Fréttatíminn - 29.08.2014, Side 6
DORMA Holtagörðum, Reykjavík ✆ 512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri ✆ 558 1100
Húsgagnahöllinni, Reykjavík ✆ 558 1100
n Mjúkt og slitsterkt áklæði
n Aldrei að snúa
n Svæðaskipt poka gorma kerfi
n Steyptar kant styrk ingar
n Sterkur botn
n Burstaðar stállappir
n Heilsu- og hæg inda lag í
yfir dýnu
160x200 cM
TilBoðSveRð
127.415
Dýna, botn
og lappir
VeRðDæMi
NAtuRe’s
cOMfORt
heilsurúm
KOMDu til OKKAR!
við aðstoðum þig við
að finna drauma-
rúmið þitt!
HeilSuRúM á
fRáBæRu veRði
DúúúúnDuR TvennuTilBoð
20% AfsláttuR
18.900
kRónuR
tvennutilboð
sæNg + KODDi
DORMA dúnsæng
stök sæng fullt verð kr. 18.900
DORMA dúnkoddi
stakur koddi fullt verð kr. 4.900
Ferðaþjón-
ustan var á
síðasta ári sú
atvinnugrein
sem skilaði
þjóðarbúinu
mestum gjald-
eyrisstekjum,
26,8% af
heildartekjum
og er stærsta
útflutnings-
atvinnugrein
þjóðarinnar.
S tjórn Samtaka ferðaþjónustunnar, SAF, segir augljósa hagsmuni í því að einfalda virðisaukaskattskerfið
enda hafi ferðaþjónustan haft frum-
kvæði að því að setja á fót vinnuhóp til
að koma með hugmyndir til stjórnvalda
að því hvernig hægt væri að einfalda
annars afar flókið virðisaukaskattskerfi
í greininni og að gera það skilvirkara. „Í
dag er kerfið íþyngjandi, en fjármála- og
efnahagsráðuneytið er nú að vinna að
útfærslu,“ segir í ályktun stjórnarinnar
en þar segir einnig: „Þó er ljóst að þær
breytingar til einföldunar mega ekki
hafa áhrif á greinina til hins verra.“
Ferðaþjónustan var á síðasta ári sú
atvinnugrein sem skilaði þjóðarbúinu
mestum gjaldeyrisstekjum, 26,8% af
heildartekjum og er stærsta útflutnings-
atvinnugrein þjóðarinnar. Stjórn SAF
leggur út af þessu og segir að ferða-
þjónustan hafi haldið uppi hagvexti og
atvinnustigi í landinu undanfarin ár. „Á
sama tíma,“ segir stjórnin, „hafa sprottið
upp raddir þess efnis að setja skuli frek-
ari klafa á ferðaþjónustuna með því að
hækka eigi virðisaukaskatt á greinina og
afnema undanþágur.“
Stjórn SAF bendir á, í ályktun sinni,
að ferðaþjónusta sé í eðli sínu alþjóðleg
atvinnugrein. „Íslensk ferðaþjónustufyr-
irtæki starfa því á alþjóðlegum markaði
og í samkeppni við erlenda áfangastaði.
Erlendis er ferðaþjónustan almennt í
lægri þrepum virðisaukaskattskerfisins.
Það hefur sýnt sig að þau lönd sem eru
t.a.m. með gististaði í efri skattþrepum
hafa lotið í lægra haldi í samkeppni við
aðra áfangastaði – þar tala dæmin sínu
máli í fækkun gistinátta.
Á síðustu misserum hefur ferðaþjón-
ustan því miður horft upp á aukningu í
leyfislausri starfsemi, m.a. gistingu, og
taka þarf á slíku. Það að hækka virðis-
aukaskatt enn frekar eykur því miður
líkur á frekari undanskotum sem má
gera ráð fyrir að skekki samkeppnis-
stöðu rekstraraðila hótela enn frekar en
nú er raunin.“
„Ferðaþjónustan,“ segir líka, „skilar nú
þegar umtalsverðum tekjum til ríkisins
í formi virðisaukaskatts. Mikilvægt er
að benda á að þær greinar ferðaþjónust-
unnar sem eru undanþegnar virðisauka-
skatti eins og t.d. hópbifreiðafyrirtæki
geta ekki nýtt sér innskatt á móti og
greiða hann því að fullu til ríkissjóðs.“
„Rétt er að benda á,“ segir stjórnin,
„að aðrar stórar útflutningsatvinnu-
greinar á Íslandi eins og sjávarútvegur
og áliðnaður, sem starfa í alþjóðlegu
samkeppnisumhverfi eins og ferða-
þjónustan, eru undanþegnar virðis-
aukaskatti. Þær hafa einnig heimild til
frádráttar vegna virðisaukaskatts af
aðföngum vegna rekstrarins sem ferða-
þjónustan hefur ekki rétt á.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Vegagerðin hefur sent Skipulags-
stofnun tillögu að matsáætlun
fyrir framkvæmd á Vestfjarðavegi
númer 60 milli Bjarkalundar og
Melaness. Ný veglína um Teigs-
skóg er í matsáætluninni, en fyrri
veglínu var hafnað í umhverfis-
mati. Nýja veglínan sem er kölluð
lína Þ-H er milli Þórisstaða og
Hallsteinsness í Þorskafirði, að
því er Reykhólavefurinn greinir
frá.
„Skipulagsstofnun hefur til
þessa lagst gegn vegagerð í Teigs-
skógi,“ segir enn fremur „og hafa
deilur um vegagerð þar farið alla
leið til Hæstaréttar. Í greinargerð
með veglínu Þ-H segir að nýja
veglínan sé sett fram sem mála-
miðlun sem kæmi betur til móts
við vernd Teigsskógar. Vegurinn
færi fyrir ofan skóginn og svo í
gegnum hann á stuttum kafla og
loks neðan við skóglendið.
Vegurinn yrði lagður á um
2,15 km kafla í gegnum skóginn
en fyrri veglínur lágu í gegnum
hann á 6 km löngum kafla. Engin
efnistaka yrði í skóglendinu utan
vegstæðisins og segir í greinar-
gerðinni að svo hafi verið háttað
í vegagerð í friðlandinu í Vatns-
firði. Vegagerðin segir að veglína
Þ-H sé til þess fallin að halda
raski skóglendis í lágmarki án
þess að það bitni á umferðarör-
yggi.
Samkvæmt mati Vegagerðar-
innar myndu um 0,9% af skóg-
lendi í vestanverðum Þorskafirði
raskast, að teknu tilliti til mót-
vægisaðgerða.“
Núverandi vegur er 41,6 km
langur en nýr vegur verður 19,7-
21,7 km langur, háð leiðarvali. - jh
Samgöngur ný tillaga Vegagerðarinnar Send SkipulagSStofnun
Málamiðlun sem verndar Teigsskóg betur
Hreinn Haralds-
son vegamála-
stjóri og Hanna
Birna Kristjáns-
dóttir innanríkis-
ráðherra í Teigs-
skógi í fyrra, er
ráðherra kynnti
sér vegamál á
sunnanverðum
Vestfjörðum.
Ljósmynd/Innan-
ríkisráðuneytið
Saf augljóSir hagSmunir í að einfalda VirðiSaukaSkattSkerfið
Ferðaþjónustan búi við
sanngjörn rekstrarskilyrði
Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar segja núverandi kerfi íþyngjandi en breytingar til einföldunar
megi ekki hafi áhrif til hins verra.
Ferðaþjónustan er í eðli sínu alþjóðleg atvinnugrein, segir stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar.
6 fréttir Helgin 29.-31. ágúst 2014