Fréttatíminn - 19.12.2014, Síða 102
102 matur & vín Helgin 19.-21. desember 2014
Þrjár kynslóðir
af púnsum
Þegar kemur að kokteilum kemst enginn með tærnar þar sem Ási á Slippbarnum hefur hælana.
Ási hefur um árabil unnið á börum hér á landi og í Kaupmannahöfn og getur bæði reitt fram sí-
gilda kokteila sem og það nýjasta nýtt. Við fengum hann til að sökkva sér í sagnfræðirannsóknir
og grafa upp tvö gamla og góða púnsa auk þess sem hann reiðir fram eigin púns sem hægt er að
fá á Slippbarnum.
fonix.is • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • S. 552 4420
Mikið úrval af heimilistækjum
Kæli og frystiskápar
Spanhelluborð
Blástursofnar
Uppþvottavélar
Heimilistækjadagar í Fönix
20% afsláttur
Viskí púns
Börkur af sítrónum nuddaður upp úr hrá-
sykri, einn þriðji Laphroaig 10 ára viskí,
tveir þriðju soðið vatn.
„David Wondrich gerði þennan fyrir mig
í Kaupmannahöfn fyrir nokkrum árum,
en hann skrifaði einmitt bók sem fjallaði
um púnsa sem forvera kokteila. Það voru
eiginlega mín fyrstu kynni af púns,“ segir
Ási. „Það er talið að þessi púns hafi komið
með breskum sjómönnum frá Indlandi í
kringum 1770 og sumir telja að hann hafi
jafnvel komið fyrr. Mér finnst magnað
hvernig einfaldleikinn í þessum drykk
nýtur sín – krafturinn í viskíinu balanserast
í frekar aðgengilegan drykk.“
Port púns
Ási Á sliPPbarnum
„Púnsar eru vanmetin hefð og margir vilja tengja þá
við bollur en eru í raun miklu léttari. Þessi er beint
upp úr Harry Johnson’s Bartenders Manual og er
ótrúlega einfaldur. Það er að vísu Orchard síróp í
uppskriftinni og það er ekki vitað hvað er. Sumir segja
að það hafi verið kryddað eplasíróp en ég bjó bara
til mitt eigið sem ég nota epli og stjörnuanís í. Þessi
púns er í raun eins og svaladrykkur, það er ekki mikið
áfengi í þessu.“
„Þennan púns bjó ég til. Ég geri síróp úr Gewürzt-
raminer sírópí, tek bara eina flösku af hvítvíninu á
móti einni flösku af sykursírópi. Þetta er léttur og
skemmtilegur vínpúns, bættur með smá gini. Ég ber
þetta fram eins og í teboði, þá getur fólk ráðið sjálft
styrkleikanum og magni af ávöxtum.“
Þessi púns er fáanlegur á Slippbarnum
spiked Champagne Punch
2 barskeiðar Orchard síróp
2 barskeiðar sykur síróp
20 ml sítrónusafi
30 ml vatn
Glasið fyllt með muldum ís,
svo fyllt upp með portvíni,
hrært létt og skreytt með
berjum og jurtum.
70 ml Gewürztraminer síróp
40 ml lime
100 ml kampavín eða freyðivín
55 ml Old English gin
40 ml vatn
2 stilkar rósmarín