Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.12.2014, Blaðsíða 90

Fréttatíminn - 19.12.2014, Blaðsíða 90
90 heilsa Helgin 19.-21. desember 2014 Ráð til að forðast ofát um hátíðarnar Þ að er erfitt að standast freist-ingarnar í jólaboðunum þeg-ar girnilegur matur stendur til boða. Sumir sleppa kannski fram af sér beislinu og hugsa með sér að það séu jól og þá megi nú alveg láta eftir sér að borða vel. Í eitt eða tvö skipti er það í góðu lagi en þegar veislurnar eru orðnar ansi margar og teygjast jafnvel út allan desemb- ermánuð er annað uppi á teningn- um. Hér eru nokkur góð ráð um hvernig eigi að njóta góðs matar án þess það skaði heilsufarið. Algengast er að fólk borði of mikið af fitu, salti og sykri yfir jólin sem getur valdið hækkun á kólesteróli og þyngdaraukningu. Mikilvægast er að gæta hófs í átinu og velja til dæmis frekar að borða allt það sem manni sýnist í einn eða tvo daga yfir há- tíðirnar en gæta hófs alla hina. Ekki mæta svöng/svangur í jólaboð. Borð- aðu nokkrar hnetur eða fáðu þér létt og hollt snarl áður en þú mætir í boðið til að koma í veg fyrir að hungrið ráði för og þú borðar og mikið fyrir vikið. Fáðu hjálp Fáðu maka þinn eða vin til að hjálpa þér að forðast freistingarnar, en gætið þess að ræða framkvæmdina áður en þið farið í boðið. Þetta á ekki að skapa leiðinlegt andrúmsloft þar sem makinn er að skamma þig fyrir að borða eitthvað. Minnkaðu skammtinn Notaðu minni disk til að þú fáir þér minna á diskinn. Það getur líka verið gott að byrja á salatinu og fylla hálfan diskinn af grænmeti, og svo setja kjötið og annað á diskinn. Og ekki fara aðra ferð. Borðaðu hægt Tyggðu matinn vel og njóttu hvers bita. Veislumatur er ljúf- fengur og því engin ástæða til að gúffa honum í sig. Það getur tekið heilan allt að 20 mínútur að fá skilaboðin um að þú sért södd/saddur og gefðu þér því góðan tíma til að borða. Þú getur til dæmis tekið vatnssopa á milli bita til að hægja á þér. Veldu vel Veldu á diskinn þinn það sem þú færð sjaldan og notaðu plássið í maganum undir það sem þér þykir gott, en ekki fylla hann af brauði eða öðru því sem þú færð dagsdaglega. Drekktu í hófi. Áfengi getur skaðað dómgreind þína auk þess sem það er stútfullt af kaloríum og því skaltu gæta hófs. Sama má segja um gosdrykki. Stattu upp frá borðinu Það getur verið gaman að sitja við matarboðið og kjafta en það getur líka orðið til þess að þú borðið meira. Færðu þig frá matnum þegar þú ert búin/n að borða nóg. Það getur verið erfitt að standast matinn sem fylgir veislu- haldi. Vörn gegn sveppasýkingu í meltingarvegi B io-Kult Candéa er öflug blanda af vinveittum gerl-um, hvítlauk og frækjarna greipaldins sem veitir öfluga vörn gegn candida sveppasýkingu í meltingarvegi kvenna og karla. Sveppasýking getur lýst sér á mis- munandi vegu og geta einkennin meðal annars verið munnangur, fæðuóþol, pirringur, skapsveifl- ur, þreyta, meltingartruflanir, brjóstsviði, verkir í liðum, mígreni og ýmis húðvandamál. Bio-Kult Candéa er einnig öflug vörn gegn sveppasýkingu á viðkvæmum svæðum hjá konum. Bio-Kult Candéa hylkin henta vel fyrir alla, unga sem aldna. Þau fást í öllum apótekum, heilsuverslunum og í heilsuhillum stórmarkaða. Nán- ari upplýsingar má nálgast á icecare.is Átta ára gömul dóttir Heiðrúnar Guðmundsdóttur fann oft fyrir maga- og höfuðverk síðasta vetur. „Hún hafði mikla þörf fyrir sykur og reyndi oft að fá sér sætindi. Einstaka sinnum fékk hún ristilk- rampa sem gengu mjög nærri henni. Um vorið og fyrri hluta sumars ágerðust þeir og kvaldist hún mikið í hvert skipti,“ segir Heiðrún sem átti við sama vanda- mál að stríða sem barn og vissi því hvernig dótturinni leið og um hvað málið snérist. „Þegar ég leitaði eft- ir upplýsingum á netinu rakst ég á umfjöllun um Bio-Kult Candéa við sveppasýkingu og að það væri einnig hjálplegt við ristil- vandamálum. Þegar ég skoðaði málið nánar sá ég að hún hafði flest einkenni sveppasýk- ingar í meltingarvegi.“ Síðasta sumar byrj- aði dóttir Heiðrúnar að taka daglega inn tvö hylki af Bio-Kult Candéa og varð strax breyting á líðan hennar. „Hún hætti að kvarta undan magaverkjum, regla komst á melting- una og ristilkramparnir hættu. Í dag tekur hún samviskusamlega eitt hylki eftir kvöldmat og nú sjö mánuðum síðar hefur ristilkrampinn ekki látið á sér kræla. Sykurþörfin er mun minni og höfuðverkurinn heyrir nánast sögunni til og þar með sláum við tvær flugur í einu höggi. Ég er mjög þakklát fyrir þessa dásemdar vöru sem hefur gjörbreytt lífi dóttur minnar.“ Halldóra Sveinsdóttir hefur einnig góða reynslu af Bio-Kult Candéa en í mörg ár var melt- ingin í ólagi. „Af og til fékk ég brjóstsviða, var með uppþembu og sífellt ropandi. Þegar ég var sem verst var ég alveg stífluð í meltingarveginum. Eftir að ég byrjaði að taka inn Bio-Kult Can- déa hylkin lagaðist meltingin og óþægindin hurfu,“ segir Halldóra sem í dag er orkumeiri en áður og finnur mun á húðinni. „Bio- Kult Candéa er frábær vara sem ég mæli með.“ Bio-Kult Candéa veitir öfluga vörn gegn can- dida sveppasýkingu í meltingarvegi kvenna og karla. Birna Gísla- dóttir er sölu- og markaðs- stjóri IceCare. Bio-Kult Candéa hylkin fást í öllum apótekum, heilsuversl- unum og í heilsuhillum stórmarkaða. Nánari upplýs- ingar má nálgast á icecare.is. Bio-Kult Candéa hylki veita vörn gegn sveppasýkingu í meltingarvegi og á viðkvæmum svæðum kvenna. Lín Design Laugavegi 176 Glerártorgi lindesign.is Rúmföt fyrir börnin Frá 5.990 kr Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t Nóatúns hamborgarhryggur 1698 kr./kg Einnig til léttsaltaður, tilbúinn í ofninn Aðeins íslenskt kjöt í kjötborði Hinn margverðlaunaði Nóatúns hamborgarhryggur er kominn í verslanir!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.