Fréttatíminn - 19.12.2014, Blaðsíða 96
96 matur & vín Helgin 19.-21. desember 2014
Hvít jól
Í síðustu viku fjölluðum við um nokkrar helstu
rauðvínsþrúgurnar og hvaða mat þær eiga helst
samleið með. Í þessari viku er komið að þeim hvítu.
Hvítvín er svo sannarlega ekki eingöngu til að sötra
í saumaklúbbnum eða á opnunum listasýninga
og það hentar með svo miklu meira en bara fiskmeti
þó einn helsti styrkleiki þeirra sé þar. Jólin eru kannski oftar rauð en hvít í fleiri en einum skiln-
ingi en þó þau séu rauð utandyra er um að gera að hafa þau hvít innandyra.
Albert Bichot Heritage 1831 Chardonnay
Gerð: Hvítvín
Uppruni: Búrgúndí, Frakkland 2012
Styrkleiki: 13%
Þrúga: Chardonnay
Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.898
Fínasta Búrgúndí chardonnay góðu verði
miðað við hvað er hægt að eyða í þessi vín.
Fínlegt með sítrus og eplum. Létt eikað og
skemmtilegt. Beint í hörpuskelina.
Hardys Nottage Hill Chardonnay
Gerð: Hvítvín
Uppruni: Ástralía, 2013
Styrkleiki: 13,5%
Þrúga: Chardonnay
Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.399
Nýjaheims chardonnay sem þó reynir að
líkjast frönskum ættingjum. Léttur ávöxtur,
milt og með vanillu og smá eik. Steinliggur
með fiskmetinu og ekki síður smjörsm-
urðum kjúlla með smá hvítlauk.
Muga Fermentado en Barrica
Gerð: Hvítvín
Uppruni: Rioja, Spánn 2013
Styrkleiki: 13%
Þrúga: Víura
Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.790
Ein bestu hvítvínskaup sem þú gerir í
ríkinu. Heilmikið í flöskunni fyrir pening-
inn. Létt og ljóst og leikur í munni með
eikuðu eftirbragði. Frábært vín sem gefur
rauðvínbróður sínum ekkert eftir. Helst að
njóta þess eintómt en það mun bæta skel-
fiskréttinn þinn umtalsvert.
Pfaff Gewurztraminer
Gerð: Hvítvín
Uppruni: Alsace, Frakkland 2012
Styrkleiki: 13,5%
Þrúga: Gewurztraminer
Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.650
Þetta vín er deilir saumavélagæðum nafna
síns. Virkilega skemmtilegt vín með smá
sætu og fáguðum eiginleikum, síturs og
apríkósu. Passar með fáránlega breiðu
úrvali af mat allt frá hamborgarhrygg upp í
sterkt indverskt tandoori.
Willm Pinot Gris Reserve
Gerð: Hvítvín
Uppruni: Alsace, Frakkland 2013
Styrkleiki: 12,5%
Þrúga: Pinot Gris
Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.799
Alsace er alveg fáránlega flott svæði og
spýtir frá sér alls konar gæðahvítvínum.
Þetta smásæta pinot gris er ljúft og milt
með steinefnum og ljósum léttum ávexti.
Gott til söturs einsamalt en tekur kjúlla og
mikið kryddaðan mat í nefið líka.
Vicar’s Choice Riesling
Gerð: Hvítvín
Uppruni: Marlbourough, Nýja Sjáland, 2011
Styrkleiki: 11,5%
Þrúga: Riesling
Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.499
Hér er á ferðinni þurr Riesling. Vínið er
ferskt og skemmtilegt með áberandi sítrus
og greipkeim í bragðinu. Skemmtileg til-
breyting við sætari ríesling vín. Gott með
alls konar mat en spennandi að prófa með
ferskuostum, t.d. ferskum og sýruríkum
geitaosti.
