Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.12.2014, Blaðsíða 64

Fréttatíminn - 19.12.2014, Blaðsíða 64
Hannes Friðbjarnarson hannes@ frettatiminn.is JÓLAHUGLEIÐING Fúmm fúmm fúmm É Ég las í einhverjum miðli nýlega að mjög mörgum finnst lagið Ef ég nenni, með Helga Björnssyni, eitt besta jólalagið. Það er alveg merki- legt þar sem það er bara einu sinni talað um jól í þessu lagi. Ef síðasta erindinu er sleppt þá er ekkert sem segir okkur að við getum ekki hlustað á þetta lag í útilegum. Mér finnst Ef ég nenni gott lag, en mér finnst það akkúrat ekkert jólalegt. Út frá þessu fór ég aðeins að velta fyrir mér jólalögunum okkar og hvað það sé við þau sem geri þau að klass- ískum jólalögum. Það eiga allir sínar minningar við gömlu lögin frá Hauki Morthens, Elly og Villa og Svanhildi Jakobs. Enda er ekkert jafn jólalegt. Þau eru líka að segja jól, eða hátíð í hverri einustu hendingu sem sungin er. Hvít jól, Jólin koma, Jólin jólin, Jóla jólasveinn, Hátíð í bæ og Jólin allsstaðar. Það er ekki hægt annað en komast í jólaskap. Svo eru það lögin sem minna bara ótalfátt á jólin, sérstaklega þau sem sungin eru á jólatrésskemmtunum. Göngum við í kringum er gott dæmi. Þar er gengið í kringum einiberjarunn. Einiberja- runnar á Íslandi eru vandfundnir og þeir sem finnast eru á stærð við skóf- ar. Enda tökum við textann frá Sví- þjóð þar sem er krökkt af einiberjum og runnarnir hinir glæsilegustu. Við syngjum þetta samt hátt og snjallt og krakkarnir skilja ekki neitt. Einnig er forsjárhyggjan gríðarlega skemmtileg í þessu lagi, ég hef til að mynda ekki skúrað heima hjá mér á öðrum dögum en laugardögum síðan ég man eftir mér. Adam sem átti syni sjö er annað dæmi um ójólalega texta. Hann átti syni sjö, sjö syni átti hann. Við erum búin að ná því, en af hverju klappar hann alltaf saman lófunum þegar hann er búin að sá? Foreldrar mínir eru duglegir í garðinum, en ég hef aldrei séð þá klappa né stappa þegar þeir er að setja niður vorlaukana. Þetta lag ætti líka að vera sungið um sumar, ekki um jól. Í skóginum er einnig lag sem ég skil ekki. Héri sem leitar skjóls hjá jólasveini undan veiðimanni sem er að fara að skjóta hann…. í alvöru? Er bara allt í góðu að syngja þetta með bros á vör. Jú, jú hérinn sleppur, en veiðimaðurinn er enn laus. Auðvitað eru svo falleg lög eins og Bráðum koma blessuð jólin og Heims um ból sem ylja manni á milli þessarar vitleysu. Nú er komið að Nú skal segja. Nú skal segja er eitt mesta kynjamisréttislag sem samið hefur verið, og umfram allt ekki jóla- legt. Stúlkur vagga brúðu, hneigja sig og prjóna sokka. Á meðan strák- arnir sparka í bolta, taka ofan og taka svo í nefið. Það sem meira er, allir snúa sér í hring þegar þessu er lokið. Hvaða rugl er þetta? Einu sinni gekk ég yfir sjó og land, eða hvað? Það er ekki hægt að ganga yfir sjó nema maður heiti Jesús. Jesús hitti aldrei gamla menn sem bjuggu á Klapplandi, Stapplandi, Grátlandi, Hlælandi, Hopp landi, kannski á Íslandi, en ég efa það. Hvaðan koma þessi lög? Ég hef ekki hugmynd um það, en velti þessu fyrir mér á hverjum jólum. Björgvin Halldórsson er ábyrgur fyrir mörgum jólalögum sem allir fá á heilann. Mörg af þeim eru svona lög sem flokkast undir „Guilty pleas- ure“, eins og Þú og ég með Höllu Margréti, Fyrir jól og Ég hlakka svo til með Svölu, Þú komst með jólin til mín með Ruth Reginalds og svo auðvitað Ef ég nenni með meistara Helga Björns. Öll þessi lög eru 20 ára eða eldri og það eru aðeins nokk- ur lög á undanförnum 10-15 árum sem hafa fest sig í sessi að einhverju ráði. Maður stendur sig alltaf að því að setja bara gömlu góðu plöturnar á fóninn. Jólalögin minna mann á barnajólin og hvað maður ólst upp við sem barn og unglingur. Jólalag minnar er kynslóðar er Jólahjól. Fólk hefur misjafnar skoð- anir á því eins og öðru, en mér þykir vænt um Jólahjól. Það er einhver húmor í því sem mín kynslóð tengir við og Stebbi Hilmars er söngvari minnar kynslóðar. Ég er þó ekkert viss um að mér mundi líka við það að heyra Stebba syngja það í dag. Það er einhver tónn í röddinni hans Stebba í gamla daga sem passar við lagið, einhver nettur frekjutónn. Stebbi er þó miklu betri söngvari í dag, en Jólahjól mundi ekkert henta honum. Hver verða jólalögin sem næstu kynslóðir munu ylja sér við? Kannski bara Jólahjól eða jólalagið hans Magna míns, sem ég man aldrei hvað heitir. Gott og blessað, en ég óska eftir því að ungar hljómsveitir, eins og AmabAdama eða Kaleo, sendi frá sér jólalag, allavega eitt. Ef það virkar þá verður það spilað í 100 ár, í það minnsta, og nýjustu kyn- slóðirnar munu eignast sína Svölu eða sinn Bó. Ef það virkar ekki, þá eru allir búnir að gleyma því milli jóla og nýárs. Ég ætla samt að halda mig við gömlu slagarana frá Hauki, Svan- hildi og Villa. Líklega hlusta ég svo á Sálumessu Mozarts líka... ef ég nenni. Te ik ni ng /H ar i 64 viðhorf Helgin 19.-21. desember 2014 Spenna á skuggaskeri VVV „… það verður erfitt að bíða í ár eftir næstu sögu af krökkunum á Skuggaskeri.“ Árni Matthíasson / Morgunblaðið „Sagan er spennandi og skilaboðin eru sígild: verum góð hvert við annað og við umhverfi okkar og sýnum tillitssemi!“ María Bjarkadóttir / bokmenntir.is VVVVV Halla Þórlaug Gísladóttir / Fréttablaðið www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.