Fréttatíminn - 19.12.2014, Blaðsíða 122
Frímann Gunnarsson leyfir loftinu að leika um beran kroppinn á Skólavörðu-
stígnum á fimmtudag. Mynd/Hari
Dansáhugi Einstakt framtak á skólavörðustíg
VIVID er nýtt íslenskt dansverk eftir Unni Elísabetu Gunnarsdóttur, sem frumsýnt verður í
Kassanum í Þjóðleikhúsinu þann 28. desember. Undanfarnar vikur hefur farið fram söfnun á
Karolinafund til þess að fjármagna laun listafólksins sem stendur að verkinu. Þjóðleikhúsið
sér verkefninu fyrir húsnæði, ljósahönnuði og sýningarstjórn og ákvað hópurinn því að efna til
þessarar fjáröflunar. Lífskúnstnerinn Frímann Gunnarsson lét ekki sitt eftir liggja og ákvað að
styrkja sýninguna með óvenjulegum hætti.
f agurkerinn Frímann Gunn-arsson er mikill dansáhuga-maður og brá á það ráð að
labba nakinn niður Skólavörðustíg til
styrktar verkefninu. Það var brugð-
ið á það ráð að fá fyrirtæki til þess
að kaupa auglýsingaskilti sem Frí-
mann labbaði með og rann féð beint
til hópsins sem stendur að VIVID.
En af hverju að ganga nakinn?
„Jah, það er nú það. Það var nú
einfaldlega þannig að einu sinni sem
oftar leituðu til mín ungir listamenn
í vanda og í þetta sinn ákvað ég að
láta til mín taka. Mig hefur alltaf
langað til að verða dansari því ég hef
frábæran limaburð og þröngar dans-
buxur klæða mig einstaklega vel, því
rann mér blóð til skyldunnar,“ segir
Frímann, en hann og Gunnar Hans-
son, leikari og eiginmaður Unnar
Elísabetar, eru bundnir tryggðar-
böndum.
„Þessi hugmynd kom alveg frá
sjálfum mér, kannski í smá stundar-
brjálæði, en mér fannst þurfa að gera
eitthvað róttækt til þess að bjarga
þessu listaverki, svo var ég líka ný-
búinn að missa nokkur kíló og var
nokkuð stoltur af því. Kannski spil-
aði það inn í.“
Var þetta kannski eitthvað sem þú
bjóst ekki við að þurfa að gera?
„Ég viðurkenni reyndar að ég
bjóst nú ekki við því að þetta yrði að
veruleika. En nú viðurkenni ég að ég
stórsé eftir þessu! Ég veit ekki hvað
ég var að hugsa þegar ég stakk upp á
þessu. Það er desember og stórhríð
annan hvern dag, segir Frímann. En
svo er svo skrýtið að það leynist líka
einkennileg tilhlökkun inni í mér.
Það er eitthvað sem segir mér að ég
muni fá talsverða ánægju út úr því
að finna loftið leika um beran kropp-
inn... og ég hef talsverðar áhyggjur
af þessum kenndum.“
„En þar sem ég get ekki bakkað
út úr þessu héðan af þá bendi ég á
hversu táknrænt þetta er fyrir stöðu
listamannsins í nútímanum. Hann er
nakinn gagnvart markaðsöflunum.
Hann þarf að selja sig og líkama sinn
til þess að geta framið sína list. Þeg-
ar maður hugsar um þetta á þennan
hátt þá er þetta auðvitað svakalega
beittur gjörningur sem vonandi vek-
ur almenning til umhugsunar. En
auðvitað mun almúginn ekki skilja
þetta, hann vill bara graðhestarokk
og kókópöffs. Ég er vanur því að fólk
skilji mig ekki,“ segir Frímann.
Er þetta eitthvað sem þú getur
hugsað þér að gera aftur?
„Það fer eftir því hvernig þetta fer
hvort ég muni gera eitthvað slíkt aft-
ur. Fyrstu viðbrögð mín eru: Aldrei.
Ekki einu sinni til að bjarga lífi mínu.
En svo ef ég hugsa betur um það
þá myndi ég líklega gera það... þ.e.
til að bjarga lífi mínu. Og reyndar
líka ef ég fengi tækifæri til að setjast
niður með Dame Margaret Thatcher
og Sir Winston Churchill yfir tebolla
og brauðsneið með agúrku. En það
eru auðvitað ekki miklar líkur á því.“
Ertu kominn í jólaskap?
