Þjóðlíf - 01.06.1987, Page 10

Þjóðlíf - 01.06.1987, Page 10
E R L E N T PJÓOMINJASAFNIÐ íslendingur um borð Gunnar Gunnarsson GUNNAR Gunnarsson fæddist árið 1889 á Valþjófsstað í Fljótsdal í N-Múlasýslu en ólst upp í Vopnafirði. Hann flutti til Dan- merkur árið 1907 og átti þar heima til ársins 1939 er hann hvarf aftur til íslands og gerð- ist þá bóndi á Skriðuklaustri í Fljótsdal. Árið 1948 flutti hann til Reykjavíkur og bjó þar til dánardægurs 1975. Gunnar Gunnarsson ritaði jöfnum hönd- um á dönsku og íslensku. Hann frumsamdi bækur sínar á dönsku meðan hann dvaldi ytra en eftir það á íslensku og sneri mörg- um bóka sinna á íslensku fyrir og eftir heimkomuna. Sögur Gunnars voru þýddar á mörg tungumál og var hann t.d. víðlesinn í Þýskalandi í þann mund er skemmtiferða- skipið Milwaukee kom hingað til lands 1936. Gunnar gaf út fyrstu verk sín sama ár og hann sigldi út til Danmerkur en þá var hann á nítjánda ári. Pað voru Ijóðakverin Vorljóð og Móðurminning. Rithöfundar- braut Gunnars var framan af erfið, en árið 1914 þótti hann vinna mikinn rithöfund- arsigur með útgáfu Sögu Borgarœttarinnar. Hvert verkið rak annað eftir útkomu þeirrar sögu og ávann Gunnar sér mikla frægð og vinsældir, innanlands sem utan. Eftir hann liggja mörg stórvirki, sem mörg hver verða talin til sígildra íslenskra bók- mennta, s.s. Fjallkirkjan, Svartfugl, Kirkj- an á fjallinu, Heiðarharmur og Ströndin. PÍLAGRÍMSFERD. Það var því síst að undra, þótt Kummer væri fenginn til að slást í förina þegar norræna félagið þýska og „menningarstofnun" (Kulturgemeinde) Nasistaflokksins efndu til eins konar píla- grímsferðar í norðurveg, þremur árum eftir að Hitler komst til valda. Rúmlega 600 manns voru um borð í skemmtiferðaskipinu Milwaukee, þegar það lét úr höfn í Hamborg þann 29. júní 1936. Af þeim gögnum sem varðveist hafa um aðdraganda og undirbúning þessarar ferðar má ráða, að henni var ætlað að treysta og efla þá trú á skyldleika þýskra og norrænna manna, sem áður var getið. { ávarpi eins þeirra flokkspólitísku gæðinga sem að ferð- inni stóðu - og finna má í reisubók ferða- langsins Kuckelsbergs* - segir m.a.: „Hinn forngermanski arfur vorrar eigin þjóðar hefur orðið skemmdarfýsn drottnara af framandi kyni að bráð. í fornsögum og Eddukvæðum Norðurlandabúa er hins veg- ar að finna ýmsar samgermanskar heimildir, sem bera hetjuskap og hetjulund svo fagurt vitni, að þær eiga brýnt erindi til okkar unga fólksins.“ Annar þeirra sem fylgir umræddri reisu- bók úr hlaði tekur í sama streng og lofar og prísar göfgi hins norræna kynstofns: „Hér hafa óblíð náttúruöfl stuðlað að því í aldanna rás að móta útvalið kyn manna, sem spengilegt vaxtarlag, bjart yfirbragð, ljóst hár og blá augu, og þó öðru fremur ákveðnir sálrænir eiginleikar, skilja frá öðr- um kynþáttum. í linnulausri baráttu sinni við náttúruöflin efldist hinn norræni maður svo að hreysti, að honum tókst síðar að ná verulegum ítökum á meginlandi Evrópu, í Asíu og heiminum öllurn." Enda þótt slíkar staðhæfingar hljómi nú sem orðagjálfur, voru þær teknar sem óvé- fengjanleg sannindi í þágu nasismans. í ferðasögu Kuckelsbergs örlar víða á þeirri hástemmdu mærð, sem norræn menning vakti í brjóstum Þjóðverja á þessum árum - ekki síst þegar ísland og íslendingar áttu í hlut. NORRÆN-GERMÖNSK HJÖRTU. Á leiðinni yfir Atlantshafið var ýmislegt gert til að halda þessum rúmlega 600 pílagrímum norðursins við efnið. Þýsk leikkona flutti farþegum áhrifaríka kafla úr íslenskum forn- bókmenntum. Meðal