Fréttatíminn - 19.12.2014, Qupperneq 66
66 ferðalög Helgin 19.-21. desember 2014
Í skotheldu vesti Í ferðalagið
Dekraðu við þig með dásamlegum vörum frá Treets
eða gefðu þeim sem þú elskar vellíðan sem fer vel með kroppinn.
Treets gjafaöskjur; sturtusápur, baðsölt og krem sem
derkra við þig, fríska og endurnæra húðina.
Treets hörfræ hitapokar sem mýkja vöðva og auka blóðæði.
Treets gelhanskar fyirir húðina, ilmkerti fyrir andrúmsloftið
og ölmargt eira sem fer vel með þig og þína.
Treets - fyrir þig og þína!
FRÁBÆRAR JÓLAGJAFIR!
Treets vörurnar fást hjá Lyu,Apótekinu, Heilsuhúsinu, Lyfsalanum, Lyaveri,Apóteki Garða-
bæjar, Apóteki Hafnararðar, Árbæjarapóteki, Akureyrarapóteki og Lyavali Mjódd.
Söluaðili: Innland ehf
o rðin mannrán, bílsprengj-ur og eldflaugaárásir hafa líklega ekki ratað í marga
ferðabæklinga hér á landi eða
annars staðar. Þau koma þó ósjald-
an fyrir í ferðalýsingum þeirra
fyrirtækja sem gera út á ferðalög
til svæða sem vestræn stjórnvöld
biðja þegna sína um að sneiða hjá.
Ferðaviðvaranir utanríkisráðu-
neyta verða því eins konar gæða-
stimpill fyrir viðkomandi ferða-
skrifstofur og samkvæmt grein í
hinu danska Politiken fer mark-
hópur þess háttar ferðalaga ört
stækkandi.
Dauðatúrismi
„Fólk sækist eftir því að komast
í snertingu við dauðann. Það vill
ferðast inn á stríðssvæði, á meðan
átökin eiga sér stað, vegna þess
að það er heillað af ástandinu,“ út-
skýrir prófessorinn John Lennon í
viðtali við Politiken en Lennon er
sérfræðingur í þeirri tegund ferða-
þjónustu sem hefur einhver tengsl
við dauðann. Hann segir ákveðinn
töfraljóma yfir þessum stríðs-
ferðum og þeir sem í þær fara
sækist eftir því að skapa sér sér-
stöðu. Mikil útbreiðsla samfélags-
miðla hefur einmitt verið talin ein
ástæða þess að sífellt fleiri sæki í
þess háttar ferðalög því fátt toppar
sjálfsmynd sem tekin er á átaka-
svæði.
Fimmtugir karlar
Ein þeirra ferðaskrifstofa sem
býður upp á stríðsferðir kall-
ast War Zone Tours og sérhæfa
starfsmenn hennar sig í því að
Ferðalög um ófriðarsvæði
Útlending-
um er oftast
ráðlagt að
halda sig
fjarri stríðs-
hrjáðum
löndum. Það
eru samt til
ferðaskrif-
stofur sem
sérhæfa sig
reisum um
vígvelli.
Það eru helst karlar á miðjum aldri sem
sækja í stríðsferðir og fargjaldið getur
numið milljónum króna. Ljósmynd/Nor-
dicPhotos/ GettyImages
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
fara með túrista um hættusvæði
í Írak, Beirút, Mexíkó, Súdan
og Sómalíu. Síðastnefnda landið
nýtur mestra vinsælda um þessar
mundir og kosta ferðirnar þangað
um fjórar milljónir króna. Aðeins
fjórir ferðalangar komast í hvern
túr og eina skilyrðið sem ferða-
skrifstofan setur er að þátttakend-
urnir blandi sér ekki í átökin. Það
eru helst vestrænir karlar fimm-
tugt sem sækja í þessa tegund
ferða.
Skothelt vesti fyrir 10 þúsund
Það þarf þó ekki að kosta milljónir
að kynna sér stríðsátök. Í sumar
buðust til að mynda ferðir um
ófriðarsvæði í Úkraínu fyrir um
áttatíu þúsund krónur. Gjaldið fyr-
ir þá sem vildu aðeins rétt stinga
nefinu inn var um tíu þúsund krón-
ur og fylgdi þá skothelt vesti og
vopnaðar vörður með í kaupunum,
samkvæmt frétt Daily Mail.
Mikil áhætta
Talsmaður danska utanríkis-
ráðuneytisins segir í viðtali við
Politiken að stjórnvöld geti ekki
bannað fólki að heimsækja þau
lönd sem eru á lista ráðuneytis-
ins yfir hættusvæði. Hann vill þó
benda fólki á að það taki mikla
áhættu með því að fara í svona
ferðir og þær geti haft miklar
fjárhagslegar afleiðingar fyrir
ferðalanginn og aðstandendur
hans. Vísar hann þar sennilega
til þess að vestrænt fólk er oft
skotmark mannræningja í þeim
löndum þar sem ástandið er
einna verst.