„Nei, ég get ekki sagt það, þetta er
ekki minn uppáhaldstími á árinu. En
ef ég kemst yfir breska ávaxtaköku
og púrtvín þá get ég látið fara vel
um mig í hægindastólnum og beðið
þess að þessi ósköp líði hjá,“ segir
Frímann Gunnarsson listunnandi.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Frímann gerir allt fyrir listina
Bækur forlagið BrEgst við vinsælDum Bókarinnar öræfa
Neyðarprentun á bók Ófeigs
„Eftir að Öræfi hlaut verðlaun
bóksala hefur hún mokast út úr
búðum. Ég rétt náði að koma inn
neyðar-endurprentun,“ segir Eg-
ill Örn Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Forlagsins.
Bók Ófeigs Sigurðssonar, Öræfi,
hefur notið mikilla vinsælda í jóla-
bókaflóðinu. Óhætt er að tala um
hann sem spútnik-höfundinn þetta
árið. Öræfi situr í fjórða sæti bók-
sölulista Félags íslenskra bókaút-
gefenda og var tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna. Í vik-
unni var hún valin besta skáld-
sagan meðal bóksala. Dómar hafa
verið afar jákvæðir og fékk bókin
til að mynda fjórar stjörnur í gagn-
rýni Fréttatímans.
Fáheyrt er að forleggjarar
panti endurprentun á bókum svo
skömmu fyrir jól. „Ætli þetta sé
ekki í fyrsta skipti á ferlinum sem
ég panta endurprentun svo seint í
jólavertíðinni,“ segir Egill. Starfs-
fólk prentsmiðjunnar Odda brást
við með hraði og verður nýja upp-
lagið komið í verslanir um helgina.
Alls hefur því bók Ófeigs verið
prentuð í um tíu þúsund eintökum.
Ólíklegt verður að teljast að
nokkur hafi séð þær vinsældir
fyrir. -hdm
Bók Ófeigs Sigurðssonar, Öræfi, hefur
notið fádæma vinsælda í
jólabókaflóðinu. Alls hafa
verið prentuð um tíu
þúsund eintök af henni.
Mozart við kertaljós
Hinir árlegu kertaljósatónleikar Camerarctica
verða haldnir í fjórum kirkjum á höfuðborgar-
svæðinu nú rétt fyrir jólin.
Camerarctica hefur leikið ljúfa tónlist eftir
Mozart í tuttugu og tvö ár og þykir mörgum
ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í
kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu. Tónleikarnir
verða sem hér segir: Hafnarfjarðarkirkju föstu-
dagskvöldið 19. desember, Kópavogskirkju
laugardagskvöldið 20. desember, Garðakirkju
sunnudagskvöldið 21. desember og Dómkirkj-
unni í Reykjavík mánudagskvöldið 22. desember.
Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast
þeir allir klukkan 21. Aðgangseyrir er kr. 2.500.-
og kr. 1.500.- fyrir nemendur og eldri borgara.
Frítt er inn fyrir börn. Miðasala við innganginn.
Megas flytur Jesúrímur
Megas og Sauðrekarnir flytja Jesúrímur
eftir Tryggva Magnússon, ásamt Ágústu
Evu Erlendsdóttur, í Gym & Tonic á Kex
Hostel að öðru sinni í kvöld, föstudags-
kvöld, 19. desember, klukkan 20.30.
Sauðrekarnir er hljómsveit leidd af Herði
Bragasyni organista og inniheldur hún
m.a. meðlimi Sinfóníuhljómsveit Íslands
sem og hljómsveitanna Hr. Ingi R., Júpiter,
U.X.I. og Tríó Sunnu Gunnlaugs.
Jólahönnunarmarkaður
í Hafnarhúsinu
Popup verslun heldur upp á hátíðarnar
með veigamiklum jólahönnunarmarkaði í
porti Hafnarhússins nú um helgina, 20.-21.
desember. Mismunandi blanda hönnuða
verður um helgina og því verður margt að
velja úr um í jólapakkann í ár.
Reykjavík Fashion Festival mun kynna há-
tíðina sína sérstaklega, Reykjavík Roasters
setur upp kaffihús, Blóma náttúra verður
með blómaskreytingar, jólavættir og
góðir tónar verða einnig á staðnum. Meðal
hönnuða sem sýna vörur sínar eru Amie,
Bara, Deathflower,
ErlaGísla, Fluga, Gling Gló, Gust, Ildem,
IngaSol, Kalda, Markrún, Marý, Pastelpa-
per, RFF og Rimmbamm. Opið verður frá
klukkan 11 til 17, báða dagana.
Högni syngur jólalög
Högni Egilsson treður upp í Mengi, Óðins-
götu 2, á sunnudagskvöld klukkan 21. Þar
ætlar hann að syngja jólalög á sinn sér-
staka hátt og leggja sitt af mörkum til að
skapa jólastemninguna í 101.
fridaskart.is
Strandgötu 43
Hafnarrði
íslensk hönnun í gulli og silfri
122 dægurmál Helgin 19.-21. desember 2014