Þjóðlíf - 01.06.1987, Blaðsíða 11

Þjóðlíf - 01.06.1987, Blaðsíða 11
E R L E N T a^ Gunnar hafi notið mikilla vinsælda í pyskalandi og fjölmargar bóka hans hafi verið þýddar á þýsku. Það varð síst til að skyggja á hylli Gunnars meðal farþeganna á Milwaukee að fyrr um daginn höfðu þau jíðindi borist að skáldið hefði verið gert að heiðursdoktor við háskólann í Heidelberg. jjunnari var að sjálfsögðu fagnað af sam- ‘erðamönnum sínum og hann flutti þakkir á móti fyrir að honum skyldi hafa verið boðið að taka þátt í þessari merku íslandsferð. í avarpi sínu undirstrikar Gunnar gjörvuleika °g glæsibrag þýsku þjóðarinnar og lætur þá °sk í ljósi, að fleiri slíkar reisur fylgdu í KJólfarið. Að endingu víkur hann fáeinum °rðum að Þýskalandi nasismans: -Það er hið nýja Þýskaland sem sækir °kkur (íslendinga A.B.) heim. Það er margt ^'sjafnt sagt um þetta land á alþjóðavett- Vangi. Hver sá sem þangað kemur hlýtur þó 0 Verða djúpt snortinn í hjarta sínu, þegar ann verður vitni að því, hvar sem hann fer, Ve eining þýsku þjóðarinnar í hinu nýja ríki er máttug." Að því búnu þakkar skáldið norræna fé- g*nu og menningarstofnun nasista fyrir að afa efnt til þessarar ferðar og hyllir hið jjýja Þýskaland og Þjóðverja með nasista- ^eðjunni Sieg Heil. Um viðbrögð aneyrenda við kveðju skáldsins segir í fyrr- "efndri reisubók: ■>Viðstaddir rísa úr sætum, allir sem einn, g standa eitt augnablik djúpt snortnir með retta handleggi frammi fyrir skáldinu, — as þessi djúptæka hrifning turnast í ósjálf- att og hamslaust lófatak." Se að er svo til að kóróna þessa áhrifamiklu fenu, að þegar menn hafa jafnað sig eftir nrfkif^a-læt'n sýn8ur Einar Kristjánsson Um ^Ur ls'ensk Þjóðlög og uppsker að von- ríkulegan fögnuð viðstaddra. J^ALDAR KVEÐJUR. Áður en Milwau- e eggst við akkeri á ytri höfninni í Reykjavík þann 4. júlí fá farþegar enn einn lesturinn, að þessu sinni frá fulltrúa norræna félagsins, Christian Jenssen, sem tíundar fyrir þeim helstu kosti hins norræna kyns og mikilvægi norrænnar menningar fyrir þær göfugu hugsjónir, sem pólitík nasismans nærist á. Jenssen gleymir að sjálfsögðu ekki að skreyta þennan lofsöng um norðrið með tilhlýðilegum fagurgala um forníslenskar bókmenntir. Það er hátíðleg stund þegar farþegar á Milwaukee stíga í bátana, sem flytja þá til lands. Mörgum verður að sögn hugsað til Ingólfs Arnarsonar, sem fyrstur reisti bæ í þessari hrjóstrugu vík og myndir af fornum hetjum og goðum líða fyrir hugskotssjónir. En þegar kemur að hafnargarðinum eru bátsverjar snögglega vaktir af draumum sín- um um hetjudáðir og goðablót fornkapp- anna. Á hafnargarðinn hefur verið málað stórum stöfum: Es lebe kommunismus. Nie- der mit den Nazisten. Þessi dólgslega áletrun virkar eins og köld gusa í andlit hinna óþreyjufullu íslandsfara. Og útsendarar Moskvuvaldsins láta ekki þar við sitja heldur afhenda gestunum jafnframt flugrit þegar þeir stíga á land, sem reynist vera óhróður um nasismann og Hitler. Gestunum þótti að vonum miður að þeir skyldu fá svo kaldar kveðjur frá þeirri þjóð sem þeir töldu skyldari sér en flestar aðrar. Hins vegar virðast þeir ekki hafa látið þetta atvik spilla gleði sinni yfir því að vera komn- ir til fyrirheitna landsins, enda bætti nokkuð úr skák að þegar þeir komu aftur um borð að lokinni skoðunarferð um Suðurland, beið þeirra vinsamlegt afsökunarbréf frá svonefndum Þýskalandsvinum. í því bréfi er þetta tiltæki kommúnista harmað og tekið fram að einungis tvö prósent íslensku þjóð- arinnar hafi sýkst af vitfirringu kommúnism- ans. Jafnframt er það undirstrikað að „ís- land, land germana, sé og verði vinveitt Þjóðverjum, enda þjóðirnar blóðskyldar“. ÞJÖÐLEIKHÚSIÐ ■ Elnar Kristjánsson f hlutverki sfnu f óperunnl La Travlata sem Þjóftlelkhúsló flutti órift 1953. íslendingur um borð Einar Kristjánsson EINAR Kristjánsson fæddist árið 1910 í Reykjavík. Hann varð stúdent frá M.R. vorið 1930 og eftir það lá leið hans til Vínarborgar þar sem hann lagði stund á söngnám. 1931-33 stundaði hann söngnám í Dres- den. Árið 1933-47 var hann óperusöngvari við Ríkisóperurnar í Dresden, Stuttgart, Berlín, Munchen, Dusseldorf og Hamborg og við Konunglega leikhúsið í Stokkhólmi. Hann var söngvari við Konunglega leik- húsið í Kaupmannahöfn 1948-62. Eftir 1962 flutti Einar heim til fslands og gerðist kennari við óperudeild Tónlistar- skólans í Reykjavík. Hann lést árið 1966. Einar Kristjánsson söng í nokkrum vel- þekktum óperum hér á landi við Þjóðleik- húsið. Má þar nefna Kátu ekkjuna (1952), Leðurblökuna (1952) og La Traviata (1953). Einar Kristjánsson var í hópi stór- söngvara íslands á sínum tíma. 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.