Fréttatíminn - 19.12.2014, Blaðsíða 76
76 jólagjafir Helgin 19.-21. desember 2014
Sigga og Timo eru Hafn-
firðingum og öðrum
landsmönnum löngu kunn
fyrir tímalausa og klassíska
hönnun sína á skarti. Þau
eru nú að hefja tuttugasta
og annað starfsárið í
verslunarrekstri undir sömu
kennitölu. Frá upphafi hafa
þau rekið verslun sína í
Hafnarfirði, nú á Linnets-
stíg 2.
Tækifæri til
að gera
skartgripi
persónulegri
en áður
H já Siggu og Timo tekur þú þátt í óslitnu ferli. Við hönnum, smíðum,
sýnum og seljum gripina okk
ar á einum og sama stað. Fyrir
okkur er skartgripur hugmynd
smiðsins, sem er breytt í varan
legt efni, og eigandinn gerir að
sinni. Eigandinn lýsir hug sínum
með skartinu. Hún
eða hann leggur áherslu á pers
ónu sína með gripnum og tjáir til
finningar, rifjar upp minningar
eða minnist örlagaríkra ákvarð
ana. Skartgripur sem gegnir
slíku hlutverki er vel heppnaður.
Hönnunin og handverkið veitir
okkur gleði og við leitumst við að
færa hana alla leið til þess sem
skartið eignast, fyrir okkur eru
verkin ekki bara vinna heldur
lífsstíll.
Unnið í samstarfi við
Siggu og Timo.
Fersk og vönduð hönnun
– falleg hönnun
Skartgripur sameinar oftast fegurð
og glæsileika, hvort sem er í einfald-
leika sínum eða sem flókin smíði.
Sem betur fer er fegurðarskyn og
smekkur fólks afar persónubundinn.
Við lærum
– meðan við lifum
Gullsmíðar þróast og við tökum þátt í
breytingunum. Við teljum mikils virði
að hafa getað sameinað íslenska og
finnska skartsmíðahefð í einn stað og
eigin frumleika og hjartans áhuga-
mál í annan stað og hafa fengið jafn
góðar viðtökur og raun ber vitni.
Við fylgjumst með nýjungum í
hönnun og tileinkum okkur nýja
tækni og fullkomnari verkfæri. Auk
þess treystum við erlend sambönd.
Finnskir gullsmiðir hafa unnið hjá
okkur og kennt okkur margt nýtt, líkt
og bandarískir eða finnskir félagar
og vinir með sama brennandi áhuga
og við. Svo kennum við íslenskum
gullsmíðanemum.
Gullið tækifæri
– samtarf við þig
Dvölin og vinnan á Íslandi hefur gert
okkur kleift að þróast og dafna í
starfi. Okkur hefur ekki aðeins verið
vel tekið heldur fáum við dýrmætar
ábendingar og óskir frá mörgum
viðskiptavinum. Þeir taka líka oft
þátt í hönnun pantaðra skartgripa.
Það gefur þeim nýtt og persónulegt
yfirbragð og bæði við og viðskipta-
vinirnir hafa eignast enn meira í
skartinu en margan grunar.
Gullsmiðirnir Sigga og Timo
hafa rekið verslunina Sigga
og Timo í Hafnarfirðinum
síðan árið 1993.
E iður Ágúst Gunnarsson hóf ung ur söngnám í Tón listar skól an um í Reykja vík hjá
Þor steini Hann es syni og síðar hjá
Vincenzo Maria Demetz. Seinna
fór hann til náms við óperu
deild Konservatori um der
Stadt Köln í Þýskalandi. Eft
ir námið í Köln starfaði Eið
ur við Óper una í Düsseldorf
áður en leiðin lá í Óper una í
Linz í Aust ur ríki. Síðan var
hann ráðinn til Óperu húss
ins í Aachen og starfaði þar
uns hann flutti aftur heim til
Íslands árið 1987. Hann helgaði sig
að mestu söngkennslu hér á landi,
bæði við Söng skól ann í Reykja vík og
Tón list ar skóla Hafn ar fjarðar. Einn
ig söng hann nokk ur hlut verk við
Þjóðleik húsið og Íslensku
óper una, bæði á meðan hann
bjó er lend is og eft ir að hann
flutt ist heim.
Eiður Ágúst lést í júní 2013
og hefur eiginkona hans,
Lucinda Grímsdóttir, beitt
sér fyrir útgáfu sönglaganna.
„Mig langaði að útbúa ein
hvers konar minnisvarða um
líf og störf Eiðs og með hjálp góðra
vina og vandamanna, og þá sérstak
lega Ólafs Vignis, varð þessi diskur
til,“ segir Lucinda. Útgáfan inni
heldur tvo tónlistardiska með upp
tökum sem gerðar voru fyrir Ríkis
útvarpið á árunum 19691986 og er
afar verðmætt framlag til varðveislu
íslenskrar tónlistar. Meðal tónskálda
sem eiga lög á diskunum eru Jón Ás
geirsson, Páll Ísólfsson, Þorkell Sig
urbjörnsson og Sigvaldi Kaldalóns,
auk margra annarra. Kveðja mín er
söngljóð er fáanlegur í verslunum 12
Tóna og Skífunnar.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
„Kveðja mín er söngljóð“ er
nýútkominn geisladiskur þar
sem Eiður Ágúst Gunnarsson,
bassi, syngur ýmis íslensk
sönglög við undirleik Ólafs
Vignis Albertssonar, en þeir fé-
lagar störfuðu saman í fjölda-
mörg ár og voru miklir mátar.
Minnisvarði
um líf og störf
Eiðs Ágústs
Gunnarssonar
Kveðja mín
er söngljóð
Eiður Ágúst
Gunnarsson bassi
Ólafur Vignir
Albertsson píanó
Einsöngslög / Icelandic songs
Takk fyrir að
velja bækur
08.12.–14.12.2014
1
BARNABÆKUR
08.12.–14.12.2014
2
BARNABÆKUR
08.12.–14.12.2014
3
BARNABÆKUR
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39