Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.12.2014, Page 60

Fréttatíminn - 19.12.2014, Page 60
Þegar tilveran fór á hvolf Svarthvítir dagar heitir æskuminningabók Jóhönnu Kristjóns- dóttur sem kemur út nú fyrir jólin. Hún hefur mælst afar vel fyrir enda er þar lýst af einlægni og húmor uppeldi ungrar stúlku í Reykjavík á árunum 1940-1956. Í bókinni er mikið af eftirminnilegum mannlýsingum en einnig hjartnæmir kaflar um mikil alvörumál. Jú, mamma sagði að læknirinn, sem hún var meira að segja búin að velja fyrir mig og hringja í, ætti að skoða hvort meyjarhaftið væri ekki örugglega á sínum stað, heilt og fínt. Þ að var á marskvöldi 1954 sem tilvera mín fór á hvolf. Ég sat inni í herberginu mínu og var vafalaust að lesa skólabækurnar. Þá var bankað og pabbi kom inn í her- bergið og hann var svo grafalvarleg- ur á svipinn að ég var viss um að nú hefði einhver að minnsta kosti dáið. „Ég verð að tala við þig um alvar- legt mál, Jóhanna mín,“ sagði hann og röddin var þung en samt nokkuð hlutlaus. Hann fékk sér sæti á rúm- inu mínu. Ég var enn nokkuð viss um að einhver væri dáinn. En svo var ekki. Aftur á móti væri komið upp úr dúrnum að ég mætti ekki fara í sveit í Hjarðarholt um vorið eins og síðustu tvö sumur. Það var vissulega á við dauðsfall, og það þyrmdi yfir mig þar sem ég starði þrumu lostin á pabba minn þar sem hann sat á rúminu og bæði skrokkurinn og röddin virtust nú þyngjast óðfluga. „Þórður og Nanna segjast ekki geta tekið ábyrgð á þér eftir síðasta sumar,“ sagði hann og ég skellti aft- ur bókunum. Hér var eitthvað undar- legt á seyði þótt enn hefði ég ekki áttað mig til fulls. „En ég stóð mig vel, pabbi, Þórður borgaði mér hátt kaup. Manstu hvað þú varst montinn af mér,“ sagði ég hraðmælt og var komin með dynj- andi hjartslátt. „Hjalti sagði líka að ég ynni eins og fullorðin mann- eskja,“ bætti ég við. Þá var eins og æði rynni á pabba og hann barði saman höndunum og varð eldrauður í framan þegar hann hvæsti: „Já, þú virðist nú halda að þú sért orðin fullorðin að ýmsu öðru leyti líka ... ekki einu sinni fermd ... ert með strák á öllum böllum og laumast út með honum ... maður veit nú hvað getur gerst ... og þú ert bara barn!“ Aldrei séð pabba svona áður Ég hafði loksins fundið á mér með- an hann tætti út úr sér setninguna hvað mundi koma og ég var alveg kjaftstopp og fann kökkinn færast upp í hálsinn. Ég sagði með skjálf- andi röddu að ég og þessi umræddi strákur hefðum vissulega orðið skot- in hvort í öðru. En það hefði ekkert gerst nema við hefðum kyst og þá greip pabbi fram í fyrir mér og sagð- ist þekkja hvernig svona strákar væru og þessi væri eldri en ég og hann væri greinilega bara kolruglað- ur að vera að eltast við stelpukrakka. Þá fann ég allt í einu reiðina blossa upp. Það skyldi enginn komast upp með að gera einhvern sora úr þessu litla og fallega ástarævintýri okkar Heiðars á Svarfhóli sumarið áður, ekki einu sinni hann pabbi minn sem mér þótti vænna um en flesta aðra í þessu lífi. Mig langaði að æsa mig en ég reyndi að stilla mig eftir megni, því ég var líka smeyk við reiði pabba. Ég hafði aldrei séð hann svona áður. Ég reyndi að full- vissa hann um að það hefði ekkert gerst sem ég eða pilturinn þyrftum að skammast okkar fyrir. Nákvæm- lega ekki neitt. Ég sagðist vita hvað pabbi meinti en það væri ekki rétt. „Ég hef aldrei skrökvað að þér og mömmu,“ sagði ég og kökkurinn í hálsinum var orðinn æði fyrirferðar- mikill. Á næstu mínútum mundi ég bresta. „Allar stelpurnar í bekknum eru farnar að slá sér upp og hvað er þá athugavert við að ég verði líka skotin í strák ... og svona sakleysis- lega ... og hvað ertu að vitna í Þórð og Nönnu? Þau sögðu aldrei orð við mig um þetta.