Fréttatíminn - 19.12.2014, Blaðsíða 120
Í takt við tÍmann vivian ÓlafsdÓttir
Reynir að hætta að vera leiðinleg á Facebook
Vivian Ólafsdóttir er þrítug og rekur ættir sínar til Færeyja og Mosfellsdals. Hún lauk leiklistarnámi við Kvikmynda-
skóla Íslands árið 2012 og stundar nú nám í Heilsumeistaraskólanum. Vivian lék í átaksmyndbandi UN Women á
dögunum. Hún nýtur þess að vera heima hjá sér og horfir mikið á bíómyndir með manninum sínum.
Staðalbúnaður
Ég pæli ekkert í fötum og geng eiginlega
bara í notuðum fötum. Það hljómar eins
og ég sé útigangsmanneskja en ég held
bara vel utanum þau föt sem ég á. Ég vil
helst bara vera í einhverju þægilegu, það
er minn stíll.
Hugbúnaður
Ég er mikil fjöskyldumanneskja. Ég og
maðurinn minn eigum fjórar stelpur
samtals, tvær þeirra eru hjá okkur aðra
hverja viku. Við reynum að gera mikið
saman, fara í sund eða heimsóknir, fara í
ferðalög eða hafa bara kósí og skemmti-
legt saman. Ég horfi mikið á bíómyndir
með manninum mínum sem er leikstjóri.
Við höfum gaman af því og pælum í þessu
saman. Ég horfði síðast á Nightcrawlers
sem er var góð. Síðasta sjónvarpssería
sem ég datt inn í var House of Cards.
Vélbúnaður
Ég er eins og amma mín þegar kemur að
tölvum og tækni, ef ekki verri. Ég vildi
óska þess að ég væri græjutöffari. Sem
betur fer er maðurinn minn klár í þessu.
Hann þarf meira að segja að hjálpa mér
að dánlóda. Ég er mjög léleg á Facebook
og er sennilega einhver leiðinlegasta
manneskja sem þú finnur þar. Ef ég tala
ekki um börnin þar, þá er ég nöldrandi.
Ég viðurkenni þetta fúslega en ég er að
reyna að bæta mig.
Aukabúnaður
Ég kann ágætlega að elda og út frá námi
mínu í Heilsumeistaraskólanum er ég
að læra ýmislegt nýtt. Það er mikið að
gerast í eldhúsinu þessa dagana og holl-
usta og meðvitund eru í aðalhlutverkinu.
Fólkið á heimilinu hefur tekið vel í þessar
breytingar, við maðurinn minn þurfum
alla vega bæði á þessu að halda. Uppá-
haldsstaðurinn minn er heima, í þau
fáu skipti sem við fáum frí viljum
við bara vera heima. Helstu
áhugamál mín eru leiklistin
og heilsan í gegnum námið
mitt. Mér finnst reyndar
ógeðslega gaman að
fara að veiða, ég hef það
frá pabba mínum. Það
er yndislegt að sitja
með veiðistöngina með
lakkríspoka eða bjór í
góðu veðri.
Heim
Jón Jónsson
Jón er næstum kominn heim
Draumatengdasonurinn
Jón Jónsson sendir nú
frá sér plötu á íslensku
í fyrsta sinn. Ég segi
bara til hamingju, það
er ákveðið þroskamerki
tónlistarmanns að
viðurkenna uppruna
sinn og hafa kjark til
þess að syngja popp-
tónlist á hinu ástkæra
og ylhýra. Platan
byrjar á kunnuglegu
gítarströmmi Jóns í
titillaginu og þar fer
afskaplega þægileg
poppplata af stað.
Það er ekki verið að
finna upp hjólið, enda
er kannski ekki verið
að ætlast til þess af
þeim söngvara sem
Jón er. Það eru aðrir í
því. Stuðboltinn, sem
Jón er þekktur fyrir,
sýnir hér styrk sem
hann hefur ekki gert
áður, en það er í rólegri
lögunum. Maður þarf
nefnilega ekkert alltaf
að vera massahress.
Ykkar koma er t.d fínt
popplag, sem og flest
lögin á plötunni. Þó
mörg þeirra séu úr
sömu uppskriftabók-
inni. Stundum er gott
að lesa fleiri bækur. Jón
sýnir þó jákvæða þróun
í lagasmíðum og hann
er á réttri leið.
Bestu lögin eru Ykkar
koma, Sátt og Gæti þín.
525
Gunnar Gunnarsson
Fullkomnun
Djasspíanistinn og
organistinn Gunnar
Gunnarsson heldur áfram
að setja sálmana í sinn
búning. Að þessu sinni eru
með honum gítarleikarinn
Ásgeir Ásgeirsson og
kontrabassaleikarinn
Þorgrímur Jónsson sem
leika bæði sálma gamla
og nýja, sem og önnur lög
valin af Gunnari. Talan 525
er sálmanúmer sálmsins
Til þín, drottinn hnatta
og heima eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, sem er
á plötunni. Gunnar hefur
einstakt lag á að setja
þessa gömlu sálma í
djassföt, og láta þá hljóma
sem ný lög. Eins er svolítið
skandinavískur keimur af
þessari plötu og hún rímar
mjög við snjó og skamm-
degi, en á jákvæðan hátt
þó. Samleikur tríósins er
gríðar gott. Dínamík til
mikillar fyrirmyndar og
það heyrist vel í snarstefj-
un hljóðfæraleikaranna
hversu mikla tilfinningu
þeir hafa fyrir laglínunum
og hljóðfærinu. Maður
endurheimtir smá trú á
mannkyninu þegar maður
hlustar á þessa plötu. Ég
er búinn að hlusta á hana
æði oft, og mun gera
áfram.
Bestu lögin eru Vaktu
minn Jesú, vaktu í mér.
Morgunsálmur. Máríuvers
og Dýrð, vald, virðing.
John Grant
J. G. ásamt Fílharmóníuhl. BBC
Falleg viðbót
Tónlistarmaðurinn og
stjúpsonur Íslands, John
Grant, hefur undanfarið ár
rúmlega, verið á tónleika-
ferðalagi þar sem hann
hefur ásamt hljómsveit
sinni kynnt síðustu plötu
sína Pale Green Ghosts,
sem kom út á síðasta ári.
Nýlega tók Grant upp safn
laga sinna ásamt BBC
Fílharmóníunni og er plata
með þessum upptökum
nýkomin út. Tónlist Grant
er eiginlega fullkomin til
svona útsetninga. Eiginlega
eru mörg lögin hreinlega
nær sínu náttúrúlega um-
hverfi þegar heilli sinfóníu
bætt við. Útsetningarnar,
sem eru skrifaðar af konu
að nafni Fiona Brice, sem
mest hefur unnið með
bresku hljómsveitinni
Placebo, eru mjög smekk-
legar. Tónlist Grant er oft á
tíðum mínímalísk og falleg
og eru útsetningarnar mjög
hjálplegar til þess að undir-
strika þessa eiginleika. Ekki
má þó gleyma hljóm-
sveit John Grant sem að
sjálfsögðu er á sínum stað,
og er skipuð Íslendingum.
Það er greinilegt að bandið
hefur verið að túra mikið
á árinu því hrynsveitin er
þéttari en 80% súkkulaði.
Bestu lögin eru Sigourney
Weaver, GMF, Pale Green
Ghosts og Queen of
Denmark.
Plötuhorn Hannesar
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
120 dægurmál Helgin 19.-21. desember 2014
FACEBOOK.COM/ORGREYKJAVIK
INSTAGRAM @ORG_REYKJAVIK
LAUGAVEGI 58
organic
fair trade
fashion