Þjóðlíf - 01.06.1987, Blaðsíða 38

Þjóðlíf - 01.06.1987, Blaðsíða 38
I N N L E N T „Þjóðveiflnn vill ódýra glstingu í bænum og fer í langar ferðlr um landið ". Með $ í augum Ferðamannaþjónustan æ fjölbreyttari en er markaðurinn mettaður? ÞAÐ HEFUR ALDREI verið eins mikil aukning og á fyrri hluta þessa árs og það lítur bærilega út fyrir sumarið," segir hótel- stjóri í Reykjavík og svör annarra forsvars- manna í hótel- og gistihúsarekstri, á ferða- skrifstofum og í annarri ferðaþjónustu voru á sömu lund þegar Þjóðlíf leitaði fregna af ferðaútveginum í sumar. Komur erlendra ferðamanna til íslands virðast enn færast í aukana. Þó ekki í sama mæli og margir gerðu ráð fyrir eftir metárið í fyrra og óraun- hæfar væntingar í kjölfar leiðtogafundarins í Reykjavík í október. „Það varð mikil aukning í pöntunum fyrri hluta vetrar en ég held að það sé álíka mikil aukning í afpöntunum nú,“ segir Bjarni Sig- tryggsson, aðstoðarhótelstjóri á Hótel Sögu um ferðamannastrauminn til landsins. „Það er því ekkert sérstakt sem bendir til að það verði nein veruleg aukning ferðamanna til landsins í sumar. Sú aukning sem átti sér stað fyrstu mánuði ársins er svolítið villandi vegna þess að það var nóg hótelrými þá og gert var mikið átak til að selja helgarferðir til landsins og eins voru hér haldnar stórar ráðstefnur,“ bætir hann við. Á síðasta ári komu tæplega 114 þúsund erlendir ferðamenn til landsins sem var um 16% aukning frá árinu þar á undan og fór langt fram úr ítrustu spám. Þessar aðstæður og svo vonir vegna leiðtogafundarins leiddu af sér fyrirspurnir og pantanir sem bentu til enn meiri aukningar á þessu ári. Nú telja hins vegar margir að flóðbylgjan rísi ekki eins hátt og tala um rúmlega 5% aukningu ferðamanna til landsins á árinu öllu. Áhrif leiðtogafundarins til landkynningar voru of- metin. „Honum var ekki fylgt nógu vel eftir með markvissri kynningarstarfsemi,“ segir Bjarni Sigtryggsson og telur líklegt að við séum að komast að ákveðnum mettunar- punkti hvað aðsóknina snertir. „Áhrif leið- togafundarins skila sér sennilega þegar til lengri tíma er litið,“ segir Ragna Samúelssofl skrifstofustjóri hjá Ferðamálaráði. „ísland , er vinsælt í dag en jafnframt fremur dýr* ferðamannaland,“segir Hildur Jónsdóttú hjá Samvinnuferðum/Landsýn. „Það et bæði dýrt að ferðast hingað og dvelja hér miðað við kostnað á ferðalögum erlendis- Þess vegna eigum við að búa okkur smán' saman undir að taka á móti fleiri ferða- mönnum en ekki búast við neinum stökk' breytingum. Við erum heldur ekki í stakk búin til að taka á móti holskeflu ferðamann*1 og það er bara blekkjandi að vænta þess a‘ ferðamönnum fjölgi á einu ári álíka og eðh' legt má teljast að gerist á fimm til tíu árun1 — en þetta er alltaf upp á við,“ segir Hildur Jónsdóttir. UPPSVEIFLAN Fjöldi erlendra ferða' manna til fslands hefur margfaldast síðas1 liðin 20 ár. 1967 komu 37 þúsund útlending' ar til landsins. f ár má búast við rúmlega 1-, þúsund. Aukningin hefur þó orðið mest a allra síðustu árum. Fyrstu fjóra mánu‘! þessa árs varð 32% aukning miðað við söm mánuði í fyrra. Hjá Flugleiðum hefur fuft um erlendra gesta til Islands fjölgað u>" 32% fyrstu fjóra mánuði ársins og sanj kvæmt upplýsingum félagsins hafa bókan' yfir sumarmánuðina aukist um 15%. Uppgangurinn hefur líka komið fram ( 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.