“ Svo fór ég að gráta og mér fannst að ég mundi aldrei geta hætt að gráta. Milli hviðanna stundi ég upp að ég segði satt og þau yrðu að trúa mér, þau bara gætu ekki annað því það hefði ekkert gerst. Steinrunnin af sorg og angist Smám saman hægðist á grátnum og pabba hafði líka vöknað um augu en hann sagði mér að Þórður í Hjarð- arholti hefði nýlega haft samband við sig og sagt sér frá því að þau Nanna óttuðust að samband okkar Heiðars hefði gengið of langt sum- arið áður. Og þau treystu sér ekki til að ég kæmi aftur ef þetta héldi svona áfram. Þau gætu ekki tekið ábyrgð á því sem gæti gerst. Pabbi bætti við að þeim mömmu hefði al- deilis brugðið svo hann hefði brunað í snjó og ófærð vestur í Hjarðarholt og fengið þar nánari lýsingar á pilt- inum sem um ræddi. Þetta væri hinn mesti kvennabósi og mesta furða að hann skyldi þó hafa haldið sig við mig eina. Við hefðum sést koma út úr hlöðunni á Leiðólfsstöðum í birtingu, við hefðum sést hér og við hefðum sést þar. Nú væri ég orðin árinu eldri og þá væri aldrei að vita hvað gæti gerst næsta sumar. „Þú færð vinnu hjá mér á skrif- stofu Regins,“ sagði pabbi. „Þann- ig verður þetta. Ég banna þér ekki að fara í Hjarðarholt í fríum en ég vil ekki sjá þennan strák og ég vil ekki sjá að þú talir við hann nokk- urn tíma.“ Svo fór hann og taldi greinilega nauðsynlegt til áréttingar orðum sínum að skella á eftir sér hurðinni. Og ég sat þarna steinrunnin af sorg og angist. Ég læsti herberginu mínu, dró af mér spjarirnar og fór undir sæng og skældi úr mér augun. Þegar pabbi vakti mig í skólann var ekkert á þetta minnst. Mamma var sofandi. Ég afþakkaði stuttlega að pabbi keyrði mig í skólann. Þegar ég kom heim tók mamma á móti mér með uppgerðarkæti. Hún sagðist vera búin að finna lausn á þessu öllu. Að vísu færi ég ekki í Hjarðarholt en annað væri hún búin að leysa. Ég sagði ekki orð, át ýsu- sporðinn og ætlaði síðan inn til mín að læra. En mamma elti mig, alltaf með sömu gleðilætin, og vildi segja mér hver lausnin væri. Ég ætti að drífa mig til kvenlæknis og láta skoða mig. „Skoða hvað?“ hreytti ég út úr mér. Jú, mamma sagði að læknirinn, sem hún var meira að segja búin að velja fyrir mig og hringja í, ætti að skoða hvort meyjarhaftið væri ekki örugglega á sínum stað, heilt og fínt. Svo gæfi hún mér vottorð um það og þau pabbi gætu sýnt það Hjarðar- holtshjónum til að sanna að þetta sem þau gæfu í skyn væri hugar- burður og vitleysa. Og svo brosti mamma út að eyrum eins og þetta væri bráðskemmtileg brella sem hún hefði fundið upp og ég ætti helst að klappa saman hönd- unum yfir hugkvæmni hennar. Móðir Jóhönnu hét Elísabet Ísleifsdóttir, sem hér sést með yngri dóttur sinni Valgerði. Elísabet átti til að vera nokkuð siðavönd og brást hart við þegar hún taldi dóttur sína komna út á refilstigu tilfinninganna. Faðir Jóhönnu, Kristjón Kristjóns- son. Hann var yfirleitt mjög hlýr og notalegur í umgengni við börn sín, en reyndi að sýna strangleika þegar hann óttaðist að dóttir hans væri lent í klóm kvennabósa! Jóhanna undi sér afar vel í sveit í Dölunum og langaði um tíma til að verða bóndi. En mikil og óvænt tilfinningamál settu strik í reikninginn. 60 bækur Helgin 19.-21. desember 2014
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.