Fréttatíminn - 19.12.2014, Blaðsíða 68
68 fjölskyldan Helgin 19.-21. desember 2014
Samskipti um jól og áramót
J ól og áramót er spennandi tími fyrir flesta. Skipst er á litríkum pökkun, farið er í heimsóknir og matarboð til vina og ættingja, flugeldar sprengdir í loft upp þegar gamla árið kvatt og nýju ári fagnað. Fyrir aðra fylgja honum blendnar tilfinningar,
jafnvel kvíði og sorg. Tómi stóllinn sem fyrrverandi maki átti við matarborðið minnir
á brostna drauma og fjarveru foreldris. Skiptir ekki öllu máli hver átti frumkvæðið að
skilnaðnum, hann er sársaukafullur fyrir marga.
Með tímanum ná hinsvegar flestir að aðlagast breyttum aðstæðum og lífið fær
nýjan lit. Í tóma stólinn er sestur nýr maki, stundum með börn af fyrra sambandi
sem kallar á nýtt skipulag og sveigjanleika. Gera þarf ráð fyrir fyrrverandi mökum
og stjúpforeldrum í skipulagningu hátíða, sem fólk er mistilbúið til, eða eins og ein
mamman sagði: „Hvað kemur mér það við hvernig minn fyrrverandi og hans nýja
hafa það um jólin? Ég ætla bara að halda mín jól!“
Okkur kemur í sjálfu sér ekki við hvernig fyrrverandi makar halda jól frekar en
hvernig nágrannar okkar halda jól, en það skiptir börn miklu máli að eiga átakalaus
jól með sínum nánustu. Þegar börn eiga foreldra á tveimur heimilum og kannski
stjúpforeldra á þeim báðum er nánast öruggt að þau skilgreina fjölskyldu sína á annan
hátt en foreldar þeirra. Fyrrverandi makar skilgreina sjaldnast hvort annað sem hluta
af fjölskyldu sinni en þeir tilheyra oftast báðir fjölskyldum sameiginlegra barna, sem
og stjúpforeldar barnanna, hálfsystkini og stundum stjúpsystkini. Fólk sem annað for-
eldrið veit jafnvel lítil eða engin deili á. Það er þó ekkert gefið í þessum efnum frekar
en annað. Stundum, ef engin eða lítil samskipti eru á milli stjúpforeldra og barna
eða þau ekki góð, eru meiri líkur á að viðkomandi teljist utan fjölskyldunnar en ella.
Viðhorf barns og þarfir geta farið saman með þörfum og viðhorfum foreldris en
þær þurfa hinsvegar ekki að gera það. Það er því ekki víst að barnið sé jafn spennt
að ganga inn í hefðir stjúpforeldrisins og foreldri þess, eða segja skilið við stjúpforeldri
sem foreldrið hefur sagt skilið við. Í slíkum aðstæðum þarf að vera vilji til að finna lausn
sem hentar öllum, ekki bara sumum.
Stundum er óskað eftir nærveru barna á fleirum en einum stað á sama tíma. Það væri
lúxus ef hægt væri klóna börnin. Þannig gæti Júlía verið með mömmu sinni hjá nýju
tengdaforeldrum hennar á jóladag og verið á „sama tíma“ með föður sínum og stjúpu hjá
föðurforeldrum í Grafarvogi, já eða á Akureyri hjá stjúpafa og -ömmu. Þá gæti hún líka
verið á „sama tíma“ með Helga, sammæðra hálfbróður sínum hjá föður hans í Hafnarfirði,
sem hún hefur alltaf litið á sem föður sinn. Mamma hennar talaði líka alltaf um hann sem
pabba hennar, þangað til þau skildu síðastliðið vor. Nú heitir hann „Gummi pabbi Helga“
hjá mömmu hennar.
Þangað til við höfum náð að þróa þá tækni betur að klóna fólk þurfa foreldrar, sem og
stjúpforeldrar séu þeir til staðar, að komast að einhverju samkomulagi um veru barna um
hátíðir. Það er ágætt að hafa það á bak við eyrað í skipulagningunni að börn þurfa hvíld,
að í árinu eru 365 dagar og ekkert sem bannar að halda þá alla hátíðlega ef við viljum.
Séum við eitthvað illa upplögð má biðja vini og vandamenn um aðstoð að koma börnum
á milli heimila og slappað af í staðinn með konfekt og kertaljós. Börn telja ekki daga og
mínútur nema helst þegar von er á jólasveininum, þau kunna hinsvegar vel að meta góð
samskipti foreldra númer eitt, tvö og þrjú. Skipta fjölskyldugerðir þar engu máli. Veljum
frið – og eigum öll gleðileg jól!
Stundum er óskað eftir nærveru barna á fleirum en
einum stað á sama tíma. Það væri lúxus ef hægt væri
klóna börnin.
Eru mínir nánustu þeir
sömu og barna minna?
