÐ TIL JÓLA!
BERG Hanskar úr lambaskinni
kr. 7.350
KVÍSL Hanskar úr lambaskinni
kr. 12.900
7.900Tilboð 5.990Tilboð
10 fréttir Helgin 19.-21. desember 2014