Cono Sur Sauvignon Blanc Reserva
Especial
Gerð: Hvítvín
Uppruni: Chile 2012
Styrkleiki: 13%
Þrúga: Sauvignon Blanc
Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.395
Nýjaheims sauvignon blanc. Ferskur
fyrir allan peninginn með aspas og
sítrus, brakandi þurrt og gott. Frábært og
frískandi með grilluðum fiski, sérstaklega
ef það er sítrona einhvers staðar með í för.
Gott ostavín líka, prófaðu brie eða aðra
milda hvítmygluosta.
Dourthe No1 Sauvignon Blanc
Gerð: Hvítvín
Uppruni: Bourdeaux, Frakkland 2013
Styrkleiki: 12%
Þrúga: Sauvignon Blanc
Verð í Vínbúðunum: Kr. 2.298
Bordeaux sauvignon blanc eru venjulega
blönduð með semillion þrúgunni en
þetta er hreinn og beinn sauvignon. Þurr
og frískandi, greip og steinefni. Góður
með salati þar sem smá balsamic eða
sítrónusýra hefur fengið að fljóta með.
Chardonnay
Lykilbragð: Sítrus,
melóna og ananas
auk smjörs og vanillu
þegar það er eikað.
Chardonnay er lykil-
þrúga Búrgúndíhérðs
þar sem steinefnin eru
lykilatriði í vínum eins
og frá Chablis en mörg
frábær chardonnay
koma frá líka frá
Chile og Kaliforníu og
Ástralíu.
Passar best með:
Chardonnay er mjög
gott matarvín og
passar vel með hvítu
kjöti eins og kjúklingi
og svínakjöti og nýtur
sín í botn með skelfiski
og feitari hvítum fiski,
sérstaklega ef það
er aðeins smjörað og
eikað.
Gewurztraminer
Lykilbragð: Léttir
suðrænir ávextir,
ferskja, rósarblöð og
krydd. Eitt besta svæðið
fyrir gewurztraminer
er Alsace í Frakklandi.
Stíllinn er ýmist sætur
eða þurr.
Passar best með:
Þurrt passar það vel
með reyktum laxi og
krydduðum réttum.
Sætt gengur vel með
ávaxtaríkum eftir-
réttum og feitum rjóma-
kenndum lifrarkæfum
og paté-um.
Pinot Gris / Pinot
Grigio
Lykilbragð: Pera,
hunang, epli og sítrus.
Alsace í Frakklandi
er þekkt fyrir sætari
hunangsrík pinot gris á
meðan betri ítölsk pinot
grigio eru þurrari með
meiri steinefnum.
Passar best með: Þurrt
nýtur sín með svínakjöti
og rjómapasta. Sætara
hefur það svipaða
eiginleika og gewurzt-
raminer og passar vel
með feitum kæfum og
rjómlöguðum eftir-
réttum.
Riesling
Lykilbragð: Lime, græn
epli og hunang. Þýsk
riesling eru frábær jafnt
þur sem sæt. Einnig
koma góð sæt og þurr
riesling frá Alsace en
nýrri lönd eru að ryðja
sér rúms eins og Nýja
Sjáland.
Passar best með: Þurrt
með alikjöti eins og
önd eða gæs. Sæt eru
best með eftirréttum,
búðingi og ávaxta-
kokteilum.
Sauvignon Blanc
Lykilbragð: Sítrus, asp-
as, grösugt, ylliblóm,
kattahland, sýruríkt og
arómatískt. Bordeaux
sauvignon blanc eins
og Sancerre og Pou-
illy-Fumé eru ein þau
frægustu en Nýja Sjá-
land og Chile gera lika
frábær þannig vín.
Passar best með: Hvers
konar fiskur og skel-
fiskur, spæsí asískur
matur, sýruríkur og
beiskur matur eins og
grænt salat sem og
ferskostar.
Metsölulisti
Eymundsson
Landkynningarbækur. Vika 50
1.
Takk
fyrir að
velja
bækur
Metsölulisti
Eymundsson
Landkynningarbækur. Vika 50
3.
Metsölulisti
Eymundsson
Landkynningarbækur. Vika 50
2.
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39