Valgerður
Halldórs-
dóttir
félagsráðgjafi
og kennari
heimur barna
1. Verslun
Höfum í huga að börn og
verslun fara ekki vel saman.
Að taka börnin í verslunar-
leiðangur getur verið ávísun
á áreiti og stress sem er ekki
ákjósanleg líðan, hvorki um jól
né nokkurn tíma.
2. Samvera
Samvera er það sem jólin
snúast um og það sem öll börn
þrá að eiga með foreldrum
sínum. Þess vegna eru jólin
hátíð barnanna. Notalegar
samverustundir eru það sem
gera jólin að jólunum fyrir börn
jafnt sem fullorðna.
3. Hefðir
Jólin snúast líka um hefðir en
höfum í huga að við verðum
að vera fær um að laga hefð-
irnar að þörfum barnanna,
því sumar hefðir samræmast
hreinlega ekki þroska og
þolinmæði barna.
4. Regla
Börn þurfa reglu, sama hvort
það eru jól eða ekki. Það er
sérstaklega erfitt fyrir minnstu
krílin að halda ekki í sínar
föstu venjur, því það er þeirra
öryggi.
5. Svefn
Svefn er mikilvægur fyrir alla
en sérstaklega börnin. Það er
voða notalegt að vaka fram-
eftir í fríinu en of lítill svefn
kemur niður á fjölskyldunni í
pirringi sem enginn vill taka
með í jólafríið.
6. Jólastress
Ef við verðum stressuð látum
þá börnin ekki finna fyrir því.
Reynum að gera stressfría
hluti eins og að baka eða fara í
göngutúr, með börnunum.
7. Gjafir
Kennum börnunum að gefa og
þiggja. Jólin eru frábær tími til
að virkja samkennd og gleði.
8. Matur
Njótum þess að borða góðan
mat en munum að hafa reglu á
matartímum. Börnin eiga það
til að gleymast í öllum veisl-
unum en mikilvægt er að þau
fái holla og næga næringu eins
og alla aðra daga ársins. Svo er
gaman að leyfa börnunum að
taka þátt í eldamennskunni.
9. Útivera
Gerum gott úr hvaða veðri
sem er því útivera er svo góð í
jólafríinu. Ef það vill svo vel til
að jólin eru hvít það verður öll
fjölskyldan að gera snjókall,
finna sleðabrekku eða fara í
fjöllin.
10. Endurvinnsla
Notum tækifærið og kennum
börnunum að vera umhverfisvæn.
Öll börn hafa gaman að því að
hafa verk að vinna og að flokka
allar umbúðirnar sem fylgja
jólunum er fínt verk að vinna.
Eigum stresslaus jól með börnunum
Laugavegi 53 Sími 552 3737 Opið öll kvöld til 22:00
Iana Reykjavík
Úlpur,
Peysur,
Buxur,
Kjólar ,
Kápur,
Útigallar og
Húfur
Einnig mikið
úrval af
sængurgjöfum.
Mikið úrval af fallegum jólagjöfum....
Heilunarguðsþjónusta á vegum Sálarrannsóknar-
félags Íslands, Fríkirkjunnar og Kærleikssetursins.
Aftansöngur á aðfangadagskvöldi.
Söngkonana Nathalía Druzin Halldórsdóttir syngur
einsöng.
Sönghópur Fríkirkjunnar syngur jólin inn og leiðir
safnaðarsöng undir stjórn Gunnars Gunnarssonar.
Sr. Hjörtur Magni þjónar fyrir altari.
Miðnætursamvera á jólanótt.
Páll Óskar og Monika Abendroth ásamt strengjasveit.
Sr. Hjörtur Magni talar til viðstaddra. Sönghópur
Fríkirkjunnar ásamt Gunnari Gunnarssyni.
Mætið vel tímanlega til að fá góð sæti!
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag. Ljósanna hátíð
fagnað með rísandi sól.
Egill Ólafsson söngvari syngur og spjallar um tón-
listarval sitt. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson, Söng-
hópur Fríkirkjunnar ásamt Gunnari Gunnarssyni.
Aftansöngur á gamlárskvöldi.
Brynhildur Þóra Þórsdóttir syngur einsöng og
Sigurður Flosason leikur á saxófón.
Sun. 21.des.
kl. 14:00
Mið. 24. des.
kl. 18:00
Mið. 24. des.
kl. 23:30
Fim. 25. des.
kl. 14:00
Mið. 31. des.
kl. 17:00
Föstud. 19. des. Laugard. 20 og Sunnud. 21.des. Opið 12:00 - 20:00
Mánud. 22. des. og Þorláksmessa 23. des. Opið 11:00 - 22:00
Aðfangadagur 24. des. Opið 10:00 - 12:00
Hannaðu Draumavagninn þinn
HLÍÐASMÁRA 4
201 Kópavogi
BarnidOkkar.is
+
Vagnstykki
+
Kerrustykki
+
Skiptitaska
Verð frá kr. 99.900
Velkomin í nýja verslun okkar í Kópavogi