Fréttatíminn - 19.12.2014, Page 124
HELGARBLAÐ
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Bakhliðin
Hvatvís
sippari
Aldur: 21 árs.
Maki: Helgi Ás Helgason.
Börn: Theódóra Líf, Heiðrós Elektra og
stjúpsonurinn Ásgeir Máni.
Menntun: Ókláruð.
Starf: Vinnur hjá Glaðheimum.
Fyrri störf: Frístundaleiðbeinandi.
Áhugamál: Tíska, leikhús, tónlist og
lífið sjálft.
Stjörnumerki: Ljón.
Stjörnuspá: Fullkomnunarárátta er
streituvaldur. Settu markið hátt og
farðu eftir því. Og þú kannt söguna á
bak við söguna.
Hún Védís er mjög metn-aðarfull,“ segir Helgi, eiginmaður Védísar. „Hún
getur verið afar ákveðin í því
sem hún tekur sér fyrir hendur,
sem er bæði kostur og galli. Hún
er hvatvís og maður veit aldrei
hverju hún tekur upp á. Hún er
mjög góð við eldamennskuna og
er mikil handavinnukona. Svo hef
ég aldrei hitt manneskju sem er
jafn góð að sippa,“ segir Helgi Ás
Helgason.
Védís Kara Reykdal Ólafsdóttir vildi láta
gott af sér leiða og stofnaði Facebook-
síðuna Jólakraftaverk í lok október. Hún
fékk tvær konur með sér í lið og hafa þær
síðustu vikur unnið hörðum höndum við
að taka á móti og úthluta jólagjöfum, en
alls hefur 121 barn fengið frá þeim gjafir
síðustu vikur. Allar upplýsingar má finna
á facebook síðunni Jólakraftaverk.
Hrósið ...
... fær hinn 36 ára gamli Eiður Smári Guðjohn-
sen sem spilaði sínar fyrstu mínútur með Bolton
Wanderers um síðustu helgi. Það er fagnaðarefni
að sjá Eið aftur á vellinum.
Flottir
plötuspilarar
Laugavegur 45
Sími: 519 66 99
Vefverslun: www.myconceptstore.is
Verð 39.900,-
NÝ SENDING