þess sem leikkonan þuldi yfir lýðnum var Þrymskviða og út- dráttur úr Gísla sögu Súrssonar. í upphafi ferðar ávarpaði einn af oddamönnum menn- ingarstofnunar nasista, Carl Maria Holzapf- el, ferðalangana og brýndi fyrir þeim mikil- vægi þýsk-norrænna menningartengsla: „Hin þýska hugsjón er í eðli sínu norræn- germönsk hugmynd og Þýskaland er á vor- um dögum sá vígvöllur, þar sem hin heims- sögulega barátta er háð. Norrænar þjóðir sjá sólina rísa og hníga frá allt öðru sjónar- * / þessari grein er að mestu stuðsl við umrœdda bók Kuckelsbergs, Dcutsche Nordlandrcise, Ein Rcisetage- buch, sem kom út í Dresden árid 1937. horni er þær sem búa í suðri og austri og fra þessu sjónarhorni litu forfeður vorir heint- inn allt öðrum augum en aðrar þjóðir . • Það er ósk vor og von, að þér upplifið Norðurlönd eins og til er ætlast; með björt- um, skýrum augum, með blóði úr söniu uppsprettum og hjarta, sem verður jafn upptendrað af norrænni sól og öll norræn- germönsk hjörtu hafa tendrast upp til þessa — og munu gera á ókomnum tímum.“ Að lokinni ræðu Holzapfels tók annar af virðingarmönnum Nasistaflokksins, Flórían í nokkur frá „Þuslaraþorpi“ til máls. Sú ræða var að mestu á sömu nótum og hin fyrn. nema hvað sá síðarnefndi kvað enn fastar að orði og brýndi fyrir íslandsförum, að þessari ferð væri ætlað að veita þeim dýpri skilning á „eigin eðli“, auk þess sem hann fór mörg- um orðum og fögrum um hugprýði Foringj- ans. Flórían þessi lauk máli sínu með eftir- farandi hvatningu til ferðalanganna: „Megi þessi ferð veita hverjum og einum þátttakenda kraft til að halda áfram að rækja skyldur sínar við þjóð vora, blóð vort og foringja vorn.“ Að þeim orðum sögðum kvað við máttugt og hljómmikið Sieg Heil!. Athöfninni lauk svo með því að þjóðsöngurinn Deutschland, Deutschland iiber alles ómaði út yfir klið' mjúkar öldur Atlantsála. Næsta dag var enn efnt til „fræðslufund' ar“ með íslandsförum. Að þessu sinni vat það fyrrnefndur norrænufræðingur Berti' hard Kummer, sem rifjaði upp það líf sem f- var lifað á „sögueyjunni" til forna. Kummef leiddi farþegunum jafnframt fyrir sjónir, að þeir stefndu til fundar við þjóð sem væft blóðskyld þeim sjálfum, auk þess sem ÞV1 færi fjarri að ísland væri framandi land held' ur væri það þvert á móti hluti af átthögurú Þjóðverja sjálfra. Kummer klykkti út með þeim vígreifu orðum, að einstaklingar og þjóðir sem væru að vakna til vitundar um kynþátt sinn myndu koma í veg fyrir að ísland, sjálf háborg norrænnar og gef' manskrar menningar, yrði bandarískurn áhrifum og yfirgangi úr vestri að bráð. Þa^ fylgdi hins vegar ekki sögunni hvernig utit' ræddir íslandsvinir ætluðu sér að frelsa íbu*1 eyjarinnar við ysta haf úr klóm Sáms frænda . . . ÍSLENDINGAR UM BORÐ. Það voru fleiri en Þjóðverjar sem tóku þátt í þessan sérstæðu pílagrímsför til Norðurlanda- ■ Meðal gesta um borð voru tveir íslendingaf' Gunnar Gunnarsson rithöfundur og Ei>lí>r Kristjánsson óperusöngvari. Eftir stuttarí stans í Færeyjum þar sem hópurinn tyl*11 niður fótum í fáeinar klukkustundir, var lag af stað í síðasta áfanga ferðarinnar til Js lands. Kvöldið áður en komið var að if' landsströndum var ferðalöngunum boði uppá „norrænt kvöld", þar sem skáld' Gunnar Gunnarsson flutti hugljúfan fia, söguþátt um bernsku sína og uppvaxtarar ‘ Fljótsdalshéraði auk þess sem hann reifa fyrstu tilburði sína til skáldskapar. Refi11 bókarhöfundurinn Kuckelsberg getur þesS' 10

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.