Fréttatíminn - 19.12.2014, Blaðsíða 116
É g er loksins búinn að læra að það þýðir ekkert að halda tónleika á aðventunni án
þess að vera með leynigest og helst
fleiri en tvo. Þannig að við erum
núna að landa samningum við leyni-
gesti, alveg hægri vinstri. Það verða
engir venjulegir jólasveinar,“ segir
Svavar Pétur Eysteinsson, tónlistar-
maður og forsprakki hinnar sívin-
sælu hljómsveitar Prins Póló.
Prinsinn og Hirðin, eins og fylgi-
sveit hans kallast, leggur undir sig
dansstaðinn Iðnó í kvöld, föstudags-
kvöld, og hefur boðið nokkrum af
sínum eftirlætis listamönnum að
troða upp með sér. Á gestalistanum
eru Dr. Gunni með hljómsveit sína
og Dj. flugvél og geimskip auk Hug-
leiks Dagssonar. Og leynigestirnir
áðurnefndu.
Þetta er búið að vera annasamt
ár hjá þér, fyrst Sorrí og svo París
norðursins. Og fjórar tilnefningar
til Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Er meira nýtt stöff á leiðinni? Meiri
spilamennska plönuð?
„Nú reynir maður að sýna smá
festu í bústörfunum, það þýðir ekk-
ert að hlaupa á eftir hvaða giggi sem
er. En við verðum á Sónar í febrúar
og svo nær maður vonandi að hræra
í lag áður en vorar á ný.“
Hvernig er formið á prinsinum
(og hirðinni)?
„Formið er dúndur gott. Prinsinn
er búinn að vera að skemmta með
Baggalúti í Háskólabiói alla síð-
ustu helgi en ætlar að freista þess
að komast heim í fyrramálið til að
klappa rollunum og hitta fjölskyld-
una sem húkir vatnslaus í rokinu,“
segir Svavar, en viðtalið var tekið í
byrjun vikunnar. „Svo verður brun-
að beint í bæinn aftur til að kveikja
á kertunum í Iðnó. Frúin kemur
með, enda lykilmanneskja á lykla-
borðinu.“
Hvað verður á boðstólum í Iðnó?
Öll bestu lögin eða bara langar og
proggaðar útgáfur af minna þekkt-
um lögum?
„Eins og svo oft áður þá verður
þetta bland af hvoru tveggja. Það
er ekki hægt að bjóða fólki upp á
stanslaust stuð að eilífu, það verð-
ur að progga þetta niður á eitthvað
sómasamlegt plan inn á milli,“ segir
Prinsinn.
Iðnó opnar klukkan 21 í kvöld og
fyrsta sveit stígur á svið klukkutíma
síðar. Miðaverð er 2.000 krónur og
forsala fer fram á Miði.is.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
TónlisT sörfhljómsveiT allra landsmanna í háTíðarskapi
Brim spilar undir dvergglímu í Iowa
s örfhljómsveit allra lands-manna verður í hátíðarskapi nú um jólin. Brim spilar á
tveimur uppákomum nú í kring-
um jólin en ókeypis er á báða við-
burðina.
Sveitin kom saman aftur í sumar
eftir margra ára hlé og hefur end-
urkomunni verið fagnað mikið af
stuðboltum og öðru skemmtilegu
fólki hér á landi sem og í Iowa í
Bandaríkunum þar sem hún er
bókuð til að leika á beikonhátíð í
lok janúar. „Þegar við spiluðum á
Beikon-hátíðinni á Skólavörðustíg
í sumar var þar skipuleggjandi
hátíðarinnar í Iowa. Hann var svo
hrifinn að hann bókaði okkur á
hátíðina sína,“ segir Bibbi Barti,
gítarleikari Brims. „Þar verðum
við aðalatriðið á þessari 16 þúsund
manna hátíð. Einnig munum við
koma fram í morgunþætti þar sem
dvergar munu glíma á meðan við
spilum sörf rokk. Án gríns,“ segir
Bibbi.
Brim spilar ósungið brimbrett-
arokk af hreinustu gerð sem lætur
allar fætur hreyfast og bossa dill-
ast. Sveitin er skipuð af þeim Bibba
Barta, Kafteini Skegga, Danna Bít,
Óla Raka og nýjum meðlimi sem
kallast „Hrafninn“.
„Það má bara búast við hefð-
bundnu rosastuði að venju frá okk-
ur,“ segir Bibbi. „Bara eins og er
alltaf á Brim böllum. Við ætlum að
setja nokkur jólalög í skemmtileg-
an sörf búning og það verður mikið
partýstuð.“
Brim spilar á Jólaballi Húrra á
annan í jólum, þann 26. desember.
Sveitin var sérstaklega fengin til að
halda uppi stuðinu á skemmtileg-
asta djammdegi jólanna.
Einnig hitar hljómsveitin sig
upp fyrir jólaballið með því að spila
á tónleikum á Kex hosteli laugar-
daginn 20. desember. Á Kex spilar
einnig hin síkáta og skemmtilega
Dj. Flugvél og geimskip. -hf
Brim spilar á jólaballi á Húrra á annan í jólum og á Kex hosteli á laugardagskvöld.
Tónleikar prins póló og vinir í iðnó á fösTudagskvöld
Prinsinn
í dúndur
formi í Iðnó
Prins Póló og vinir hans hertaka Iðnó á föstudagskvöld.
Mörg vinsælustu lög landsins undanfarið fá að hljóma
enda hefur Prinsinn átt feikigott ár. Hann er nú á fullu að
bóka leynigesti fyrir kvöldið.
Prinsinn af Póló,
Svavar Pétur
Eysteinsson,
er mættur á
mölina og
treður upp í
Iðnó í kvöld,
föstudags-
kvöld. Ljós-
mynd/Hari
116 menning Helgin 19.-21. desember 2014
FLIP snagi 5.950 kr.
CONCEAL
ósýnilega hillan
Lítil 2.950 kr.
Stór 3.950 kr.
tEkk COmPANy
kAuPtúN 3
SímI 564 4400
vEFvErSLuN á www.tEkk.IS
Opið mánudaga til laugardaga kl. 11-18
og sunnudaga kl. 13-18
Fallegar jólagjafir
frá Umbra
BOw-DrESS
skartgeymsla
2.950 kr.
LINGuA veggklukka
7.950 kr.
FLEur klútahengi
1.950 kr.
BOHO klútahengi
tilboðsverð 1.950 kr.
áður 2.950 kr.
HANGIt hengi fyrir
myndir og minnismiða
4.950 kr.
BLACk tIE
bindahengi
2.450 kr.
GrIDDArt
myndarammi
7.950 kr.
SENZA myndarammi
3.250 kr.