Fréttatíminn - 19.12.2014, Blaðsíða 18
Á
Á óvart kemur að húsgögn sem verið hafa í
Ráðhúsi Reykjavíkur frá vígslu þess séu eftir-
líkingar þekktra erlendra húsgagna, eins og
Fréttablaðið greindi frá í vikubyrjun. Þar kom
fram að framleiðandi húsgagnanna sem líkt
er eftir í ráðhúsinu hafi farið fram á að eftir-
líkingunum verði eytt. Sú krafa er að vonum
enda er alþjóðleg barátta í gangi gegn eftir-
líkingum eða fölsunum sem þessum og Toll-
stjóraembættið tekur þátt í því. Verkefnið
beinist að því að vekja athygli á
vörufölsun og tengslum við fjöl-
þjóðlega skipulagða glæpastarf-
semi. Herferðin ber yfirskrift-
ina: „Falsanir: ekki kaupa hlut
í skipulagðri glæpastarfsemi“.
Borgarráð Reykjavíkur fjallaði
um málið í liðinni viku og vís-
aði því til borgarlögmanns, sem
ákvað að farga bæri eftirlíking-
unum.
Reykjavíkurborg getur enda
ekki verið þekkt fyrir að kaupa
eftirlíkingar verka kunnra erlendra hönnuða
sem vernduð eru að höfundarétti sem nytja-
list vegna frumleika við hönnun. Í maí síðast-
liðnum dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur til
eyðingar 53 eftirlíkingar þekktra hönnunar-
fyrirmynda, þar á meðal þekktra stóla eins
og Egginu, Svaninum, Corona og Cassina stól
og sófum, en eftirlíkingar síðastnefndu hús-
gagnanna munu vera í ráðhúsinu, samkvæmt
fyrrgreindri frétt.
Þegar raktar voru málsástæður og lagarök
stefnenda fyrir héraðsdómi kom fram að auk
brots á höfundarrétti væri verið að nýta áunna
viðskiptavild auk þess sem eftirlíkingarnar
væru lélegri að gæðum en frumgerðirnar og
orðspor rýrnaði með notkun eftirlíkinga. Í nið-
urstöðu dómsins kom fram að eftirlíkingarnar
væru allar óvandaðri en frumgerðirnar, bæði
hvað frágang varðaði og efnisval, auk þess
sem þær voru flestar þyngri og ómerktar. „Til-
gangurinn með gerð þeirra var augljóslega sá
að líkja eftir frumgerðinni í öllum meginatrið-
um með sérstakri áherslu á sérkenni hennar,“
sagði ennfremur.
Fram hefur komið að húsgögnin í Ráðhús
Reykjavíkur hafi á sínum tíma verið keypt í
góðri trú. Þótt húsbændur þar ráði vali hús-
gagna, væntanlega í samráði við arkitekta
eða hönnuði, kemur á óvart að valin hafi verið
erlend húsgögn í hið glæsilega ráðhús, sem
jafnt tekur á móti innlendum sem erlendum
gestum. Húsgögn á slíkum stað eru því áber-
andi og væntanlega góð kynning fyrir inn-
lenda gæðaframleiðslu, að undangengnu út-
boði þar um.
Áherslan var önnur þegar kom að öðru
stórhýsi í eigu Reykjavíkurborgar og ríkisins,
tónlistarhúsinu Hörpu. Meirihluti almennra
húsgagna sem valinn var í það mikla hús var ís-
lensk hönnun. Meðal annars voru 970 eintök af
stólnum Magna framleidd fyrir Hörpu en hann
er hannaður af Valdimar Harðarsyni arkitekt.
Fjöldi íslenskra framleiðenda fékk verkefni
við framleiðslu húsgagnanna. Má þar nefna
Axis húsgögn, Pelko, G.Á. Bólstrun, Zenus
Bólstrun, Stjörnustál og Stáliðjuna. Fyrir sam-
eiginleg rými listamanna og annarra notenda
hússins var valin stóla- og sófalínan Dímon
eftir Erlu Sólveigu Óskarsdóttur, húsgagna- og
iðnhönnuð. Þá voru skrifstofuhúsgögn í Hörpu
framleidd af Axis húsgögnum. Sérhæfð hús-
gögn, meðal annars sérhannaðir stólar fyrir
hljóðfæraleikara, voru keypt að utan.
Í kjölfar ákvörðunar borgarlögmanns um að
farga eftirlíkingum hönnunarhúsgagnanna í
Ráðhúsi Reykjavíkur liggur endurnýjun fyrir.
Þá hlýtur leiðin sem farin var við val húsgagna
í Hörpu að verða ofan á. Það þarf ekki annað
en skoða upplýsingar sem fáanlegar eru hjá
Hönnunarmiðstöð Íslands og verslunum sem
leggja áherslu á sölu vandaðra húsgagna að
til sölu eru glæsileg húsgögn eftir íslenska
hönnuði. Hönnunarmiðstöð hélt árið 2009
sýningu þar sem kynnt voru brot af því besta í
íslenskri hönnun með áherslu á húsgagna- og
vöruhönnun og arkitektúr í víðum skilningi.
Það er því úr nægu að moða fyrir stofnanir
og fyrirtæki hins opinbera, hvort heldur er á
vegum ríkis eða sveitarfélaga. Það á að vera
þeim keppikefli að stuðla að hönnun og fram-
leiðslu íslenskra gæðahúsgagna. Þar má taka
einkaframtakið til fyrirmyndar en í kynningu
á nýlegu Icelandair hótel Reykjavík Marina er
tekið sérstaklega fram að öll húsgögn hótels-
ins séu íslensk hönnun.
Eftirlíkingar hönnunarhúsgagna í Ráðhúsi Reykjavíkur
Íslensk hönnun í opinberar byggingar
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjÁLMTýsdóTTiR
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Takk
fyrir að
velja
bækur
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39
Metsölulisti
Eymundsson
1.
LJÓÐ OG LEIKRIT. VIKA 50
Metsölulisti
Eymundsson
3.
LJÓÐ OG LEIKRIT. VIKA 50
Metsölulisti
Eymundsson
5.
LJÓÐ OG LEIKRIT. VIKA 50
Metsölulisti
Eymundsson
2.
LJÓÐ OG LEIKRIT. VIKA 50
Metsölulisti
Eymundsson
4.
LJÓÐ OG LEIKRIT. VIKA 50
Metsölulisti
Eymundsson
6.
LJÓÐ OG LEIKRIT. VIKA 50
18 viðhorf Helgin 19.-21. desember 2014